Læknablaðið - sep. 2020, Side 34
420 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106
þetta er hvað deildin er búin að afreka
mikið á stuttum tíma,“ segir hann.
„Deildin hefur tekið algjörum stakka-
skiptum. Það er að þakka öllu starfsfólk-
inu, stjórn spítalans og heilbrigðis- og
upplýsingatæknideildinni sem hefur
aðstoðað okkur við að setja upp hugbún-
að sem nauðsynlegur er til að þetta geti
gengið. Það hafa margir lagst á eitt. Starfs-
fólk innkaupadeildarinnar, birgðastöðvar
Landspítala og iðnaðarmenn sem hafa
breytt og bætt húsnæðið. Þetta hefur verið
teymisvinna.“ Faraldurinn hefur verið
langhlaup hjá deildinni. „Sem er ekki lok-
ið ennþá.“
Karl segir að eftir á að hyggja hefði
deildin ekki getað gert margt öðruvísi,
„nema ef við hefðum vitað að faraldur
væri að skella á.“ Þá hefði vilji stjórnvalda
til tækjakaupa líklegast verið meiri í að-
dragandanum. „Nú hafa þau sagt að við
fáum það sem við viljum til þess að efla
deildina. Það er nokkuð sérstakt að fá
þann stuðning,“ segir hann.
„Lærdómurinn sem við getum dregið
af þessu er að hafa umframafkastagetu í
tækjum, búnaði og hvarfaefnum. Svona
faraldur getur skollið á hvenær sem er. Það
er því mikilvægt að vera vel undirbúin.“
Hann segir að samstarfið og vinnslu-
samning við Íslenska erfðagreiningu hafi
bjargað miklu. „Þetta hefði ekki gengið
svona vel án samstarfsins.“
Gjörbreytt staða deildarinnar
Hvernig sérðu nú starfið þróast? „Deildin
hefur gjörbreyst. Vinnsluferli og verkferl-
ar verða nú straumlínulagaðri. Við erum
betur tækjum búin og getum boðið betri
þjónustu og próf með styttri svartíma en
við gátum boðið áður. Við sjáum fram á
að með nýja tækinu verði hægt að gera
próf hér sem við höfum hingað til þurft
að senda til útlanda. Deildin fer frá því að
vera illa tækjum búin, í slæmu húsnæði í
að vera á heimsmælikvarða,“ segir hann
og er ánægður að sjá það.
„Það sem meira er, að á þessum tíma
sem faraldurinn hefur geisað höfum við
unnið hörðum höndum að lokaáfanga til
faggildingar. Við stefnum að því að verða
fyrsta opinbera rannsóknarstofan við
sýnarannsóknir á mönnum hér á landi
sem fær slíka vottun.“ Stefnt hafi verið
að því í 15 ár og það sé nú næstum í höfn
í þessum faraldri. „Við höfum gjörbylt
þessari deild.“
Karl hvetur nýútskrifaða lækna til að fara í sérnám í sýklafræði og sýk-
ingavörnum. Myndir/Þorkell Þorkelsson
Öldungadeildin
Dagskrá haustsins 2020
Miðvikudaginn 7. október 2020, kl. 16.00
Saga af sulli: umfjöllun um sullaveiki.
Fyrirlesarar Eiríkur Jónsson þvagfæraskurðlæknir og Jón Torfason sagnfræðingur
Eftir fyrirlesturinn kl. 17.30 verður haldinn aðalfundur öldungadeildar sem frestað
var í vor vegna COVID-19
Miðvikudagur 4. nóvember 2020, kl. 16.00
Thorvaldsen í Róm og Reykjavík. Fyrirlesari Sigurður E. Þorvaldsson lýtalæknir
Fleiri fundir auglýstir síðar
Um fundi öldungadeildar
Allir læknar sem náð hafa
sextugsaldri eru velkomnir í okkar
hóp samkvæmt lögum öldungadeildar
Læknafélags Íslands. Vonumst við
til að sjá sem flesta á fundum okkar,
bæði verðandi félaga og skráða
félaga í deildinni. Fundirnir eru haldnir
kl. 16.00 fyrsta miðvikudag hvers
mánaðar að Hlíðasmára 8 í Kópavogi.
Hálftíma fyrir fund er boðið upp á
kaffi og vínarbrauð meðan félagar og
gestir ræða saman og rifja upp gömlu
góðu dagana.