Víkurfréttir - 02.09.2020, Blaðsíða 88
Ríkisábyrgð á Icelandair
Fjárlaganefnd Alþingis fjallar nú um ríkisábyrgð til handa Icelandair Group upp á fimmtán
milljarða króna vegna tekjufalls fyrirtækisins í tengslum við veirufaraldurinn. Málið kemur
til afgreiðslu á Alþingi í þessari viku.
Árið 2020 er versta ár í sögu flugrekstrar
í heiminum. Telja má afrek að félagið hafi
staðið af sér þá storma sem hafa geisað und-
anfarna mánuði. Framundan er fjárhagsleg
endurskipulagning og öflun nýs hlutafjár
til að tryggja áframhaldandi rekstur fyrir-
tækisins. Aðkoma ríkisins er háð því að full-
nægjandi árangur náist í þeim efnum. Mikil-
vægir áfangar eru nú þegar í höfn. Búið er
að semja við allar flugstéttir og gilda samn-
ingar til 2025. Félagið hefur fengið greiddar
skaðabætur frá Boeing-flugframleiðandanum
vegna svonefndra MAX-véla. Auk þess hefur
félagið náð mikilvægum samningum við lán-
veitendur.
Lánafyrirgreiðsla ríkisins er ætluð til þrau-
tavara. Ekki er víst að hún verði nýtt og von-
andi þarf ekki að koma til þess. Fyrirtækið
getur farið inn í sumarið 2021 án þess að
draga á lánsheimild ríkisins. Það var rekið
með hagnaði árin 2011 til 2018 og á árunum
2011 til 2019 skilaði það þremur milljörðum
króna í ríkissjóð. Lausafjárstaða félagsins var
sterk fyrir veirufaraldurinn. Mikilvægt er að
hafa þetta í huga frá sjónarhóli skattgreið-
enda. Lánsheimildin er nauðsynleg svo takist
að safna því hlutafé sem þarf til að tryggja
reksturinn. Stjórnvöld taka mikla áhættu ef
ekki verður af stuðningi ríkisins í formi láns-
heimildar. Margt getur tapast fyrir þjóðar-
búið ef félagið yrði gjaldþrota. Umfang þess
er mikið í íslensku hagkerfi. Það er tæknilega
flókið að endurreisa gjaldþrota félag. Margt
tapast í því ferli.
Innan fyrirtækisins er mikill mannauður.
Þar starfar fólk sem hefur lagt mikið á sig til
þess að gera veg þess sem mestan. Það hefur
á að skipa mikilvægri þekkingu og reynslu
sem mun skipta sköpum í því að viðspyrnan
verði öflug þegar veirufaraldrinum lýkur.
Þetta skiptir miklu máli fyrir samfélagið.
Hlutverk ríkisins mjög mikilvægt
Við Íslendingar erum verulega háðir flug-
samgöngum og meira en margar aðrar þjóðir.
Ísland er eyland sem á allt undir því að hér
ríki traustar og samfelldar samgöngur fyrir
vöru- og fólksflutninga. Hér er um ríka sam-
félagslega hagsmuni að ræða. Auk þess um-
talsverða beina fjárhagslega hagsmuni fyrir
fjölda launafólks og fyrirtækja. Árið 2019
voru rúmlega 4.700 stöðugildi hjá fyrir-
tækinu. Þær raddir hafa heyrst, meðal annars
á Alþingi, að fyrirgreiðsla ríkisins eigi að vera
í formi hlutafjár í fyrirtækinu eða ríkið eigi
jafnvel að taka það yfir. Þessu er ég ósam-
mála. Hlutafjárleiðin er áhættusöm. Saga
opinbers eignarhalds í flugfélögum er ekki
uppörvandi. Þetta sýnir reynslan frá flestum
nágrannalöndum.
Snertir Suðurnesin sérstaklega
Mál þetta snertir Suðurnesin sérstaklega.
Árið 2019 störfuðu um 400 manns í nýju
flugskýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli. At-
vinnuleysi er hvergi hærra á landinu en á
Suðurnesjum. Í Reykjanesbæ er það um 19%.
Hjá fyrirtækinu starfa fjölmargar konur svo
dæmi sé tekið. Á Suðurnesjum er nú ein kona
af hverjum fimm atvinnulaus.
Með lánsheimildinni er verið er að skapa
grundvöll fyrir því að fjárfestar vilji koma
að félaginu á erfiðum tímum. Það hefur af-
leiðingar ef stjórnvöld sitja aðgerðalaust hjá.
Hlutverk ríkisins er mjög mikilvægt.
Birgir Þórarinsson
Höfundur er þingmaður Miðflokksins
og situr í fjárlaganefnd Alþingis.
Alvarlegt ástand blasir við á atvinnumarkaði á Reykjanesinu. Næstu vikur
og mánuðir verða án efa erfiðir fyrir fjölmargar fjölskyldur og fyrirtæki á
Suðurnesjum. Við erum enn og aftur í þeirri stöðu að vera of háð einni at-
vinnugrein og þegar fjarar undan ferðaþjónustunni blasir við algjört hrun.
