Víkurfréttir - 02.09.2020, Blaðsíða 78
Heimakær kántríbolti með
veiðidellu á háu stigi
– Nafn:
Sigvaldi Arnar Lárusson.
– Árgangur:
1974.
– Fjölskylduhagir:
Giftur, þrjú börn.
– Búseta:
Reykjanesbær.
– Hverra manna ertu
og hvar upp alin?
Mamma mín heitir Kristín Rut og
er ættuð úr Skagafirði og er aga-
lega fínn bakari. Pabbi minn hét
Lárus Kristinsson kallaður Lalli
á sjúkrabílnum og ólst ég upp í
Keflavík. Fyrst á Háaleiti 7 flutti
svo á Eyjavelli 1 og var þar lengst af.
Sumarið 2020
Planið var að fara til Tenerife en
sökum ástandsins þá ferðuðumst
við fjölskyldan talsvert innanlands
í sumar. Létum svo langþráðan
draum rætast og keyptum okkur
heitan pott á pallinn, eins og all-
margir Íslendingar gerðu í ár. Konan
átti svo stórafmæli á árinu og var því
fagnað og svo varð mamma áttræð
og var einnig slegið til veislu þá.
– Hvert var ferðinni
heitið í sumarfrínu?
Sumarfríið hófst á Hofsós ferð en
þar eigum við hús, fórum þaðan í
sumarbústað á Geysi, gerðumst túr-
istar í Reykjavík – leigðum íbúð þar
á meðan guttinn keppti á ReyCup,
aftur á Norðurlandið og tókum
„Demantshringinn“ svokallaða.
Eyddum nokkrum dögum á Akur-
eyri með vinafólki og vorum svo
við veiðar í Norðurá í Borgarfirði
alla verslunarmannahelgina í frá-
bærum félagsskap. Ég veiði mikið
öll sumur fyrir utan þetta sumar
þar sem óvenjulítið var bleytt í
færi, bæti úr því næsta sumar. Svo
fórum við í nokkrar útilegur með
fellihýsið.
– Skipulagðir þú sumarfríið
fyrirfram eða var það
látið ráðast af veðri?
Konan mín sá um alla skipulagningu
og þegar það er gert þá er ekki spurt
um veður. Hlutirnir eru bara skipu-
lagðir gríðarlega vel frá A til Ö.
– Hvaða staður fannst
þér áhugaverðast að
heimsækja í sumar?
Mér fannst virkilega gaman að
skoða Víkingasafnið á Sauðárkróki,
Húsavík var líka skemmtilegt að
heimsækja og Dimmuborgir.
– Hvað kom skemmtilega
á óvart í sumar?
Veðrið lék við okkur allt sumarfríið
og virkilega gaman að ferðast innan-
lands.
Netspj@ll
Ekki sá stæ
rsti!
Sigvaldi Arnar Lárusson ferðaðist innanlands í sumar, fjölskyldan
lét langþráðan draum rætast og keypti heitan pott á pallinn.
Sigvaldi lögga er í netspjalli við Víkurfréttir þessa vikuna.
18 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár