Læknablaðið - Sep 2020, Page 51
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 437
Gunnar Guðmundsson
Dagur í lífi lungnalæknis
06:00 Vekjaraklukkan hringir og fljótlega er fyrsti kaffibolli
dagsins drukkinn. Svo er farið í líkamsþjálfun sem getur far-
ið fram heima, á líkamsræktarstöð eða útivið. Í þetta sinn er
þjálfunin heima.
07:40 Eftir morgunverð er ekið til vinnu á Landspítala Fossvogi.
Það er gott að þurfa ekki að vera í mikilli umferð.
07:55 Innstimplun og tölvan á skrifstofunni opnuð. Fer á kaffi-
stofu gjörgæsludeildar og fæ mér kaffi. Er með samþykki deildar-
stjórans fyrir ótakmörkuðum kaffibollum þar.
08:05 Morgunfundur lyflækna í Blásölum er eins og stundum
áður stjórnlaus og ómarkviss.
08:30 Röntgenfundur lungnalækna hefst. Sem betur fer hafa þeir
ekki verið lagðir af. Þetta er ein mikilvægasta stund dagsins. Einn
af mörgum frábærum röntgenlæknum sýnir lungnalæknum,
sérnámslæknum og læknanemum myndir sem teknar hafa verið
síðasta sólarhring bæði af inniliggjandi og þeim sem hafa verið
á göngudeild. Að auki eru þarna sýndar myndir af sjúklingum
sem heimilislæknar hafa beðið um að séu skoðaðar sérstaklega
af lungnalæknum með frekari rannsóknir í huga. Oftast er um
að ræða hnúta í lungum. Mikilvægt að að velja úr þá sem þurfa
frekara eftirlit sbr. leiðbeiningar í Læknablaðinu sem birtust fyrr á
árinu.
09:00 Göngudeild hefst. Í dag eru aðallega að koma sjúklingar
með millivefslungnasjúkdóma. Miklar framfarir hafa orðið í
greiningu og meðferð þessara sjúkdóma á síðastliðnum 5-10 árum.
Þannig hefur nú verið lýst ákveðnum mynstrum á tölvusneið-
myndum sem samrýmast ákveðnum sjúkdómum og þess vegna er
orðið mun minna en áður um að þörf sé á sýnatöku. Þá hafa kom-
ið lyf sem gefin eru um munn og vinna gegn bandvefsmyndun
og draga þannig úr framþróun þessara sjúkdóma. Margir þessara
sjúklinga eru líka með gigtsjúkdóma og í þeim tilvikum er notuð
líftæknimeðferð og náin samvinna er við gigtlækna.
12:05 Hádegismatur í matsalnum. Læknaborðið var aflagt á
árinu sem er mjög miður því þar hitti maður kollega úr ólíkum
sérgreinum og oft var gefin stutt og óformleg ráðgjöf og maður
fékk nýj ustu fréttir af fjallaferðum kolleganna.
12:30 Símatími: hringi í sjúklinga með niðurstöður rannsókna
og sjúklingar með aukin einkenni hringja inn. Hægt að komast
hjá bráðamóttökukomum og innlögnum með því að grípa fljótt
inní.
13:00 Hitti sérnámslækni á skrifstofunni til að fara yfir gang í
sérnámi og kanna hvort sérnámsmappan innihaldi öll gögn sem
þarf. Þetta er eitt það skemmtilegasta í starfinu. Búið er að gera
mikið átak í að skipuleggja framhaldsnám lækna á Landspítala.
14:00 Fyrirlestraskrá fyrir kennslu í lyfjafræði við Háskóla Ís-
lands undirbúin. Starf mitt sem prófessors við Háskóla Íslands
er auk vísindarannsókna að sinna kennslu í lyfjafræði, einkum í
læknadeild en einnig fyrir fleiri deildir Háskólans. Það er gaman
að hafa störfin fjölbreytt þó oft geti verið snúið að finna tíma fyr-
ir allt það sem þarf að gera yfir daginn.
14:30 Veiti ráðgjöf um lungnasjúkdóma fyrir deildir í Fossvogi
og fyrir heimilislækna. Að tala beint við kollega og skoða myndir
og ræða um sjúklinga er enn í dag mikilvægt og oft á tíðum besta
ráðgjafaformið, en tímafrekt.
15:45 Símtal til Bretlands við meðskipuleggjanda á ráðstefnu.
Hafði ætlað að halda rúmlega 300 manna ráðstefnu í Hörpu í
október 2020 um það nýjasta í millivefslungnasjúkdómum en er
búinn að fresta henni um ár.
16:00 Símafundur með samstarfsaðilum í vísindarannsóknum á
millivefslungnabreytingum: Þeir eru í Boston og farið yfir áætl-
anir um framhaldið.
16:15 Útstimplun og lítil umferð í vesturátt. Kem við hjá barna-
börnum í Vesturbæ Reykjavíkur og leik við þá nokkra stund. For-
réttindi að hafa barnabörnin svo nálægt sér.
18:30 Matarundirbúningur með fjölskyldunni og kvöldmatur.
20:30 Sundlaug Seltjarnarness. Eftir strangan dag er ljúft að fara
í heitan pott og eimbað.
21:15 Gönguleiðum flett upp í bókum og leitað á vefsíðum og
spjallað við væntanlega ferðafélaga um göngur sem standa til á
næstu vikum.
23:00 Svifið í draumalandið.
Höfundur vindblásinn í Friðlandi að Fjallabaki