Víkurfréttir - 02.09.2020, Blaðsíða 47
Uppbygging á
ferðamannastöðum
Koma þarf þjónustumiðstöð sem
talað hefur verið um á Reykjanesi í
gagnið. Staðsetning við Reykjanes-
vita er góð en einnig hefur verið
talað um fyrir ofan Seltjörn, rétt
fyrir neðan mótorkrossbrautina.
Laga þarf veginn að Selatöngum,
slæmur malarvegur sem er ekki
langur.
Laga þarf veginn að Krísuvíkur-
bjargi. Er að verða ófær litlum
bílum og stærri rútum. Er ótrúlega
flott svæði með mikla möguleika.
Gera þarf endurbætur á merk-
ingum á göngustígum. Stika þá og
merkja betur upphafs- og enda-
punktana.
Söfn. Við höfum beðið lengi eftir
hersafni/varnarliðssafni. Spurning
er hvort að til sé húsnæði fyrir það
einhvers staðar á svæðinu sem
hægt væri að fá styrk fyrir leigu í
einhvern tíma.
Fjöldi ólíkra safna gefur okkur
ákveðna sérstöðu á landsvísu og
þarna væri hægt að hafa meiri
samvinnu milli safna. Aðgangseyrir
inn á allt Reykjanesið til dæmis
varðandi söfnin er ein hugmynd.
Fleiri hugmyndir eru til varðandi
ferðamannaiðnaðinn en innviðir
okkar eru að sumu leyti veiki
punkturinn og þar er oftast nefnt
salernisaðstöðuleysið sem hefur
háð svæðinu í dagsferðum um
svæðið eftir því sem ferðaþjón-
ustufyrirtækin segja.
Halda áfram að markaðsetja
Blue Diamond-hugmyndina sem
var varpað fram fyrir þó nokkrum
árum síðan en er enn fullgild í
mínum huga. Þar sameinast ferða-
iðnaðurinn og orkuiðnaðurinn á
skemmtilegan máta.
Fyrsta alvöru
vindorkuverið á Íslandi?
Eftir að hafa vanist að vera með
vindmyllur í nærumhverfinu í Dan-
mörku, þar sem allt fer á hliðina í
tíu metrum á sekúndu, þá væri
áhugavert að athuga svona upp-
byggingu hér á landi. Ég hef alltaf
séð fyrir mér þríhyrninginn sem
afmarkast af hesthúsunum við
Keflavík og svo Garð og Sandgerði.
Þarna eru engin fjöll og varla hægt
að tala um hóla. Fleiri Íslendingar
en við höldum hafa menntað sig
í þessum fræðum, bæði í bygg-
ingartæknifræði og orkufræðum
og meðalvindur á þessu svæði
myndi gera þetta að ákjósanlegum
stað hugsa ég fyrir vindmyllugarð.
Umhverfisáhrifin yrðu óveruleg.
Passa þyrfti að þetta væri ekki of
nálægt byggð eða golfvöllum og
þetta gæti orðið upphafið að ein-
hverju góðu. Hægt væri að reisa
gróðurhús nærri upp á aðgengi að
rafmagni, jafnvel gagnaver.
Sjávarorkugarður
Þetta hefur verið gert í nokkrum
löndum og 2013 fóru fram tilraunir
við Höfn í Hornafirði. Þarna liggja
gífurlegir möguleikar. Sjónmengun
væri lítil sem engin þar sem þetta
væri allt neðansjávar og einnig
er hægt að ganga að þessari orku
vísri, sem er ekki alltaf raunin með
vindorkuver sem dæmi. Mér hefur
dottið í hug að gera mættir athug-
anir á þessu út við Hafnir. Þar væri
þá hægt í framhaldinu að byggja
upp atvinnulíf sem myndi styrkja
þetta rómantíska hverfi Reykjanes-
bæjar. Skipulagstillögur sem voru
kynntar um uppbygginu á Höfnum
gætu flýtt þeirri þróun.
Suðurnesjalína 2
Í stuttu máli að þá þarf að klára
það mál. Ég þekki ekki pólitíkina í
því máli en þetta getur ekki verið
stopp endalaust. Er sæstrengur
málið til Reykjanessins kannski?
Einhvers staðar frá höfuðborgar-
svæðinu?
