Víkurfréttir - 02.09.2020, Blaðsíða 66
Þeir sem eru 50 ára á árinu eru afmælisárgangurinn sem er í aðalhlutverki í árgangagöngunni
á Ljósanótt. Nú er hins vegar engin Ljósanótt og gangan verður ekki farin fyrr en að ári. Hvað
gerir 50 ára árgangurinn þá? Víkurfréttir hittu fyrir hóp ungmenna úr þessum árgangi 1970
á hátíðarsvæðinu á Bakkalág í Keflavík í vikunni. Bylgja Sverrisdóttir og Rúnar Inga Hannah
eru í undirbúningshópi árgangsins. Það lá því beinast við að spyrja hvað eigi að gera á um
Ljósanæturhelgina fyrst engin verði hátíðin?
„Ætli við verðum ekki bara heima
með fjölskyldunni og látum þetta
bara bíða til betri tíma. Við ætlum
að seinka því um eitt ár að verða
fimmtug, verðum bara 49 ára í eitt
ár í viðbót eins og ein góð sagði í ár-
ganginum,“ segir Bylgja í samtali við
blaðamann.
Rúnar, hvað segir þú um þetta?
„Við erum bara fólkið sem eldist
ekki neitt. Þetta er rosalega skrítið.
Við ætluðum að vera svo flott á því
og byrjuðum að undirbúa okkur í
október í fyrra. Við fengum afrit af
dagskrá árgangsins sem varð fimm-
tudur í fyrra og ætluðum að hafa
þetta ljúft og á sömu nótum. Það var
allt tilbúið hjá okkur en svo bara öllu
aflýst í upphafi ágústmánaðar. Þetta
er mjög skrítin tilfinning.
Það átti að vera gott partý þar
sem við ætluðum að hittast og borða
saman á föstudeginum. Það var búið
að panta diskótek og ýmislegt fyrir
það og fjörið átti að vera á föstudeg-
inum. Svo átti að hittast í hádeginu
á laugardegi og borða saman áður en
farið væri í árgangagönguna eins og
lög gera ráð fyrir og fara hingað á há-
tíðarsvæðið og skemmta okkur með
öllum. Það bíður betri tíma.“
Árgangagangan hefur verið einn af
föstu liðunum á Ljósanótt síðustu ár
þar sem allir hittast og hafa gaman.
Ljósanótt er ein af stærstu bæjar-
hátíðum landsins og svo er allt í
einu skrúfað fyrir allt. Þetta eru
skrítnir tímar, Bylgja.
„Já, þetta eru skrítnir tímar en við
bjuggumst við þessu. Það hefur þurft
að fresta svo mörgu síðustu vikur og
mánuði. En það kemur önnur Ljósa-
nótt, það er ekki spurning. Það er
verst með árganginn undir okkur,
sem eru fædd 1971. Við í árgangi
1970 vorum svo erfiður árgangur
í Keflavík og það bitnaði svolítið á
71-árganginum. Því miður fyrir þau
á næsta ári, því við þurfum að fá að
vera til hliðar,“ segir Bylgja.
„Aumingja þau,“ segir Rúnar og
segir að árgangurinn hafi ætlað að
koma inn með trompi og mikið hafi
verið lagt í að hafa sem flesta fædda
1970 á svæðinu. Þannig var búið að
bjóða öllum sem eru fæddir 1970 að
taka þátt í fjörinu, þó svo þau hafi
ekki gengið sína grunnskólagöngu
í Keflavík eða Njarðvík. Það var
búið að kalla saman hóp yfir 160
einstaklinga og rúmlega 100 höfðu
boðað komu sína á Ljósanótt í ár. En
það verður enginn hittingur í ár hjá
árgangi 1970 en búast má við því að
hann láti mikið fyrir sér fara að ári.
Þegar Rúnar er spurður hvað hann
ætli að gera um helgina, þá kemur í
ljós að hún verður óhefðbundin.
Hann sé að skipta um parket á íbúð-
inni sinni og verði örugglega að
rífa upp gamalt parket alla helgina.
Bylgja ætlar ekki að rífa parket, en
á von á því að fjölskyldan hittist og
grilli í tilefni Ljósanætur sem ekki
varð.
Bylgja starfar sem hárgreiðslu-
kona og þarf að nota grímu við sín
störf. Hún segir það mjög erfitt og
úthaldið er minni þegar það þarf að
anda í gegnum grímuna allan daginn.
„Maður leggur þetta á sig og þetta
er betra en að þurfa að loka eins og
þurfti að gera í mars og arpíl.“
Rúnar starfar í flugstöðinni og
þar er staðan ekki góð eins og heyra
hefur mátt af fréttum síðustu daga.
„Það er mjög rólegt í flugstöðinni.
Þegar maður hefur labbað um flug-
stöðina í mörg ár þegar mikið er að
gera þá er ástandið núna skrítið
og liggur við að maður verði þung-
lyndur á að labba um stöðina þegar
ekkert er að gera og maður getur
talið bílana á bílastæðinu þegar þeir
eru innan við tíu. En ég er viss um
það að þegar það kemur GO á allt,
þá verðum við fljót að koma til baka.
Við erum með sterkan hóp hér fyrir
sunnan og vonandi koma þau sem
fyrst í vinnu og við getum farið að
taka á móti ferðamönnum að nýju,“
segir Rúnar. „Ísland er fallegt land og
það er ekkert að fara að breytast. Um
leið og fólk fer að ferðast, þá held ég
að það komi til okkar.“
Þau Bylgja og Rúnar leggja áherslu
á samstöðu, að allir standi saman og
þá komumst við í gegnum þennan
skafl sem nú er til vandræða.
Fimmtugsafmælinu
frestað til næsta árs
Árgangur 1970 mætti á hátíðarsvæði Ljósanætur í Reykjanesbæ í vikunni, þrátt fyrir að engin verði Ljósanóttin í ár. Allt fyrir mynd í Víkurfréttir :)
FIMMTUDAG
KL. 20:30
HRINGBRAU
T OG VF.ISBJÓR
ÞANG 19
70
6 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár