Víkurfréttir - 19.08.2020, Side 80
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
Mundi
Ég sit hér og söngla
Covid-veirublús
Covid-blús
Mikið rosalega vona ég að við þurfum ekki að venjast því til langframa að lifa
eftir Covid-reglum. Ég veit ég tala fyrir munn margra þegar ég játa að lífið
var bara miklu skemmtilegra fyrir Covid og einföldu, litlu mig langar bara í
þannig líf aftur.
Við höfum öll gert okkar besta og
tekið þessum nýja veruleika af al-
vöru og mikilli þolinmæði. Við höfum
breytt okkar venjum, hegðun og lífs-
máta, ferðast innanhúss, innanbæjar
eða innanlands, allt eftir fyrirmælum
þríeykisins og verið tiltölulega stillt
og prúð. Við vorum saman í þessu
– öll saman „heima með Helga“ og
stemmningin var bara frekar góð
miðað við allt og allt. Þetta var líka
átaksverkefni, tímabundinn skellur
sem við vorum staðráðin í að taka
sameiginlega á kassann. Létum
tímann líða í sumar með því að
byggja pall og fara hringinn, byrj-
uðum að knúsa fólkið okkar aftur
og fórum að hlakka til að komast
kannski jafnvel eitthvað pínulítið
lengra en Stuðlagil með haustinu.
Við hjónin vorum til dæmis búin
að panta okkur flug til Köben í lok
ágúst og vorum á leið í fimmtugsaf-
mæli hjá góðum vinum, þegar við
pöntuðum leit þetta nú allt saman
bara nokkuð vel út. En þá skellur
þetta á aftur – „seinni bylgjan“ segja
þeir bjartsýnu, „önnur bylgjan“
segja þeir svartsýnu. Mér er eigin-
lega sama hvað þessi bylgja er
kölluð, þetta er allt jafn hundleið-
inlegt. Við afpöntuðum auðvitað
flugið og förum ekki neitt. Ég neita
því ekki að þrátt fyrir að ég þakki
fyrir þau forréttindi að vera hér á
Íslandi í þessu ástandi þá er inni-
lokunarkenndin sem fylgir því að
vera föst á eyju farin að láta aðeins
á sér kræla. Vissulega má líta á mína
persónulegu innilokunarkennd sem
algjört lúxusvandamál, aðrir erfið-
leikar sem tengjast veirunni eru
að sjálfsögðu mun alvarlegri, hvort
sem þeir eru heilsufarslegir eða
tengjast efnahagslegri afkomu fólks.
Ég reyni yfirleitt að vera frekar
jákvæð í þessum pistlum en á að-
eins erfitt með það núna. Þetta
mun allt saman ganga yfir, við
vitum það, en áður en það gerist
óttast ég að það verði talsvert
um almenn leiðindi. Það sem ég
óttast líka mun meira en mína
persónulegu innilokunarkennd
er það að samstöðuúthald okkar
Íslendinga virðist nánast vera að
þrotum komið og það núna þegar
við þurfum mest á því að halda –
haustið er framundan með fullt af
erfiðum ákvörðunum sem munu
hafa alvarleg áhrif á daglegt líf
fjölda fólks.
Við finnum það nú þegar að
þráðurinn er stuttur, aðalatriði
víkja fyrir aukaatriðum og sjálf-
skipaðir sérfræðingar spretta upp
eins og sveppir á umferðareyjum
og vita allt miklu betur en allir
sérfræðingar heims. Fréttir af
hlutafjárútboði Icelandair, flókið
skipulag skólastarfs eða hverjar af-
leiðingar hertra aðgerða á landa-
mærum geti orðið fyrir ferða-
þjónustuna eru langt frá því að
verða fréttir vikunnar. Stærsta
frétt vikunnar er um hversu hart
eigi að taka á því að ráðherra í
ríkisstjórninni var of nálægt vin-
konum sínum á almannafæri.
Mikilvægasta samviskuspurning
vikunnar er auðvitað sú hvort þú,
kæri lesandi, hafir gerst sekur um
að hugsanlega brjóta tveggja metra
viðmiðið síðasta hálfa mánuðinn?
Þetta verður leiðinlegt, erfitt og
langdregið – en það verður skárra,
auðveldara og gengur hraðar yfir
ef við stöndum saman og tökum
þetta á kassann. Þar til annað
kemur í ljós er þetta seinni bylgjan
og við rústum henni í sameiningu.
LO
KAO
RÐ
RAGNHEIÐAR ELÍNAR
FIMMTUDAGA KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Allt það nýjasta frá Suðurnesjum
í hverri viku!
Ný þáttaröð hefur göngu
sína á Hringbraut
fimmtudaginn 20. ágúst kl. 20:30