Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 11

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 11
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 397 Samanburður á greiningu og meðferð ífarandi brjóstakrabbameina milli Íslands og Svíþjóðar Heimildir: 1. ELIQUIS (apixaban). Samantekt á eiginleikum lyfs. 2. Agnelli et al. New England Journal of Medicine 2013;369:799-808 3. Agnelli G et al. New England Journal of Medicine 2013;368:699-708 PP-ELI-EUR-1499 / PP-ELI-DNK-0326 / PFI-20-03-01 Mars 2020 MEÐFERÐ OG FORVÖRN GEGN ENDURTEKINNI SEGAMYNDUN: HVAÐA ATRIÐI SKIPTA ÞIG MÁLI VARÐANDI VERKUN OG ÖRYGGI? Veldu bæði verkun og öryggi með ELIQUIS Byrjaðu og haltu áfram með ELIQUIS, bæði sem meðferð og sem forvörn gegn endurtekinni segamyndun í djúplægum bláæðum og/eða lungnasegareki (DVT/PE)1 Meðferð til inntöku, hraður verkunarháttur og ekki þörf á að hefja meðferð með LMWH stungulyfjum1 • Meðferð við DVT/PE: ELIQUIS sýnir marktæka áhættuminnkun hvað varðar meiriháttar blæðingar í samanburði við enoxaparín/warfarín og sambærilega verkun2 • Forvörn gegn endurteknu DVT/PE: ELIQUIS sýnir marktæka yfirburði verkunar í samanburði við lyfleysu og sambærilega tíðni meiriháttar blæðinga3 Inngangur Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein sem greinist hjá konum í öllum heiminum.1 Árin 2012-2016 greindust að meðal- tali 211 konur á ári með brjóstakrabbamein á Íslandi, og í Svíþjóð greindust að meðaltali 7240 konur. Nýgengi brjóstakrabbameina er sambærilegt á Íslandi og í Svíþjóð en brjóstakrabbamein eru um 27% af öllum greindum krabbameinum í konum á Íslandi og í Svíþjóð. Brjóstakrabbamein hjá körlum eru um 1% allra greindra brjóstakrabbameina á ári og á tímabilinu 2012-2016 greindust að meðaltali þrír karlar á ári með brjóstakrabbamein á Íslandi og 48 í Svíþjóð. Nýgengi brjóstakrabbameina hefur farið hækkandi síð- ustu áratugi, bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Dánartíðni var nokkuð stöðug þar til á tíunda áratug síðustu aldar en hefur síðan farið lækkandi.2,3 Lækkandi dánartíðni má meðal annars rekja til bættrar með- ferðar og þess að meinin greinast fyrr vegna hópleitar.4 Í Svíþjóð hófst hópleit 1986 en þar er konum á aldrinum 40-74 ára boðið í röntgenmynd af brjóstum á 18-24 mánaða fresti.5 Á Íslandi hófst skipulögð leit að brjóstakrabbameini hjá Krabbameinsfélagi Ís- lands árið 1987 þar sem konur á aldrinum 40-69 ára eru boðaðar í röntgenmynd af brjóstum á tveggja ára fresti.6,7 Á Íslandi eru horfur þeirra sem greinast með brjósta krabbamein sambærilegar við horfur þeirra sem greinast í Svíþjóð en 5 ára hlutfallsleg lifun kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein í báðum löndum er um 90%.2,3 Horfur íslenskra kvenna sem grein- ast með brjóstakrabbamein eru því góðar en þar sem ekki hafði Lilja Dögg Gísladóttir1 læknanemi Helgi Birgisson3 læknir Bjarni A. Agnarsson1,2 læknir Þorvaldur Jónsson2 læknir Laufey Tryggvadóttir1,3 faraldsfræðingur Ásgerður Sverrisdóttir2 læknir 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Landspítala, 3Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands. Rannsóknin var unnin við Háskóla Íslands, Landspítala og Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands. Fyrirspurnum svarar Lilja Dögg Gísladóttir, ldg5@hi.is Á G R I P TILGANGUR Rannsóknin var liður í innleiðingu gæðaskráningar brjóstakrabba- meina á Íslandi og markmiðið að bera saman greiningu og meðferð ífarandi brjóstakrabbameina á Íslandi og í Svíþjóð. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Upplýsingar um alla einstaklinga sem greindust með ífarandi brjóstakrabbamein á Íslandi 2016-2017 fengust frá Krabbameins- skrá. Breytur úr sjúkraskrám voru skráðar í eyðublöð í Heilsugátt að fyrirmynd sænsku gæðaskráningarinnar og voru niðurstöður bornar saman við niðurstöður fyrir ífarandi brjóstakrabbamein af heimasíðu sænsku krabbameinsskrárinnar. Notað var tvíhliða kí-kvaðrat-próf til að bera saman hlutföll. NIÐURSTÖÐUR Á rannsóknartímabilinu greindust 486 ífarandi brjóstakrabbamein á Íslandi og 15.325 í Svíþjóð. Hlutfallslega færri 40-69 ára konur greindust við hópleit á Íslandi (46%) en í Svíþjóð (60%) (p<0,01). Á Íslandi voru haldnir heldur færri samráðsfundir fyrir fyrstu meðferð (92%) og eftir aðgerð (96%) miðað við Svíþjóð árið 2016 (98% og 99%) (p<0,05) en ekki var marktækur munur 2017. Varðeitlataka var gerð í 69% aðgerða á Íslandi en í 94% aðgerða í Svíþjóð (p<0,01). Ef æxlið var ≤30 mm var á Íslandi gerður fleygskurður í 48% tilvika en í 80% tilvika í Svíþjóð (p<0,01). Á Íslandi fengu 87% geislameðferð eftir fleygskurð en 94% í Svíþjóð (p<0,01). Ef eitlameinvörp greindust í brottnámsaðgerð þá fengu 49% geislameðferð eftir aðgerð á Íslandi en 83% í Svíþjóð (p<0,01). ÁLYKTANIR Marktækur munur er á ýmsum þáttum greiningar og meðferð- ar ífarandi brjóstakrabbameina milli Íslands og Svíþjóðar. Með gæðaskráningu brjóstakrabbameina á Íslandi er hægt að fylgjast með og setja markmið um ákveðna þætti greiningar og meðferðar í því skyni að veita sem flestum einstaklingum bestu meðferð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.