Víkurfréttir - 19.08.2020, Page 30
Tvö draumahögg
í Leirunni
Tveir kylfingar náðu draumahögginu á Hólms-
velli í Leirunni á dögunum. Sævar Ingi Borgarsson
og Jón Kr. Magnússon úr Golfklúbbi Suðurnesja
gerðu sér lítið fyrir og fóru holu í höggi. Jón Kr.
á sextándu braut og Sævar á þeirri áttundu.
Höggið hjá Jóni Kr. var flott, hár
bolti sem lenti skammt frá holu
og rann í hana. Virkaði frekar létt
hjá einum duglegasta kylfingi
klúbbsins.
Atvikið hjá Sævari var skraut-
legra. Við heyrðum í honum og
báðum hann að lýsa högginu.
Áttunda brautin er um 130
metrar að lengd. Sævar sló með
sjö-járni og það var talsverður
mótvindur. „Ég ætlaði að slá hana
lágt sem ég gerði en hitti hann ekki
vel heldur svona hálf „skallaði“
boltann. Hann flaug beint á pinna
en ég hélt að hann yrði of langur
og hafi farið yfir flötina. Ég sá
hann ekki fara ofan í þar sem
flötin stendur talsvert hærra en
teigurinn. Síðan röltum við af
stað og boltinn hvergi sjáanlegur
á flötinni né út í karganum, Svo
var ég kominn að enda flatarinnar
hjá karganum þegar ég sneri við
og sagði við hollið „Ahh, ég ætla
fyrst að kíkja í holuna og tékka þar
áður,“ og svo leit ég og öskraði – og
það trúði mér enginn í ráshópnum
fyrr en þeir kíktu í holuna.
Það skemmtilegasta við þetta var
að tveim dögum áður átti ég sam-
ræður við nokkra um holu í höggi
og ég sagði að líklega ætti ég aldrei
eftir að fara holu í höggi,“ sagði
Sævar Ingi.
Sævar glaðbeittur á áttundu
flötinni í Leirunni.
ti
m
ar
it
.is
Ö l l t ö l u b l ö ð V í k u r f r é t t a
f r á 1 9 8 0 o g t i l d a g s i n s í d a g
e r u a ð g e n g i l e g á
timarit.is
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.
30 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár
Jón Kr. hefur slegið mörg högg á árinu en ekkert eins skemmtilegt og þetta.