Víkurfréttir - 02.09.2020, Blaðsíða 80
Söngvarinn Arnar Dór hefur sent
frá sér lagið Carolyn. Lagið er eftir
Gunnar Inga Guðmundsson við
texta eftir Erin Brassfiled Bourke.
Það er svo Helgi Hannesson sem
annast píanóleik.
Lagið var til þegar Gunnar Ingi
var við nám í Songwriting í Berklee
College of Music í Boston í Banda-
ríkjunum veturinn 2017 og var lagið
eitt af skilaverkefnum vetrarins í því
námi. Eftir að námi lauk fór lagið
bara niður í skúffu.
Í september á síðasta ári hafði
Gunnar Ingi samband við æsku-
félaga sinn, Arnar Dór, og bauð
honum lagið. Arnar Dór féll strax
fyrir laginu og var til í slaginn.
Gunnar Ingi fékk til liðs við sig
bandaríska textahöfundinn Erin
Brassfiled Bourke, en saman skipa
þau höfunda teymið Second Hour og
er lagið Carolyn þeirra fyrsta lag og
texti sem þau gera fyrir Arnar Dór.
Fleiri lög eru væntanleg frá höfunda-
teiminu í Second Hour.
„Pælingin var að hafa strengjasveit
og raddanir og stóra útsetningu en
útkoman var einföld útsetning í
piano-pop stíl. Bróðir Arnar, Helgi
Már Hannesson, sá svo um píano-
leik,“ segir Gunnar Ingi í samtali við
Víkurfréttir.
Upptökur á laginu hófust í febrúar
sl. en vegna Covid-19 var gert hlé og
kláruðust upptökur svo í byrjun júni.
Það var Svenni Björgvins sem sá um
upptökur á laginu.
Arnar Dór er silfurverðlaunahafi í
The Voice Ísland og er einnig í hljóm-
sveitinni Draumar.
Lagið er komið á Spotify og hefur
fengið mjög góðar viðtökur víða
um heim og er komið í um 25.000
þúsund hlustanir
Í rafrænni útgáfu Víkurfrétta má
hlusta á lagið Carolyn.
ATVINNA
Blaðberi óskast hjá
Morgunblaðinu.
Upplýsingar veitir
Guðbjörg í síma
8609199
Einnig birt á
www.naudungarsolur.is
Uppboð mun byrja að Vatns-
nesvegi 33, 230 Keflavík,
fimmtudaginn 3. september
nk. kl. 12:15, á eftirfarandi öku-
tækjum, sem hér segir:
ADH87 AZ936 EBM87
FZF61 HHK56 HUM35
JGT49 JSN21 JYE78
MAR36 MHZ89 MTG66
PV408 RU893 RXF36
SVF31 TEZ18 TJM68
TMU30 TPJ05 UYY38
VRK90 ZXG21
Sýslumaðurinn
á Suðurnesjum
27. ágúst 2020
UPPBOÐ
VEGLEGRI
R AFR ÆN
ÚTGÁFA
Hlustaðu á Carolyn
í rafrænni útfáfu
Víkurfrétta á vf.is
Einnig birt á www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfar-
andi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Staðarhraun 54, Grindavík, fnr.
209-1916, þingl. eig. Þórir Sig-
fússon, gerðarbeiðendur ÍL-sjóður
og Grindavíkurbær og Lands-
bankinn hf., þriðjudaginn 8. sept-
ember nk. kl. 09:00.
Leynisbrún 12B, Grindavík, fnr.
209-2052, þingl. eig. Anton Þór
Sigurðsson, gerðarbeiðendur
Vátryggingafélag Íslands hf. og
Grindavíkurbær, þriðjudaginn 8.
september nk. kl. 09:20.
Norðurhóp 42, Grindavík, fnr. 231-
4981, þingl. eig. Olexandra Synya-
kova og Radoslav Cabák, gerðar-
beiðendur Grindavíkurbær og
Húsasmiðjan ehf. og Arion banki
hf., þriðjudaginn 8. september nk.
kl. 09:35.
Austurkot, Sveitarfélagið Vogar,
33,34 ehl. gþ, fnr. 209-6053,
þingl. eig. Aðalsteinn Gunnar Jó-
hannsson, gerðarbeiðandi Íslands-
banki hf., þriðjudaginn 8. sept-
ember nk. kl. 10:10.
Kirkjubraut 32, Njarðvík, 50% ehl.
gþ., fnr. 209-3818, þingl. eig. Bergur
Reynisson, gerðarbeiðandi Sýslu-
maðurinn á Suðurnesjum, þriðju-
daginn 8. september nk. kl. 10:30.
Grænásbraut 604B, Ásbrú, fnr.
230-8880, þingl. eig. Grænás-
braut 604 ehf., gerðarbeiðandi
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun,
þriðjudaginn 8. september nk. kl.
10:40.
Grænásbraut 604B, Ásbrú, fnr.
230-8876, þingl. eig. Grænás-
braut 604 ehf., gerðarbeiðandi
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun,
þriðjudaginn 8. september nk. kl.
10:45.
Skógarbraut 921, Ásbrú, 50% ehl.
gþ, fnr. 230-9264, þingl. eig. Einar
Örn Adolfsson, gerðarbeiðendur
Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves
og Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 8.
september nk. kl. 11:05.