Nokkur önnur atriði
■ Kvikmyndaver hugsanlega í
álversbyggingunni. Skortur er
á stóru húsnæði fyrir þennan
iðnað hér á landi þó reyndar
sé verið að vinna í því þessa
stundina.
■ Bílageymsla á Patterson-
svæðinu. Hægt væri að bjóða
bílaleigunum að geyma flota
sína á því svæði. Girða það
af og hafa vakt. Þúsundir bíla
kæmust léttilega þar fyrir
og aðgengi yrði að vera allan
sólarhringinn.
■ Fraktumsýsla fyrir flugið.
Þessari hugmynd var komið á
framfæri við brotthvarf hersins
en þarna er spurning um
markaðssetningu flugvallarins
í þessum geira. Nægt rými er
innan haftasvæðisins til slíkrar
uppbyggingar og líka utan fyrir
stoðstarfsemi.
■ Uppbyggingin sem er fyrir-
huguð í Njarðvíkurhöfn. Ég hef
svo sem ekki neinu við hana
að bæta annað en bara „go for
it“. Afleidd störf yrðu fjölmörg
þar og gætu kallað á meiri þörf
fyrir iðnaðarmenn á svæðinu
sem aftur myndi styrkja Fjöl-
brautaskólann, það er nóg af
lögfræðingum.
■ Endurvinnsla. Möguleikarnir
í endurvinnslu eru nánast
óþrjótandi. Hef séð mynd-
bönd og kynningar á mjög full-
komnum flokkunarstöðum í
Bandaríkjunum til dæmis.
■ Mörg fyrirtæki sýndu Helguvík
áhuga á sínum tíma. Dekkja-
framleiðandi, kínverskt rútu-
yfirbyggingarfyrirtæki og auð-
vitað einhver fleiri. Væri hægt
að rifja upp gömul kynni við
þessi fyrirtæki eða setja sig í
samband við sambærileg fyrir-
tæki. Þarna koma samgöngur
með flugi og sjófrakt sér vel í
markaðssetningunni.
■ Styðja eins og hægt er ein-
staklinga sem vilja fara af stað
með lítil fyrirtæki. Sama hvaða
geiri það er. Hendur bæjaryfir-
valda eru auðvitað bundnar
fjárhagslega en ráðgjöf og skjót
úrvinnsla fyrirspurna og auð-
skyldir ferlar geta styrkt sam-
keppnisstöðu svæðisins.
■ Núna erum við að upplifa eitt
mesta úrval veitingastaða sem
Reykjanesbær hefur séð. Þá
erum við ekki einu sinni farin
að tala um hin bæjarfélögin
og það sem er í boði hjá þeim
hvað þetta varðar. Allt þetta
hjálpar til að koma okkur
á kortið gagnvart bæði út-
lendingum til að dvelja lengur
en eina nótt hérna og ekki
síst fyrir íbúa höfuðborgar-
svæðisins að taka skemmtilega
dagsferð hingað um skagann.
Hér hef ég stiklað á stóru um
ýmsar hugmyndir sem gætu dreift
betur úr vinnumarkaðnum og haft
hann minna einhæfan, sem hann er
í sjálfu sér ekki. En allavega reyna
að draga aðeins úr beinum áhrifum
flugsins á atvinnulíf svæðisins ef sá
möguleiki er fyrir hendi.
Margt af þessu er auðvitað
ekkert sem meðaljón getur farið í
strax á morgun en vonandi kveikir
þetta einhverja vonarglætu og á
einhverri hugmynd sem fólk er
með í maganum. Núna er vissulega
haustið að koma en með samstilltu
átaki getum við kannski látið vorið
koma snemma, að minnsta kosti í
huga okkar. Við erum öll ein stór
fjölskylda.
Með kveðju,
Sigurbjörn Arnar Jónsson,
Sibbi.
... og þú færð þær inn um lúguna
Víkurfréttir í áskrift!
Fyrir 3.500 kr. á mánuði færðu Víkurfréttir bornar heim til þín og losnar við fyrirhöfnina að sækja blaðið
Áskriftargjaldið verður innheimt mánaðarlega.
Pantaðu áskrift með tölvupósti á vf@vf.is
Þú sendir nafn, kennitölu, heimilisfang og símanúmer
Við höfum samband, staðfestum áskrift og færð reikning í heimabanka
vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár // 47