Víkurfréttir - 19.08.2020, Side 42
viku. Svo eignaðist maður fellihýsi
1990 og svo húsbíl 1999. Stundum
hefur maður verið í ferðalagi svona
þrjár, fjórar vikur í einu og lagst
svo aftur í ferðalög og einhver
árin hefur maður náð um 70–80
dögum yfir sumarið í bílnum.
– Áttu þér uppáhaldsstað sem
þú sækir oft eða er eitthvað
sem þig langar virkilega að
skoða?
Snæfellsnesið heillar alltaf, alltaf
gaman að koma til Vestmannaeyja,
sérstakur sjarmi yfir eyjunum.
Akureyri er alltaf gaman að
heimsækja og við vorum svo
heppin að vera þar i nokkra daga
í júlí og má segja að það hafi verid
svona „míní“ ættarmót, einn þriðji
af mínu fólki, vorum saman á tjald-
stæðinu á Hömrum.
Ég hef aldrei komið í Þakgil sem
er skammt frá Vík í Mýrdal, erfitt
að fara á húsbílnum þangað en við
stefnum að fara þangað á næst-
unni.
Eins langar mig að fara i Ber-
serkjahraun sem er úfið apalhraun
með gíghólum og söguminjum í
Helgafellssveit á Snæfellsnesi.
Eins og ég nefndi áðan þá eru svo
margir fallegir staðir á Íslandi sem
vert er að skoða aftur og aftur.
Það þarf ekki alltaf að fara langt,
Garðskagi er reyndar uppáhalds-
staðurinn minn, enda átti ég heima
þar í mörg ár og ég skrepp oft út á
„Skaga“.
– Á eitthvað að ferðast meira
núna í haust?
Já, það er nú meiningin að fara
í ferð á næstunni en veðrið mun
nú svolítið ráða því hvert verður
haldið. Haustin eru oft mjög
skemmtilegur tími til að vera í úti-
legu, þegar farið er að rökkva á
kvöldin og maður setur upp ljós í
allskonar litum. Vonandi fáum við
gott veður núna í haust.
– Hvernig er Covid-19-ástandið
að leggjast í þig um þessar
mundir og hverjar finnst þér
horfurnar vera inn í haustið og
veturinn?
Covid-19 er alvarlegt ástand og
maður er bara svoldið smeikur
um að fá þessa veiru og þetta var
mikið áfall þegar smitum fjölgaði
svona mikið á síðustu vikum. Ég
er mjög meðvituð um þetta ástand
og passa mig að spritta og þvo
hendur. Mér finnst mjög erfitt að
geta ekki gert plön og verst væri
ef maður getur ekki haft samneyti
við sína nánustu ættingja – en við
verðum að lifa með veirunni og
passa okkur og ég er mjög þakklát
að hafa svona gott þríeyki eins og
þau Þórólf, Ölmu og Víði sem tala
í okkur kjark og eru heiðarleg og
fagmannsleg í því sem þau gera.
Stöndum saman, verum góð við
hvert annað, þá komumst við í
gegnum þennan skafl.
Frá Sænautarseli. Þar var búið til 1943.
Ferðaþjónustan
Fjalladýrð í
Möðrudal.
Í Sænautarseli,
lummur með rjóma
og súkkulaði.
Möðrudalskirkja.
42 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.