Læknablaðið - sep. 2020, Síða 3
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 389
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Magnús Gottfreðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Elsa B. Valsdóttir
Gerður Gröndal
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Margrét Ólafía Tómasdóttir
Magnús Haraldsson
Sigurbergur Kárason
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Sólveig Jóhannsdóttir
solveig@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
1850
Prentun og bókband
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og
geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem
á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda
gagnagrunna: Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science Edition, Scop-
us og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Fleiri fá hjálp vegna
ópíóíðafíknar
185 einstaklingar eru í lyfjameðferð við ópíóíða-
fíkn á göngudeildinni á Vogi. „Þeir hafa aldrei
verið fleiri,“ segir Valgerður Rúnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ. Hún hvetur
heilbrigðisstarfsfólk til að vera á varðbergi gagn-
vart lyfja- og áfengisneyslu skjólstæðinga sinna
nú í kórónuveirufaraldrinum. Samtalið opni á
möguleikann til að grípa inn í vandann.
„Síðustu ár hefur ópíóíðaneysla aukist,“ segir
hún. „Fleira fólk glímir við vanda vegna sterkra
verkjalyfja: contalgíns, oxycontíns, tramadóls og
kódeinlyfja. Flestir taka lyfin inn en við sjáum
merki þess að fleiri reyki þau en áður.“ Hér á landi
noti flestir lyfseðilsskyld lyf, en erlendis skipi
heróín neytendur einnig hópinn.
Hún segir fólkið mjög lasið. „Það kemur tvöfalt
oftar í endurmeðferð. Er mjög veikt og við sjáum
í vaxandi mæli yngra fólk í hópnum. Fólk á milli
tvítugs og þrítugs.“ Fólkið sé í lyfjameðferð við
fíkn sinni og nái þannig bata.
Valgerður segir mikilvægt í þessum heimsfar-
aldri að ríkið standi þétt við bak meðferðarstofn-
ana. Þótt enn hafi ásóknin ekki aukist í þjónustuna
sé ljóst að óvissan sem fylgi faraldrinum hafi aukið
á vanda margra. Fólk sinni ekki daglegri rútínu, sé
mikið heima.
„Við sjáum margt fólk á miðjum aldri núna
sem hefur drukkið á hverjum degi í mjög langan
tíma,“ segir hún. „Ég hef áhyggjur af framhaldinu.
Margir hafa verið í biðstöðu og vandinn versnað.“
Hún tekur þó fram að aðgerðir yfirvalda sem
skerða aðgengi að vímugjöfum hafi haft góð áhrif
á samfélagið. „Fjöldatakmarkanir og lokanir hafa
meðal annars fækkað tækifærum til skemmtana
með áfengi.“ Áhugavert væri að sjá rannsóknir á
heildaráhrifunum. „Ég tel að þessar aðgerðir séu
mjög áhrifamiklar. Þær hafa mikil áhrif á heildina.“
Valgerður er hugsi yfir tvískinnungnum sem
henni finnst birtast í heimsbaráttunni gegn
COVID-19. „Hin stórkostlegu viðbrögð við far-
aldrinum kalla á að fólk vakni líka af sinnuleysi
gagnvart ýmsum vímugjöfum sem leggja fleiri en
faraldurinn ár hvert,“ segir hún.
„Það sem af er ári hafa 800.000 látist úr COVID-19.
Heimurinn hefur snúist á hvolf vegna veirunnar. Á
ári hverju deyja 8 milljónir af tóbaksreykingum og
þrjár milljónir úr ofneyslu áfengis samkvæmt töl-
um frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. En við erum
samdauna því og afar lítil stemmning til að taka á
þeim vanda með samtakamætti heimsins.“
Árið hefur verið afar róstusamt á meðferðar-
stofnuninni. Óvæntar uppsagnir leiddu til þess að
hún sagði sjálf upp en dró síðar uppsögn til baka
vegna áskorana starfsfólks. Þá urðu, að segja má,
kynslóðaskipti þegar Þórarinn Tyrfingsson, fyrr-
verandi yfirlæknir og formaður SÁÁ, náði ekki
kjöri til formennsku samtakanna heldur Einar
Hermannsson, og ný framkvæmdastjórn samtak-
anna tók við í júlí 2020.
„Langflest erum við í þeim gír að standa saman
og sinna okkar verkefni betur og betur,“ segir
Valgerður. Tíminn hafi verið lýjandi fyrir alla og
óvissan tekið á. Þau haldi sínu striki. „Já, við starfs-
fólkið erum mjög brött og hlökkum til að halda
áfram í okkar verkefnum.“
Tveggja metra reglan, fjarfundabúnaður og
fjöldatakmarkanir hjálpi þeim að sinna sjúk-
lingunum áfram þótt rekstur stofnunarinnar verði
krefjandi í vetur vegna niðurskurðar og tekju-
missis. Enn hafi til að mynda ekki tekist að selja
álfinn, sem venjulega hafi skilað tugum milljóna
í reksturinn. Samþykkt hafi verið í vor að skera
enn frekar niður, eða um 125 milljónir króna. Með-
ferðarþjónusta þeirra sé mikilvæg nú þegar huga
þurfi að geðheilbrigði og heilsu landsmanna.
„Þjónusta SÁÁ er mjög mikilvægur og stór
hlekkur í velferðarþjónustunni allri,“ segir hún.
„Svo sannarlega finnst mér að yfirvöld eigi að veita
okkur ennþá meiri athygli og tryggja okkar þjón-
ustu.“
Valgerður var í fríi þegar blaðið náði tali af henni. Hún segir
krefjandi tíma framundan í rekstri SÁÁ. Mynd/Flavio Paltenghi
Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri
lækninga hjá SÁÁ, hvetur heilbrigðisstarfsfólk til að
vera á varðbergi gagnvart lyfja- og áfengisneyslu
skjólstæðinga sinna. Þau sjái fleiri á miðjum aldri í
daglegri áfengisneyslu en fyrir COVID-19-faraldurinn
og metfjöldi fái nú lyf við ópíóíðafíkn
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
▼
PP
-X
A
R-
IS
-0
02
6-
1
M
aí
2
02
0
X
A
R
I0
0
0
2
–
B
ilb
o*án lokusjúkdóms. **ROCKET AF. NOAC = Segavarnarlyf til inntöku sem ekki eru K-vítamínhemlar.
Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto, nóvember 2019 . 2. Samantekt á eiginleikum
lyfs Pradaxa, Eliquis, Lixiana.
Verkun og öryggi Xarelto, saman-
borið við önnur NOAC lyf, hafa
verið rannsökuð í sjúklingaþýði:1, 2**
• með meiri hættu á heilaslagi
• þar sem 40 % voru með sykursýki
Verndaðu það sem er
dýrmætt sjúklingum með
gáttatif* og sykursýki
DÝRMÆTAR STUNDIR
Sagan er ekki endilega ný.
En þetta er sagan hans afa.
XARI0002_Xarelto_SPAF_A4_IS.indd 1 2020-05-18 10:19