Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.08.2020, Page 50

Víkurfréttir - 19.08.2020, Page 50
Aldrei fleiri nemendur í Háskólabrú Þriðja útskrift Keilis á árinu Samtals brautskráðust 42 nemendur frá Keili við hátíðlega athöfn föstudaginn 14. ágúst síðast- liðinn. Jóhann Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Keilis, flutti ávarp og stýrði athöfninni en vegna aðgangstakmarkanna var athöfnin send út í beinu streymi. Hægt er að nálgast upptöku af útskriftinni á heimasíðu og Facebook-síðu Keilis. Keilir brautskráði 21 nemanda af Verk- og raun- vísindadeild Háskólabrúar. Með útskriftinni hafa alls 186 nemendur lokið Háskólabrú á þessu ári og samtals yfir 2.000 nemendur frá fyrstu brautskráningu Háskólabrúar Keilis árið 2008. Skólasetning Háskólabrúar fór fram fyrr í vikunni og er heildarfjöldi nemenda í frum- greinanámi í Keili nú um 300 talsins og hafa aldrei verið fleiri. Er þetta fjórða árið í röð þar sem metfjöldi umsókna berst í Háskólabrú Keilis. Berglind Kristjánsdóttir, forstöðumaður Há- skólabrúar, flutti ávarp auk þess sem Kristófer Aron Garcia flutti ræðu útskriftarnema. Dúx var Pétur Arnar Úlfarsson með 9,74 í meðal- einkunn sem er hæsta meðaleinkunn í sögu Há- skólabrúar Keilis. Fékk hann gjöf frá HS orku sem viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Keilir hefur boðið upp á aðfaranám til há- skóla frá árinu 2007 og hafa á þeim tíma átt sér stað miklar framfarir í kennsluháttum sam- hliða breyttum þörfum og kröfum nemenda. Nú geta nemendur því valið að sækja Háskólabrú í staðnámi eða fjarnámi, bæði með og án vinnu. Boðið er upp á Háskólabrú í samstarfi við Há- skóla Íslands og gildir námið til inntöku í allar deildir háskólans. Keilir hefur markað sér sér- stöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur. Kennsluhættir miða við þarfir fullorðinna nemenda, miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir. Kannanir í Háskóla Íslands á gengi nýnema hafa sýnt að nemendur sem koma úr Háskólabrú Keilis eru meðal þeirra efstu yfir þá sem telja sig vel undirbúna fyrir háskólanám. Hæsta meðaleinkunn í sögu einkaþjálfaranáms Keilis 21 nemandi brautskráðist sem ÍAK einkaþjálfari frá Íþróttaakademíu Keilis og með útskriftinni hafa samtals 668 einstaklingar lokið einkaþjálf- aranámi frá skólanum. Arnar Hafsteinsson, forstöðumaður Íþrótta- akademíu Keilis, flutti ávarp. Wiktoria Marika Borowska fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur með 9,83 í meðaleinkunn sem er hæsta meðaleinkunn í sögu námsins. Hún fékk nuddbyssu frá Hreysti sem viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Magnús Jónsson Núpan flutti ræðu útskriftarnemenda fyrir hönd Íþróttaakademíu Keilis. ÍAK einkaþjálfaranám Keilis er eina einkaþjálf- aranám á Íslandi sem er viðurkennt af mennta- málaráðuneytinu sem starfsnám á þriðja hæfni- þrepi og gæðavottað af Europe Active á fjórða þrepi samkvæmt reglum Evrópusambandsins (Level 4 Personal Trainer stofnunarinnar). Vott- unin er gæðastimpill á því námi sem skólinn hefur boðið upp á undanfarin ár. FIMMTUDAGA KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS Allt það nýjasta frá Suðurnesjum í hverri viku! Ný þáttaröð hefur göngu sína á Hringbraut fimmtudaginn 20. ágúst kl. 20:30 50 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.