Víkurfréttir - 19.08.2020, Side 31
Styrktarmót sem haldið var til minningar um Gunnlaug Úlfar Gunnlaugsson
Um síðustu helgi fór fram minningarmótið Úlli Open 2020 í Vest-
mannaeyjum. Mótið er haldið til minningar um Gunnlaug Úlfar Gunn-
laugsson, Úlla pípara, annan stofnanda Lagnaþjónustu Suðurnesja en
hann lést 22. september síðastliðinn. Úlli var fæddur á Siglufirði þann
5. apríl 1957 og bjó þar fyrstu árin með fjölskyldu sinni en flutti til Eyja
á unglingsárum þar sem hann vann og bjó þar til hann flutti til Grinda-
víkur þar sem hann bjó og starfaði þar til hann lést.
Úlli kynnti sig sem Úlla Eyjamann,
fæddan á Siglufirði en búandi og
starfandi í Grindavík. Hann lék
golf með vinum sínum og hafði
ætlað að halda golfmót í Grindavík
á síðasta ári en heilsan hreinlega
leyfði það ekki – hann tók loforð
af vinum sínum að halda golf-
mótið, þótt síðar væri. Það var
síðan ákveðið strax í kjölfar frá-
falls hans að halda minningarmót
og gera það að árlegum viðburði,
til þess að halda minningu yndis-
lega Úlla á lofti og styrkja um leið
félagasamtök í hans nafni.
Ættingjar og vinir vilja þakka
öllum þeim sem lögðu hönd á plóg
við undirbúning þessa móts kær-
lega fyrir. Lagnaþjónusta Suður-
nesja sem Úlli stofnaði ásamt
Rúnari Helgasyni kom myndarlega
að mótinu með fjárstyrk, en Þor-
finnur sonur Úlla er nú meðeigandi
Rúnars að Lagnaþjónust-
unni. Allir þátttakendur
greiddu að sjálfsögðu
myndarlegt mótsgjald og
vinningar komu frá Bláa
lóninu, Harbour View,
Northern Light Inn, Golf-
klúbbi Grindavíkur og
Golfklúbbi Vestmanna-
eyja, Miðstöðinni, Skipa-
lyftunni, Geisla, Byko,
4x4 Adventures, Papas
Pizza, Hafinu, Esju, Sælkeradreif-
ingu og Stóra sviðinu og að auki
gaf Jóhannes Barkarson, frændi
Úlla, glæsilegan farandbikar.
Glæsilegu móti lauk með sigri
Bjarka Guðmundssonar frá
Grindavík, þannig að farand-
bikarinn verður fyrsta árið varð-
veittur í Grindavík. Í verðlaunaaf-
hendingunni afhentu Kristín Gísla-
dóttir, ekkja Úlla, og börn hans,
Eva Rut, Þorfinnur og Gunný
Krabbavörn í Vestmannaeyjum
allt það sem safnaðist í kringum
mótið, eða 327.000 krónur. Kristín
Valtýsdóttur tók við framlaginu og
þakkaði fyrir þennan styrk með
fallegum og vel völdum orðum.
Aðstandendur mótsins þakka
stuðninginn og minna á að mótið
verður haldið aftur á næsta ári og
stefnan er að gera enn betur þá.
Þessi er fyrir Úlla!
Þorfinnur Gunnlaugsson, sonur Úlla, sagði blaðamanni Víkurfrétta
þessa skemmtilegu sögu sem tengist mótinu.
„Þrír nánustu vinir pabba, þeir
Bjarni Ólafur Guðmundsson,
Birgir Sveinsson og Kristófer
Helgason, voru í fyrsta hollinu
í mótinu. Þeir léku eðlilega
hver sínum bolta en slógu svo
til skiptis fjórða boltanum, sem
var rauður, fyrir pabba. Það var
svo á sunnudeginum að Daddi
[Bjarni] vinur hans fór í golf
og á tólftu holu Vestmanna-
eyjavallar ákvað hann að slá
aukabolta, rauða boltann sem
þeir voru að nota í mótinu, og
sagði: „Þessi er fyrir Úlla!“ Svo
sló hann báðum boltunum.
Síðan voru þeir að leita að
boltunum út um allt en fundu
hann ekki ... fyrr en honum var
litið í holuna. Þá hafði hann
farið holu í höggi með boltanum
hans pabba. Alveg ótrúlegt því
pabbi fór aldrei holu í högg, ég
held að hann hafi aldrei verið
nálægt því.“
Úlli Open 2020
Sigurvegarinn, Bjarki Guðmundsson, með bikarinn ásamt
börnum Úlla; Gunný, Evu Rut og Þorfinni, og Kristínu ekkju hans.
Aftast er Jóhannes Barkarson, frændi Úlla, sem gaf bikarinn.
Styrkurinn afhentur.
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár // 31
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.