Hjallavegur 1, Njarðvík, fnr. 209-
3412, þingl. eig. Svandís Elín Krist-
bergsdóttir, gerðarbeiðendur Hús-
næðis- og mannvirkjastofnun og
Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn
8. september nk. kl. 11:25.
Gerðavegur 14C, Garði, fnr. 233-
2952, þingl. eig. Jóhannes Ingi
Sigurðsson, gerðarbeiðandi Sýslu-
maðurinn á Norðurlandi ves,
þriðjudaginn 8. september nk. kl.
13:00.
Birkitún 7, Garði, fnr. 229-9871,
þingl. eig. Anna Lísa Jóhannes-
dóttir og Sigurjón Elíasson, gerðar-
beiðandi Íslandsbanki hf., þriðju-
daginn 8. september nk. kl. 13:20.
Hlíðargata 44, Sandgerði, fnr.
209-4812, þingl. eig. Guðrún
Árný Einarsdóttir, gerðarbeiðandi
Landsbankinn hf., þriðjudaginn 8.
september nk. kl. 13:50.
Sýslumaðurinn
á Suðurnesjum
1. september 2020
UPPBOÐ
Alexandra Chernyshova varð í 1. sæti í alþjóðalegri tónskáldakeppni eftir Isaak Dunaj-
evskiyi í Moskvu fyrir tónsmíði sína á 14 lögum fyrir rödd og píanó úr íslensku óperunni
„Skáldið og Biskupsdóttirin“. Óperan er um vináttu Hallgríms Péturssonar og Ragn-
heiðar Brynjólfsdóttur við handrit Guðrúnar Ásmundsdóttur, ljóð eftir Hallgrím Pét-
ursson, Rúnar Kristjánsson, Guðnýju frá Klömbrum, Daða Halldórsson og þjóðvísur frá
13 öld. Óperan var frumsýnd í konsertuppfærslu í Hallgrímskirkju í Saurbæ, Hvalfirði
árið 2014 við góðar undirtektir.
Óperan var flutt síðasta sumar á tónleikum „Russian
Souvenir: Introducing Iceland“ í Kamenoostrovskiy
kastala í Petursborg. Árið 2018 var hún flutt í einum
virtasta og elsta tónlistarháskóla Kænugarðs, R. Glier
tónlistarháskólanum. Kænugarður er einnig heimabær
Alexöndru og þetta er einn af skólunum sem hún
stundaði tónlistarnám í, uppfærsla var í tilefni af 150
ára afmæli háskólans. Óperan var þýdd og sungin á
úkraínsku með hljómsveit, kór og einsöngvurum.
Áður hafði óperan verið kynnt í einum virtasta skóla
Moskvu, Gnessin Tónlistarakademíunni og sungin á ís-
lensku. Á þessu ári tók Alexandra þátt í World Folk Vi-
sion keppni með lagið Ave María úr óperunni „Skáldið
og Biskupsdóttirin“ í flutningi Alexöndru, lagið komst
inn á topp 10. Árið 2019 varð Alexandra Chernyshova
í 2. sæti í alþjóðlegri tónskáldakeppni í Moskvu fyrir
tónsmíði sína á óperuballettinum „Ævintýrið um
norðurljósin“, en óperan var þýdd yfir á rússnesku.
Óperan var frumsýnd á Íslandi í Norðurljósasal, Hörpu
fyrir einum og hálfri ári. Að verkinu komu fjölmargir
einsöngvarar, tveir barnakórar ásamt skólakór Stóru-
Vogaskóla, ballettskóla Eddu Scheving og 16 manna
kammerhljómsveit.
Þetta er í fyrsta sinn sem Alexandra vinnur fyrsta
sæti í tónsmíði og sigrar á alþjóðalega vísu í Moskvu,
einni af stærstu höfuðborgum heims fyrir klassíska
tónlist, sem eiga tónskáld eins og Pjotr Tchaikovskiy,
Sergei Rachmaninov, Rimskiy - Korsakov, Sergei
Prokofiev, Dmitry Shostakovich og fleiri.
Tónlistarmenningarbrú
Íslands og Rússlands
Árið 2016 stofnaði Alexandra tónlistarmenning-
arbrú milli Íslands og Rússlands, verkefni sem heitir
„Russian Souvenir“. Alexandra hefur stjórnað þessu
verkefni frá upphafi, verið listrænn stjórnandi og þátt-
takandi í öllum tónleikunum. Í febrúar á þessu ári voru
Tónleikarnir Russian Souvenir: Alexander Pushkin í
Kaldalóni, Hörpu. Þetta voru tónleikar númer tuttugu
og sjö í þessari verkefnaröð. Russian Souvenir er til-
einkað menningarfjársjóði rússneskrar og íslenskrar
tónlistar og tónskálda. Þegar um er að ræða tónleika á
Íslandi er áhersla lögð á rússneska tónlist og tónskáld
og öfugt þegar um tónleika er að ræða í Rússlandi.
Fjölmargir íslenskir og rússneskir tónlistarmenn hafa
tekið þátt í þessu verkefni og með þeim hætti kynnt
menningu síns lands fyrir áhorfendum bæði á Íslandi
og í Rússlandi.
„Skáldið og Biskupsdóttir“
Alexöndru sigraði í alþjóðlegri
tónskáldakeppni í Moskvu
Arnar Dór sendir
frá sér Carolyn
Gunnar Ingi
Arnar Dór
20 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár