Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 51

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 51
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 437 Gunnar Guðmundsson Dagur í lífi lungnalæknis 06:00 Vekjaraklukkan hringir og fljótlega er fyrsti kaffibolli dagsins drukkinn. Svo er farið í líkamsþjálfun sem getur far- ið fram heima, á líkamsræktarstöð eða útivið. Í þetta sinn er þjálfunin heima. 07:40 Eftir morgunverð er ekið til vinnu á Landspítala Fossvogi. Það er gott að þurfa ekki að vera í mikilli umferð. 07:55 Innstimplun og tölvan á skrifstofunni opnuð. Fer á kaffi- stofu gjörgæsludeildar og fæ mér kaffi. Er með samþykki deildar- stjórans fyrir ótakmörkuðum kaffibollum þar. 08:05 Morgunfundur lyflækna í Blásölum er eins og stundum áður stjórnlaus og ómarkviss. 08:30 Röntgenfundur lungnalækna hefst. Sem betur fer hafa þeir ekki verið lagðir af. Þetta er ein mikilvægasta stund dagsins. Einn af mörgum frábærum röntgenlæknum sýnir lungnalæknum, sérnámslæknum og læknanemum myndir sem teknar hafa verið síðasta sólarhring bæði af inniliggjandi og þeim sem hafa verið á göngudeild. Að auki eru þarna sýndar myndir af sjúklingum sem heimilislæknar hafa beðið um að séu skoðaðar sérstaklega af lungnalæknum með frekari rannsóknir í huga. Oftast er um að ræða hnúta í lungum. Mikilvægt að að velja úr þá sem þurfa frekara eftirlit sbr. leiðbeiningar í Læknablaðinu sem birtust fyrr á árinu. 09:00 Göngudeild hefst. Í dag eru aðallega að koma sjúklingar með millivefslungnasjúkdóma. Miklar framfarir hafa orðið í greiningu og meðferð þessara sjúkdóma á síðastliðnum 5-10 árum. Þannig hefur nú verið lýst ákveðnum mynstrum á tölvusneið- myndum sem samrýmast ákveðnum sjúkdómum og þess vegna er orðið mun minna en áður um að þörf sé á sýnatöku. Þá hafa kom- ið lyf sem gefin eru um munn og vinna gegn bandvefsmyndun og draga þannig úr framþróun þessara sjúkdóma. Margir þessara sjúklinga eru líka með gigtsjúkdóma og í þeim tilvikum er notuð líftæknimeðferð og náin samvinna er við gigtlækna. 12:05 Hádegismatur í matsalnum. Læknaborðið var aflagt á árinu sem er mjög miður því þar hitti maður kollega úr ólíkum sérgreinum og oft var gefin stutt og óformleg ráðgjöf og maður fékk nýj ustu fréttir af fjallaferðum kolleganna. 12:30 Símatími: hringi í sjúklinga með niðurstöður rannsókna og sjúklingar með aukin einkenni hringja inn. Hægt að komast hjá bráðamóttökukomum og innlögnum með því að grípa fljótt inní. 13:00 Hitti sérnámslækni á skrifstofunni til að fara yfir gang í sérnámi og kanna hvort sérnámsmappan innihaldi öll gögn sem þarf. Þetta er eitt það skemmtilegasta í starfinu. Búið er að gera mikið átak í að skipuleggja framhaldsnám lækna á Landspítala. 14:00 Fyrirlestraskrá fyrir kennslu í lyfjafræði við Háskóla Ís- lands undirbúin. Starf mitt sem prófessors við Háskóla Íslands er auk vísindarannsókna að sinna kennslu í lyfjafræði, einkum í læknadeild en einnig fyrir fleiri deildir Háskólans. Það er gaman að hafa störfin fjölbreytt þó oft geti verið snúið að finna tíma fyr- ir allt það sem þarf að gera yfir daginn. 14:30 Veiti ráðgjöf um lungnasjúkdóma fyrir deildir í Fossvogi og fyrir heimilislækna. Að tala beint við kollega og skoða myndir og ræða um sjúklinga er enn í dag mikilvægt og oft á tíðum besta ráðgjafaformið, en tímafrekt. 15:45 Símtal til Bretlands við meðskipuleggjanda á ráðstefnu. Hafði ætlað að halda rúmlega 300 manna ráðstefnu í Hörpu í október 2020 um það nýjasta í millivefslungnasjúkdómum en er búinn að fresta henni um ár. 16:00 Símafundur með samstarfsaðilum í vísindarannsóknum á millivefslungnabreytingum: Þeir eru í Boston og farið yfir áætl- anir um framhaldið. 16:15 Útstimplun og lítil umferð í vesturátt. Kem við hjá barna- börnum í Vesturbæ Reykjavíkur og leik við þá nokkra stund. For- réttindi að hafa barnabörnin svo nálægt sér. 18:30 Matarundirbúningur með fjölskyldunni og kvöldmatur. 20:30 Sundlaug Seltjarnarness. Eftir strangan dag er ljúft að fara í heitan pott og eimbað. 21:15 Gönguleiðum flett upp í bókum og leitað á vefsíðum og spjallað við væntanlega ferðafélaga um göngur sem standa til á næstu vikum. 23:00 Svifið í draumalandið. Höfundur vindblásinn í Friðlandi að Fjallabaki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.