Víkurfréttir - 19.08.2020, Side 68
þangað. Síðan var alveg dásam-
legt að prófa VÖK, nýju böðin við
Egilsstaði. Í júlí fórum við ásamt
vinafólki okkar yfir Kjöl og það var
mjög skemmtileg ferð. Bjart yfir
öllu og fámennt á hálendi. Alveg
magnað hvað auðnin getur verið
falleg.
Um verslunarmannahelgina
náðum við að taka börnin okkar
með ásamt viðhengjum og skoð-
uðum Snæfellsnesið. Aftur vorum
við heppin með veðrið og nesið
fagra bauð upp á eitthvað fyrir alla.
Fyrir þessa ferð var unga fólkið
búið að stofna ferðaplan með hjálp
Google Maps og þar með gátu allir
sett inn það sem þeim langaði til
að skoða yfir helgina og svo tókum
við þetta bara nokkuð skipulega
með smá útúrdúrum. Þetta var
mjög vel heppnuð ferð þar sem að
allir sáu eitthvað nýtt. Núna í ágúst
fórum við svo hjónin bara tvö í
langa helgarferð um Suðurlandið
og nutum einstakrar veðurblíðu.
Við áttum uppsafnaða ýmsa staði
sem okkur hefur lengi langað til
að heimsækja. Listinn er langur en
við náðum þó að skoða Dyrhólaey,
Reynisfjöru, flugvélaflakið á Sól-
heimasandi, fossinn Gljúfrabúa,
Svartafoss í Skaftafelli, Fjarðarár-
gljúfur og Múlagljúfur.
Þar að auki erum við búin að
hjóla ýmsar styttri leiðir og ganga
marga slóðana en oft er allt slíkt
ákveðið með stuttum fyrirvara og
veðrið látið ráða för.
Það er svo margt fallegt að skoða
hér á Reykjanesinu og höfum
við verið að reyna að fara ýmsar
gamlar þjóðleiðir eins og Prest-
stígin, Sandgerðisveginn, Skóg-
fellaveginn og svo eru það fellin
og fjöllin í kringum okkur, eins og
Þorbjörn, Þórðarfell, Fagradalsfjall
og Keilir svo eitthvað sé nefnt.
– Skipulagðir þú sumarfríið fyr-
irfram eða var það látið ráðast
af veðri?
Að hluta til var það skipulagt fyrir-
fram en síðan var veðrið látið ráða
för.
Beitarhúsið Möðrudalsleið.
68 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.