Víkurfréttir - 02.09.2020, Blaðsíða 18
Þeir sem eru 50 ára á árinu eru afmælisárgangurinn sem er í aðalhlutverki í árgangagöngunni
á Ljósanótt. Nú er hins vegar engin Ljósanótt og gangan verður ekki farin fyrr en að ári. Hvað
gerir 50 ára árgangurinn þá? Víkurfréttir hittu fyrir hóp ungmenna úr þessum árgangi 1970
á hátíðarsvæðinu á Bakkalág í Keflavík í vikunni. Bylgja Sverrisdóttir og Rúnar Inga Hannah
eru í undirbúningshópi árgangsins. Það lá því beinast við að spyrja hvað eigi að gera á um
Ljósanæturhelgina fyrst engin verði hátíðin?
„Ætli við verðum ekki bara heima með fjöl-
skyldunni og látum þetta bara bíða til betri
tíma. Við ætlum að seinka því um eitt ár að
verða fimmtug, verðum bara 49 ára í eitt ár
í viðbót eins og ein góð sagði í árganginum,“
segir Bylgja í samtali við blaðamann.
– Rúnar, hvað segir þú um þetta?
„Við erum bara fólkið sem eldist ekki neitt.
Þetta er rosalega skrítið. Við ætluðum að
vera svo flott á því og byrjuðum að und-
irbúa okkur í október í fyrra. Við fengum
afrit af dagskrá árgangsins sem varð fimm-
tudur í fyrra og ætluðum að hafa þetta
ljúft og á sömu nótum. Það var allt tilbúið
hjá okkur en svo bara öllu aflýst í upphafi
ágústmánaðar. Þetta er mjög skrítin til-
finning.
Það átti að vera gott partý þar sem við
ætluðum að hittast og borða saman á föstu-
deginum. Það var búið að panta diskótek
og ýmislegt fyrir það og fjörið átti að vera á
föstudeginum. Svo átti að hittast í hádeginu
á laugardegi og borða saman áður en farið
væri í árgangagönguna eins og lög gera ráð
fyrir og fara hingað á hátíðarsvæðið og
skemmta okkur með öllum. Það bíður betri
tíma.“
– Árgangagangan hefur verið einn af föstu
liðunum á Ljósanótt síðustu ár þar sem
allir hittast og hafa gaman. Ljósanótt er
ein af stærstu bæjarhátíðum landsins og
svo er allt í einu skrúfað fyrir allt. Þetta
eru skrítnir tímar, Bylgja.
„Já, þetta eru skrítnir tímar en við bjugg-
umst við þessu. Það hefur þurft að fresta
svo mörgu síðustu vikur og mánuði. En
það kemur önnur Ljósanótt, það er ekki
spurning. Það er verst með árganginn undir
okkur, sem eru fædd 1971. Við í árgangi
1970 vorum svo erfiður árgangur í Keflavík
og það bitnaði svolítið á 71-árganginum. Því
Fimmtugsafmælinu frestað til næsta árs
18 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár