Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - nov. 2020, Síða 34

Læknablaðið - nov. 2020, Síða 34
528 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 „Aðgerðirnar með þjarka á míturlokur í hjarta ganga betur og bati sjúklinga tekur mun styttri tíma en þegar skorið er á brjóst- holið og lokurnar lagaðar,“ segir Arnar Geirsson, yfirlæknir og prófessor hjartaskurðdeildar Yale. Fjögur ár eru síðan Arnar starf- aði um fjögurra ára skeið á Landspítala. Hann kaus að fara aftur til starfa við Yale og segir tækifærin þar hafa verið fleiri. „7-8% míturlokuaðgerða eru gerðar með þessari róbotatækni og Yale gerir mikið af þeim. Hér gerum við 200-250 míturloku- aðgerðir á ári. Bæði lokuviðgerðir og lokuskipti eru gerðar ýmist á venjulegan hátt gegnum brjóstbeinsskurð, með þjarka eða svokölluðum hægri brjóstholsskurði,“ lýsir Arnar. „Ég geri um 100 míturlokuaðgerðir á ári á mismunandi hátt,“ segir hann þar sem við ræðum saman í gegnum fjarfundarbún- aðinn Zoom. Hann á skrifstofu sinni heima fyrir í New Haven. Blaðamaður við eyjuna í eldhúsi sínu í Kópavogi. „Fyrir tveimur árum ákváðum við að þróa prógramm hérna þar sem við notum da Vinci-þjarka við míturlokuaðgerðir. Þessar aðgerðir eru óvíða gerðar með þessum hætti svo við undirbjugg- um okkur vel þegar við ákváðum að slá til,“ segir hann. Lítill skurður og batinn skjótur Helsti kostur tækninnar er smáskurður, 2-3 sentimetra langur. „Þetta er lítill skurður á hægri hluta brjóstbeinsins og það er hægt að gera við lokuna á einfaldan hátt þegar maður hefur náð tökum á tækninni,“ segir hann. Flestir sjúklingar eru um þrjá daga á spítala eftir aðgerð. Áður lágu þeir 5-6 daga og voru 5-6 vikur að ná fullum bata. „Flestir eru komnir aftur til vinnu og til í hvað sem er eftir tvær til fjórar vikur ef róbotinn er notaður.“ Arnari finnst útkoman einnig betri með róbotanum heldur en í opinni aðgerð. „Ástæðan er fyrst og fremst sú að auðveldara er að sjá lokuna og strúktúrinn í kring með þjarkanum. Stækkunin er tíföld og þrívíddarmynd á skjánum.“ Hann bendir þó á að þótt honum finnist útkoman betri eigi enn eftir að koma reynsla á hana til lengri tíma. Arnar segir að da Vinci Xi-þjarkinn sé af sömu tegund og sá sem notaður er á Landspítala. „Þegar ég var heima notuðum við hann til þess að gera kransæðaaðgerðir. Við gerðum 5 eða 6 þannig aðgerðir. En aðgerð á míturlokunum er að mörgu leyti flóknara inngrip.“ Tækifærin toguðu hann út En af hverju fór hann aftur út árið 2016 eftir árin fjögur heima? Fleiri tækifæri, svarar hann og bendir einnig á að áður en hann kom heim árið 2012 hafði hann verið í 14 ár úti. Hann lýsir því hvernig hann hafi vanist kerfinu á Yale-háskólasjúkrahúsinu. Ríkari stuðningur sé frá spítalanum sjálfum ytra en hér heima, bæði frá deildum og háskólanum. „Við fjölskyldan vorum á mörkunum að vera áfram heima. En við ákváðum að slá til þegar mér var boðið að koma út aftur og taka við þessum lokuskurðlækningum.“ Hann hafi séð leið til að vaxa í starfi, verða yfirlæknir á deildinni, sem hann svo varð árið 2017. „Lífsstíll hjartaskurðlækna í Bandaríkjunum er góður. Þótt við vinnum mikið hefur maður það gott. Tækifæri til rannsókna fundust mér fleiri en á Íslandi og framgangur í Yale-háskóla var að mörgu leyti einfaldari en framgangur við læknadeild Háskóla Íslands,“ segir hann. „Mér fannst gott að vera og vinna heima á Íslandi. Margt gott fólk þar og í rauninni góð þjónusta sem boðið er upp á á Landspítala,“ segir hann en viðurkennir um leið að honum hafi þótt erfitt að aðlagast lífinu aftur heima eftir svona langa veru erlendis. V I Ð T A L Arnar Geirsson, yfirlæknir hjartaskurðdeildar Yale, segir míturlokuaðgerðir sem gerðar eru með da Vinci Xi-þjarka á þessu virta háskólasjúkrahúsi í Bandaríkjunum flýta bata sjúklinga svo um munar enda inngripið mun minna en með skurðaðgerð. Læknablaðið ræddi við Arnar um starfið, aðgerðirnar og tímann þegar hann kom heim og starfaði á Landspítala ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Betri útkoma með þjarka en með opinni skurðaðgerð á hjartalokum Hlustið á viðtalið á hlaðvarpi Læknablaðsins

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.