Læknablaðið - sep. 2020, Side 9
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 395
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Thor Aspelund
tölfræðingur
Miðstöð lýðheilsuvísindum,
Háskóla Íslands –
Hjartavernd
thor@hi.is
Það sem ég tala um þegar ég
tala um COVID-19
What I talk about when I
talk about COVID-19
Thor Aspelund PhD
Statistician
University of Iceland –
Centre of Public Health
Sciences
Icelandic Heart Association
Hvernig er hægt að vera
viss um að sigra faraldur?
Hvað þarf eiginlega til?
10.17992/lbl.2020.09.594
Menningarnótt 2020 féll í skugga kórónuveirunn-
nar og Reykjavíkurmaraþonið féll niður. Þetta hefur
verið mikilvægur viðburður í fjölskyldulífinu. Ekki
var mikið talað um hlaup,1 en því meira um farald-
ur sjúkdómsins COVID-19 sem veiran SARS-CoV-2
veldur. Hann hófst á Íslandi með fyrsta greinda til-
fellinu 28. febrúar 2020. Ég mun alltaf muna þessa
dagsetningu. Ártalið 2020 mun svo seint gleymast.
Það verður fyrir okkur eins og 1918 fyrir fyrri kyn-
slóðir. Ártal tengt við spænsku veikina og aðrar
hörmungar.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafði sam-
band við Unni Önnu Valdimarsdóttur prófessor og
samstarfsmann minn í Miðstöð í lýðheilsuvísindum
við Háskóla Íslands 12. mars þegar tilfellin voru
komin yfir 100. Hugmyndin var að ræða aðkomu
okkar að því að spá í hvert stefndi og um álag á heil-
brigðiskerfið.
Konan mín, sem er læknir, hafði spurt mig mánuði
áður hvort ég þyrfti ekki að skoða þennan faraldur.
Hún hafði verið hugsi yfir grein kínverska sendi-
herrans á Íslandi í Morgunblaðinu 8. febrúar sem bar
titilinn: „Fullviss um fullnaðarsigur í baráttunni við
kórónuvírusinn.“2 Hvernig er hægt að vera viss um
að sigra faraldur? Hvað þarf eiginlega til? Maður var
grunlaus um heimsfaraldur. Tveimur árum áður, eða
11. mars 2018, hafði ég samt fylgt lækni og prófessor
við HÍ um Þjóðminjasafnið með syni mínum á 13. ári
og fengið eftirminnilegan fyrirlestur um spænsku
veikina. Man líka að meðalaldurinn í salnum snar-
lækkaði þegar við feðgar gengum inn.
En ákveðið var að halda fund. Einmitt 12. mars
hafði grein birst í forsal medrxiv.org sem kallað-
ist „Generalized logistic growth modeling of the
COVID-19 outbreak in 29 provinces in China and in
the rest of the world.“3 Greinin sýndi svipaða hegð-
un faraldursins í Kína og Suður-Kóreu. Fyrstu bylgju
var þá lokið í Kína og Suður-Kórea var á niðurleið.
Þetta gaf von um að faraldurinn á Íslandi mundi
geta fylgt hliðstæðri braut, það er fylgt lógístískum
vexti. Ef stjórn næðist.
Þessu má líkja við vaxtarferil barna. Hvert land
ætti að eiga sinn feril ef stjórn næðist á faraldrinum.
Ef land beygði af ferlinum væri það vísbending um
að það gengi miður vel. Alveg eins og hjá barni sem
beygir af „kúrfu“. Verkefnið mundi kalla á að nálgast
gögn annarra landa og nota þau til að meta mögu-
lega vaxtarferla og setja feril faraldursins á Íslandi
í samhengi. Þetta fellur undir hugmyndafræðina
um stigveldislíkön (hierarchical models). Ég tengdi við
hliðstæðuna frá rannsóknum í Hjartavernd á far-
aldri kransæðasjúkdóma sem gekk niður í svipuðum
takti hér og í þeim löndum sem tóku til aðgerða gegn
sjúkdómnum með innleiðingu lýðheilsuaðgerða.4
Brynjólfur Gauti Jónsson tölfræðinemi og starfs-
maður við Tölfræðiráðgjöf Heilbrigðisvísindastofn-
unar HÍ og í rannsóknarverkefni hjá Hjartavernd
vann hratt með líkön og gögn og setti þau fram á
myndrænan hátt. Brynjólfur var að vinna með Birgi
Hrafnkelssyni prófessor í tölfræði við Raunvísinda-
deild HÍ með stigveldislíkön. Honum fannst eðlilegt
að setja verkefnið í þann farveg strax.
