Víkurfréttir - 02.09.2020, Blaðsíða 92
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
Mundi
Á ekki að henda í eins og
eina áskrift og fá mig inn um
lúguna í hverri viku?
Að pissa í skóinn sinn
Árið 2020 hefur reynst okkur erfitt. Covid hefur og mun áfram draga stóran
efnahagslegan dilk á eftir sér. Við Íslendingar náðum þó að nýta sumarið
í ferðalög innanlands eftir fyrri hálfleik Covid-faraldursins, eins og seðla-
bankastjóri orðar það. Ekkert dró úr nýskráningum hjólhýsa og ferðavagna
þrátt fyrir blikur á lofti og flest hótel á landsbyggðinni seldust upp í júlí. Allir
kepptust um besta sumarfríiið innanlands á samfélagsmiðlum og skreyttu
bílana sína með fulldempuðum fjallahjólum. Skrýtnir tímar vissulega.
Nú er áhyggjulítið sumarfrí yfir-
staðið og haustið að ganga í garð.
Við tekur hversdagurinn og ís-
kaldur raunveruleikinn fylgir í kjöl-
farið. Í staðinn fyrir að hitamet og
Stuðlagil séu í fréttum þá taka við
fréttir af auknu atvinnuleysi og vax-
andi áhyggjur af efnahagsástandinu.
Í þessu ljósi þá lítur út fyrir að fjör-
kippur og áhyggjuleysi sumarsins
hafi verið haganlega sviðsett af
Seðlabanka Íslands og hinu opinbera
til að hvíla okkur aðeins fyrir næstu
Covid-umferð.
Það verður að hrósa hinu opinbera
fyrir þær aðgerðir sem miðuðu að
því að viðhalda einkaneyslu og draga
úr áhyggjum hjá okkur yfir sumar-
tímann. En betur má ef duga skal.
Aðgerðir ríkisstjórnar og Seðlabanka
urðu til þess að landsmenn eru búnir
að taka út yfir tólf milljarða króna
fyrirfram úr séreignasjóðum, bankar
frystu lán fram á haustið og Seðla-
bankinn stórlækkaði stýrivexti svo
eitthvað sé nefnt. Þessi stýrivaxta-
lækkun gerði það að verkum að
vextir húsnæðislána lækkuðu mikið
og flestallir fasteignaeigendur eru
annað hvort búnir eða eru að íhuga
að endurfjármagna lán sín á óverð-
tryggðum, breytilegum vöxtum.
Frysting lána jók kaupmátt heimila
umtalsvert en aðeins í takmarkaðan
tíma. Allt þetta létti undir með
heimilum og jók þannig kaupmátt
tímabundið með það að markmiði
að brúa þetta óvissutímabil.
Vandamálið sem við stöndum
frammi fyrir núna er að að óvissu-
tímabilið virðist ætla að verða mikið
lengra en brúin. Nýlega varaði að-
stoðarseðlabankastjóri við því að
greiðslubyrði nýendurfjármagnaðra
lána gæti hækkað um 50% þegar, og
ef, Seðlabankinn hækkar vexti aftur.
Meginvextir SÍ eru núna 1,0% en
jafnvægismeginvextir SÍ eru 4,5%.
Hækkun vaxta hjá Seðlabankanum
mun auka greiðslubyrði strax hjá
þeim sem fjármagna húsnæði sitt
með óverðtryggðum lánum með
breytilegum vöxtum, sem notið
hafa mikilla vinsælda. Verðbólga
virðist vera að láta á sér kræla aftur
í kjölfar veikingar krónunnar og
hækkun olíuverðs. Búist er við því
að atvinnuleysi fari um og yfir 10%
eftir því sem líður á haustið og öll
lán sem fryst voru tímabundið hjá
heimilunum í landinu eru í þann
mund að fara dúkka aftur upp í
heimabankanum, rétt eins og fyrsta
haustlægðin.
Það er því ljóst að brúin góða nær
ekki einu sinni hálfa leið yfir dauða-
dalinn. Fallið gæti orðið mörgum
hátt og þungt og ljóst að mörg heimili
munu eiga erfitt með að ná endum
saman. Nú er komin önnur umferð,
dekkri en fyrri. Það er ljóst að stjórn-
völd verða að leggja út línur fyrir al-
menning í landinu, ekki til skemmri
tíma í þetta skipti. Við getum ekki
pissað í skóinn okkar. Það þarf að
taka þetta efnahagsástand sem nú
blasir við okkur í kjölfar Covid mun
fastari tökum.
LO
KAO
RÐ
INGU BIRNU RAGNARSDÓTTUR
Þrátt fyrir að Ljósanótt verði ekki þetta árið
þá ætlum við að bjóða upp á
í verslunum okkar og veitingastöðum
2.–5. september.
Venjulegur opnunartími.
Ljósanæturafslætti og tilboð
OFURFÆÐA
ÚR FJÖRUNNI
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS