Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Sep 2020, Page 18

Læknablaðið - Sep 2020, Page 18
404 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 T I L F E L L I M Á N A Ð A R I N S Svar við tilfelli mánaðarins Glákusjúklingar eru misleitur hópur þar sem sjúkdómurinn grein- ist á misalvarlegu stigi, þróun sjónsviðstaps er mishröð og svörun við meðferð einstaklingsbundin. Það er því klínísk áskorun að velja meðferð og núgildandi klínískar leiðbeiningar leggja áherslu á einstaklingsmiðaða meðferð.1,2 Lyfjameðferð er oftast fyrsta úrræði en þegar lyf duga ekki eða þegar gláka er langt gengin er skurðaðgerð beitt. Niðurstöður nýlegrar samanburðarrannsóknar benda til þess að hjá sjúklingum með umtalsverðar sjón- sviðsskemmdir við greiningu verði sjónsviðsskerðingin minni ef gripið er til skurðaðgerðar fyrr í sjúkdómsferlinu.3 Alvarleiki sjónsviðsskerðingar er metinn með mean defect (MD) tölugildi á sjónsviðsrannsókn og sjúklingar flokkaðir í þrjá hópa eftir því. Flögnunargláka (pseudoexfoliation glaucoma) er afbrigði gláku þar sem trefjaagnir safnast upp í fremri hluta augans og víðar og stífla frárennsliskerfi augnvökvans og hækka þannig Mynd 3. Tvö iStent-ígræði sem komið hefur verið fyrir í Schlemms gangi. Mynd/María Soffía Gottfreðsdóttir Mynd 5. Stærðarhlutföll: iStent-ígræði situr á Ahmed-ígræði sem notað er í langt genginni gláku. Mynd/Þorkell Þorkelsson Mynd 4. iStent-ígræði í öðru núlli hundraðkrónupenings. Mynd/Þorkell Þorkelsson augnþrýsting.4 Flögnunarheilkenni er mjög algengt á Norðurlönd- um5,6 og í Reykjavíkurrannsókn Friðberts Jónassonar og félaga var hlutfallið hátt, eða allt að 40%.7 Rannsóknir hafa sýnt að flögn- unarheilkenni (pseudoexfoliation syndrome) er áhættuþáttur fyrir nýgengi og versnun á gláku.8 Hér á landi er fyrr gripið inn í með skurðaðgerð hjá sjúklingum með flögnunargláku samanborið við sjúklinga með frumgleiðhornagláku9 en það stafar líklega af því að þessi tegund gláku veldur oft hærri augnþrýstingi og lyfjameðferð er oft ekki jafn áhrifarík. Þar sem sjúklingur hafði sögu um illvíga flögnunargláku í vinstra auga sem greindist seint, hafði undirgengist tvær hjáveitu- aðgerðir og var með hækkandi augnþrýsting og vaxandi ský- myndun á hægra auga var ákveðið að framkvæma skurðaðgerð. Þar sem ekki voru komnar sjónsviðsskemmdir að ráði var ákveðið að fjarlægja skýið og setja inn ígræði (iStent inject) í Schlemms gang. Tvö ígræði sem komið hefur verið fyrir í Schlemm ś gangi má sjá á mynd 3. Miklar framfarir hafa orðið í skurðaðgerðum við gláku á síð- ustu árum. Flokkur aðgerða, svokallaður MIGS flokkur, (minimally invasive glaucoma surgery), þar sem inngrip við skurðaðgerð er mun minna og aðgerðirnar eru gerðar innan frá, hefur þróast mikið á síðastliðnum árum. Nokkrar mismunandi aðgerðir eru fram- kvæmdar. Val á aðgerð byggir á tegund gláku, alvarleika og aldri sjúklings. Þá skiptir miklu máli að grípa snemma inn í sjúkdóms- ferlið til að koma í veg fyrir alvarlegan sjónsviðsskaða og stærri ífarandi aðgerðir síðar. iStent er lítið ígræði, 0,23 mm x 0,36 mm, sem komið er fyrir í Schlemms gangi. Á mynd 4 má sjá iStent-ígræðið á hundraðkrónupeningi og endurspeglar það hversu smátt ígræðið er. Mynd 5 sýnir iStent-ígræði og Ahmed-túpu sem komið er fyrir auganu í illvígri gláku sem ekki hefur látið undan öðrum aðgerðum. Vökvinn í forhólfi augans fer í gegnum iStent-ígræðið og inn í Schlemms gang og þarf því minna af vökva að fara í gegnum síu augans (trabecular meshwork) sem virkar ekki sem skyldi.10 Í hverri aðgerð eru sett inn tvö iStent. Ígræðið er úr hepar- ín-húðuðu títani sem hefur ekki áhrif á segulómun og er þetta minnsta ígræði sem komið hefur verið fyrir í mannslíkamanum.11

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.