Í aðdraganda síðustu bæjarstjórnarkosninga ritaði ég grein þar sem ég lýsti
þeirri skoðun minni að forgangsverkefni sveitarstjórnarmanna í Reykja-
nesbæ væri að skapa aðstæður fyrir fjölbreytt og öflugt atvinnulíf sem
forsenda velferðar og lífsgæða. Við stöndum á tímamótum og á þessum
tímamótum þurfum við á öflugri nýsköpun að halda í atvinnulífinu til að
bregðast við þessum ytri aðstæðum.
Það er ljóst að við höfum sofið á
verðinum og nú skiptir sköpum
að við tökum höndum saman og
fjölgum tækifærunum, ýtum undir
hugvit og tækniþróun við fram-
leiðslu á dýrmætum afurðum en
styðjum jafnframt við fyrirtæki á
svæðinu sem geta blásið til sóknar.
Ein af okkar mestu samfélagslegu
áskorunum eru loftslagsmálin og
þar á Ísland að vera í fararbroddi á
heimsvísu. Á dögunum barst bæjar-
yfirvöldum beiðni frá Carbfix, dótt-
urfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur,
beiðni um aðstöðu til jarðfræðirann-
sókna og kolefnisförgunartilrauna í
nágrenni Helguvíkur. Fyrirtækið
hefur í samstarfi við vísindafólk frá
Háskóla Íslands og erlendis, unnið að
þróun kolefnisförgunaraðferðum þar
sem koldíoxíði er dælt niður í jarðlög
á miklum þrýstingi og þá tekur við
náttúrulegt ferli, þar sem koldíoxíði
er umbreytt í steintegundina silfur-
berg. Helguvík er einn af ákjósanleg-
ustu stöðum sem völ er á til þessara
rannsókna vegna góðra jarðfræði-
legra skilyrða og þar er gnógt af
jarðsjó. Auk þess sem góð hafnarað-
staða er í Helguvík sem opnar mögu-
leikann á innflutningi koldíoxíðs til
niðurdælingar í framtíðinni.
Þessi áhugi CarbFix á að nýta
jarðsjó þann er finnst í Helguvík
opnar augun fyrir öðrum mögu-
leikum í Helguvík. Jarðsjór kann að
vera nýtilegur til fiskeldis á landi og
með bættri þekkingu, aukinni tækni
og nýsköpun er hægt að búa afurðir
sem flestar þjóðir heims sækjast í.
Þörungaræktun úr affalsvatni frá
laxeldi er áhugverður kostur sem
sameinar umhverfisvæna lausn við
hreinsun á affalsvatni og tækifæri í
afurðasköpun. Í Helguvík eru van-
nýtt tækifæri eins og í öllum öðrum
geirum. Leiðir til að skapa hér at-
vinnu með nýjum lausnum í barátt-
unni gegn loftslagsvánni verða enn
mikilvægari á komandi árum.
Við þurfum að opna augun fyrir
þeim atvinnumöguleikum til að
treysta samkeppnishæfni atvinnu-
lífsins. Leiðir til að skapa hér atvinnu
með nýjum lausnum í baráttunni
gegn loftslagsvánni verða enn mikil-
vægari á komandi árum. Orkufrekur
iðnaður kallar á nýjar lausnir til að
draga úr mengun, sjálfbærari mat-
vælaframleiðsla verður ofarlega á
baugi og nýjar lausnir í heilbrigðis-
geiranum geta mögulega leyst mikið
af vanda okkar Suðurnesjamanna.
Á sama tíma hefur aldrei verið
jafn mikilvægt að hið opinbera og
sveitarfélögin styðji af öllum mætti
við kröftug og framsækin fyrirtæki
og einstaklinga sem hyggjast blása til
sóknar og fjárfesta í atvinnusköpun.
Skipasmíðastöð Njarðvíkur hefur
kynnt áform um uppbyggingu skipa-
þjónustuklasa í Njarðvíkurhöfn. Í því
felst uppbygging upptökumannvirkis
á svæðinu og bygging yfirbyggðar
þurrkvíar sem mun umbylta við-
gerðar og viðhaldsaðstöðu stærri
skipa. Verkefnið getur skapað fjölda
varanlegra og afleiddra starfa.
Stuðningur ríkisins við verk-
efnið við byggingu sjóvarnargarðs
í Njarðvíkurhöfn er nauðsynlegur
eigi verkefnið að ná brautargengi.
Opinbert fjármagn er nauðsynlegt
og því þarf samstillt átak þingmanna
kjördæmisins, ráðuneyta og stofnana
til að tryggja að framkvæmdin verði
að veruleika. Við verðum að draga
lærdóm af þessum fordæmalausu
ástandi sem skapaðist í Covid og
treysta aðrar stoðir atvinnulífsins.
Nú er mikilvægt að við hér á Suð-
urnesjum leitum allra leiða í sam-
starfi við einstaklinga og fyrirtæki
til að efla auðlindasköpun á svæðinu.
Leiðir til að skapa hér atvinnu í vist-
vænu, hugdjörfu og öflugu samfélagi.
Tækifærin eru til staðar á svæðinu
en nú liggur á að við virkjum mann-
auðinn sem er dýrmætasta auðlind
hvers samfélags.
Hanna Björg Konráðsdóttir,
varabæjarfulltrúi og
varaformaður stjórnar
Reykjaneshafnar.
Blásum til sóknar með nýsköpun!
28 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár