Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 4

Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 4
498 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 505 Margrét Einarsdóttir, Ásta Snorradóttir Geðræn líðan íslenskra ungmenna: Tengsl við vinnu með skóla? Rannsókn byggð á norrænum spurningalista um sjálfsmat geðrænnar líðanar. Rannsóknin var lögð fyrir 2800 ungmenni á aldrinum 13-19 ára. Ungmennin voru spurð hversu oft þau fundu fyrir geðrænum einkennum síðasta árið og þeim skipt í þrjá hópa: sem ekki vinna með skóla, eru hóflegri vinnu með skóla og í mikilli vinnu. Ónógur svefn, depurð og þynglyndi geta haft margvísleg áhrif á daglegt líf unglingsins, dregið úr hugrænni getu og námsár- angri, valdið brottfalli úr skóla, aukið slysahættu og jafnvel leitt til sjálfsvígs. 512 Marta Ólafsdóttir, Arthur Löve, Jón Gunnlaugur Jónasson, Einar Stefán Björnsson Lifrarbólguveira E: Umræða um tvö íslensk tilfelli Lifrarbólga E er veirusjúkdómur sem berst yfirleitt með menguðu vatni og gengur oftast yfir án sértækra inngripa. Hann er algengur á Indlandi og hefur valdið faröldrum til að mynda í Asíu, Afríku og Mexíkó en er sjaldséður á Íslandi. Algengast er að sýkingin berist í saur frá sýktum einstaklingi og dreifist með menguðu vatni á svipaðan hátt og lifrarbólga A. Lifrar- bólguveira E var fyrst uppgötvuð árið 1983 þegar hafin var leit að orsakavaldi lifrarbólgufar- aldurs hjá sovéskum hermönnum í Afganistan. 516 Solveig Magnúsdóttir, Erla Gerður Sveinsdóttir Má bæta árangur af meðferð hjarta- og æðasjúkdóma með aukinni áherslu á svefngæði? Yfirlitsgrein Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengir á Íslandi líkt og annars staðar í þróuðum samfélögum og eru í dag enn helsta orsök dauðsfalla. Áhrif mataræðis og hreyfingar á hjarta- og æða- sjúkdóma eru vel þekkt og um árabil hefur verið lögð áhersla á fræðslu um mikilvægi þess að tileinka sér góðar venjur hvað varðar mataræði og hreyfingu. Hins vegar hefur lítil áhersla verið lögð á mikilvægi reglulegs, endurnærandi svefns til að viðhalda heilbrigði hjarta- og æðakerf- isins. Afleiðingar af þeim samfélagslegu breytingum sem hafa átt sér stað á síðustu áratugum eru meðal annars að þeim hefur fjölgar sem nú sofa skemur til að bregðast við auknum kröfum um lengri vinnutíma, vaktavinnu og samskiptatækni sem gerir það kleift að vera í hnattrænum tengslum allan sólarhringinn. F R Æ Ð I G R E I N A R 11. tölublað · 106. árgangur · 2020 501 Daníel Guðbjartsson Leiðir minnkað interferon ónæmissvar til alvarlegri veikinda vegna COVID-19? Stór alþjóðleg samgreining erfðafræðilegra tengsla- greininga hefur fundið tengsl við algenga erfðabreytileika hjá IFNAR1-IFNAR2 og TYK2 erfðavísunum sem styðja þá kenningu að minnkað interferon ónæmissvar auki alvarleika COVID-19 veikinda. 503 Sigurður Ólafsson Nóbelsverðlaun í læknis- fræði fyrir uppgötvun lifrarbólguveiru C Uppgötvanir þessara vísinda- manna og rannsóknarteyma þeirra hafa haft gríðarlega þýð- ingu. Í kjölfarið var unnt að þróa mótefnapróf til greiningar á veirunni. Nú var unnt að skima blóð í blóð- bönkum og lifrarbólga eftir blóðgjöf heyrir sögunni til í flestum heims- hlutum. z L E I Ð A R A R Palli var einn í heiminum Myndin á kápunni er 45 x 40 sentimetrar að stærð, máluð með olíu á hörstriga. Hún var unn- in í fyrradag, gær, og í dag, nánar tiltekið 23.-25. október 2020. Nafn hennar er „Palli var einn í heiminum“ en hugmyndin og fyrirmyndin er sótt úr samnefndri barnabók (1942) eftir Jens Sigsgaard, myndskreytt af Arne Ungermann. Þrándur Þórarinsson málaði myndina fyrir Læknablaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.