Skemmst er frá því að segja að til varð stigveld-
is-spálíkan á nokkrum dögum. Það var kynnt fyrir
ríkisstjórninni og þríeykinu þann 19. mars í stjórn-
arráðinu. Fyrsta spáin var frekar lág um líklegan
fjölda, eða undir 1000 greind smit með efri mörk
við rúmlega 2000. Forsætisráðherrann okkar, Katrín
Jakobs dóttir, treysti varlega spánni um fjöldann
samkvæmt líklegustu spá. Enda tók faraldurinn svo
kipp næstu daga. Hins vegar var alltaf skilningur
á óvissunni og að spár yrðu uppfærðar hratt með
nýjum gögnum. Enginn vanmat hættuna og þríeyk-
ið miðaði aðgerðir við efri mörk. Næstu daga voru
aðgerðir hertar með 20 manna
samkomutakmörkunum þann 24.
mars. Um viku eftir það var far-
aldurinn kominn á ákveðna braut
og hljómaði spáin 2. apríl uppá
væntanlega fjölda greindra smita
um rúmlega 1800 manns. Það varð
raunin við lok fyrstu bylgju í maí 2020. Mikilvægt
er að hafa í huga að án aðgerða hefðu veikindi og
dauðsföll á Íslandi getað nálgast hliðstæðu við
spænsku veikina 1918 samkvæmt sviðsmyndum frá
Imperial College.5
Spá fyrir álag á heilbrigðiskerfið varðandi inn-
lagnir og gjörgæslu reyndist góð. Hins vegar urðu
færri inniliggjandi en við spáðum. Þetta frávik frá
„kúrfu“ tókum við sem merki um árangur COVID-
göngudeildar Landspítala við að sinna þeim sem
voru veikir og forða þeim frá innlögn.
Það gekk vel að spá um framgang faraldursins á
Íslandi af því að gagnaflæði var gott og mælingar
sem Íslensk erfðagreining gerði sýndu að ekki var
mikið um samfélagssmit umfram það sem var greint
hjá fólki með einkenni á Landspítala. Faraldurinn
fylgdi kúrfu.
Ég bíð spenntur eftir bóluefninu til að geta hlaup-
ið í kös á meðal 1000 þátttakenda í Reykjavíkurmara-
þoni og talað um hlaup á Menningarnótt.
alvogen.is
RIZATRIPTAN ALVOGEN
FÆST ÁN LYFSEÐILS Í NÆSTA APÓTEKI | LESIÐ FYLGISEÐILINN FYRIR NOTKUN
VIÐ MÍGRENI
INNIHELDUR RIZATRIPTAN HRÖÐ VERKUN MUNNDREIFITÖFLUR Í LAUSASÖLU
Rizatriptan 10 mg, munndreifitöflur, 2 stk. Virkt efni: Rizatriptan.
Ábending: Bráð meðferð við höfuðverk tengdum mígreniköstum, með
eða án fyrirboða fyrir fullorðna. Taka skal Rizatriptan Alvogen eins fljótt
og hægt er eftir að mígreniseinkenni byrja. Ekki skal nota lyfið
fyrirbyggjandi til að koma í veg fyrir mígrenikast. Ekki taka meira en tvo
skammta af Rizatriptan Alvogen á sólarhring. Það eiga einnig að líða
minnst 2 klst. á milli skammta. Ef ástandið versnar, skal leita til
læknis. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir
notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari
upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
K
O
N
T
O
R
R
E
Y
K
J
A
V
IK
/
R
IZ
.L
.A
.2
0
2
0
.0
0
0
7
.0
1
FÆST NÚ ÁN LYFSEÐILS
Í NÆSTA APÓTEKI
Heimildir
1. Murakami H. Það sem ég tala um þegar ég tala um hlaup: endurminningar. Benedikt bókaútgáfa,
Reykjavík 2016.
2. Zhijian J. Fullviss um fullnaðarsigur í baráttunni við kórónuvírusinn. Morgunblaðið 2020: 8. febrúar.
3. Wu K, Darcet D, Wang Q, Sornette D. Generalized logistic growth modeling of the COVID-19 outbreak:
comparing the dynamics in the 29 provinces in China and in the rest of the world. Nonlinear Dynamics. 2020.
4. Andersen K, Aspelund T, Guðmundsson EF, et al. Yfirlitsgrein. Úr gögnum Hjartaverndar: Faraldsfræði
kransæðasjúkdóma á Íslandi í hálfa öld. Læknablaðið 2017; 103: 411-20.
5. Walker PGT, Whittaker C, Watson OJ, et al. The impact of COVID-19 and strategies for mitigation and supp-
ression in low- and middle-income countries. Science 2020; 369: 413.