Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 36
Ljósmyndir lækna frá COVID-19-sumrinu 2020
Læknablaðið bað nokkra lækna að senda mynd til birtingar frá þessu sögulega sumri. Myndir sem lýsa þessu einstaka
sumri þegar allir voru heima á fróni að drekka í sig íslenska náttúru. Börn og fullorðnir að sá í landið og uppskera þjóðlegar
og ógleymanlegar myndir af fólki og fénaði og landslagi sem spannar allan skalann og aftakaveðri og rjómablíðu og heitum
vöfflum og nýjum kartöflum og umfeðmingi og mjaðjurt og birkilaut og helsingjum og maríuerlum og hreindýrum og rollu-
skjátum og folöldum og svo öllu þessu vatni. /VS
Sigurbergur Kárason
Fegurðin er alls staðar á hálendi og annesjum Íslands,
gjöful og endurnærandi. Þar mætir hið mjúka og milda
hinu harða og hrikalega á einstakan hátt.
Í sumar var þó kófið í bakgrunni, einkum þegar var
setið þétt í bátsferðum og deilt rúmstæði í skálum
með erlendum ferðamönnum. Ósjálfrátt var maður
á varðbergi en á sama tíma þakklátur fyrir skimun á
landamærunum.
Myndin er af álftum á heiðarvatni efst í Miðvík í
Aðalvík á Hornströndum. Parið lónaði með ungana á
vatninu, hafði augun á þessum tveim ferðalöngum
sem höfðu truflað ró þeirra, en héldu stillingu sinni
nema að karlfuglinn flaug upp öðruhvoru, tók tvo til
þrjá hringi um vatnið en settist svo aftur. Samheldnin
og umönnun unganna var augljós.
Mér sýnist að við bregðumst við á svipaðan hátt við
þessari ógn sem veiran er – höldum ró okkar, verum á
varðbergi, gætum hvert annars – og njótum fegurðar
náttúrunnar.
Hrafnhildur Linnet Runólfsdóttir
Sumarið kom eins og lognið eftir storm – ný tækifæri
hafa boðist, ævintýrin öðruvísi en áður en samt svo góð.
Við fjölskyldan fundum annan takt í breyttum aðstæðum
og það er margt sem vekur þakklæti, ekki síst að njóta
samvista við hvort annað, njóta þess að heimsækja
kunnuglega en þó í senn framandi staði og vera í hlýjum
faðmi náttúrunnar.