Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 54

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 54
440 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 Hafi COVID-19 heimsfaraldurinn kennt okkur eitthvað, þá er það mikilvægi ríkis- rekins heilbrigðiskerfis til að takast á við slíkan vágest. Síðustu mánuði hefur verið erfitt að vera íslenskur læknir hér í Banda- ríkjum Norður-Ameríku. Ég nýt þó þeirra forréttinda að vinna sem sérfræðingur í almennum lyflækningum og líknarmeð- ferð á besta spítala Bandaríkjanna,1 Mayo Clinic, þar sem velferð sjúklinga er ávallt höfð að leiðarljósi og ötullega er unnið að smitvörnum og leit að virkum meðferðar- úrræðum fyrir COVID-19. Á meðan viðbrögð „heilagrar þrenn- ingar“ við drepsóttinni heima á Fróni voru tímanleg, vel yfirveguð og afgerandi, ríkti andvaraleysi hér í Bandaríkjunum. Þegar menn vöknuðu upp við vondan draum voru viðbrögðin handahófskennd og nú er áætlað að COVID-19 hafi kostað um 200.000 manns lífið og ekkert lát er á smitum og dauðsföllum af völdum drep- sóttarinnar.2,3 Síðbúin viðbrögð hérlendis gerðu það að verkum að veiran varð útbreidd áður en gripið var til aðgerða. Á með- an Íslendingar sendu einstaklinga með mögulegt COVID smit í gám utan við bráðamóttökuna og settu heilbrigðis- starfsfólk sem kom frá áhættusvæðum í sóttkví, gátu sjúklingar í Bandaríkjunum með COVID-19 einkenni gengið beint inn á bráðamótttöku án skimunar og smitað aðra. Læknar og hjúkrunarfræðingar gátu líka komið beint frá áhættusvæðum inn á spítala án nokkurrar skimunar til að sinna sjúklingum. Þetta ástand skapaði töluverða hræðslu meðal heilbrigðisstarfs- fólks sem reyndi að verja sig með notkun hlífðarbúnaðar en fljótlega varð ljóst að ekki var til nóg til að mæta bráðri þörf. Þegar fyrirsjáanlegur skortur varð á hlífðar búnaði voru leiðbeiningar um smitvarnir á sjúkrahúsum oftar en ekki sniðnar eftir birgðastöðu frekar en bestu þekkingu. Heilbrigðisstarfsfólk sem mætti með eigin grímur til að verja sig var oft ávítt og bannað að nota grímurnar sínar og dæmi um að grímur hafi verið rifnar af fólki. Þeir sem gengu skrefi lengra og börðust fyrir aðgangi samstarfsfólks að hlífðarfatnaði gátu átt von á brottrekstri úr starfi.4 Þegar greining á COVID-19 fór loks af stað var forgangsröðun í skimanir miðuð að því að takmarka aðgang annarra en þeirra sem voru í mestri hættu. Þrátt fyrir vitneskju erlendis frá um að einkenna- lausir gætu smitað var lengi vel gerð krafa um bæði einkenni og nánd við smitað- an einstakling til að fá aðgang að prófi. Tryggingafélög neituðu síðan oft að borga fyrir COVID-19-próf og hafa margir þurft að ganga frá Heródesi til Pílatusar til að fá endurgreiddan kostnað vegna greininga.5 Á meðan hafa sjúkratryggingarfélögin grætt á tá og fingri vegna takmarkana á kostnaðarsömum valaðgerðum.6 Það hefur verið sérstaklega erfitt að horfa upp á hvernig heilbrigðisstofnanir hafa oft og tíðum fórnað öryggi starfsfólks og þar með sjúklinga til að tryggja afkomu sína á þessum erfiðu tímum. Fjöldi heil- brigðisstarfsfólks hefur nú þegar látið lífið vegna faraldursins og enn er víða pottur brotinn í smitgát og vinnuvernd. Persónu- verndarreglugerðir hafa verið misnot- aðar sem réttlæting fyrir því að upplýsa ekki einstaklinga um nánd við smitaðan einstakling og mögulegt smit7 þrátt fyrir lagalegan grunn fyrir því að persónu- vernd víki fyrir almannahag þegar um hættulegan smitsjúkdóm er að ræða.8 Vinnuverndarstofnun Bandaríkjanna, OSHA (Occupational Safety and Health Administration), sinnir ekki hlutverki sínu og hefur vísað frá þúsundum kvartana frá heilbrigðisstarfsfólki um skort á smitgát.9 Það sem faraldurinn hefur sýnt svart á hvítu er hversu illa búið bandarískt heilbrigðiskerfi er til að stuðla að góðri lýðheilsu, enda er heilbrigðiskerfið hér ekki byggt til að þjóna öllum.10 Þegar heilbrigðis kerfið og sjúkratryggingakerfið þjóna mismunandi herrum er erfitt að virkja þann samtakamátt sem ríkisrekið heilbrigðiskerfi eins og hið íslenska hefur yfir að ráða. Ég vona að Íslendingar beri gæfu til að standa vörð um heilbrigðiskerfið okkar til að tryggja áframhaldandi heilsu og velferð þjóðarinnar allrar. Ég er stolt af frammistöðu Íslendinga í baráttunni við drepsóttina og vona að framhaldið gangi jafn vel. L I P R I R P E N N A R Vangaveltur frá Bandaríkjunum á tímum COVID-19 Björg Þorsteinsdóttir Dósent í lyflækningum og lífsiðfræði á lyflækningadeild, læknadeild og líknarmeðferð á Mayo Clinic, Rochester, Minnesota. thorsteinsdottir.bjorg@mayo.edu Heimildir 1. US News and World report. health.usnews.com/best- -hospitals – ágúst 2020. 2. Lu D. New York Times. The True Coronavirus Toll in the U.S. Has Already Surpassed 200,000 By. 1nytimes.com/ interactive/2020/08/12/us/covid-deaths-us.html - ágúst 2020. 3. COVID-19 Dashboard by the Center for Systems Science and Engineering at Johns Hopkins. coronavirus.jhu.edu/ map.html – ágúst 2020. 4. Persónulegar sögur frá Facebook-hópnum: Physician Moms Group. 5. Farmer B. Insurers May Only Pay For Coronavirus Tests When They're 'Medically Necessary'. npr.org/sections/ health-shots/2020/06/19/880543755/insurers-may-on- ly-pay-for-coronavirus-tests-when-theyre-medically- -necessary – ágúst 2020. 6. Abelson R. Major U.S. Health Insurers Report Big Profits, Benefiting From the Pandemic. nytimes.com/2020/08/05/ health/covid-insurance-profits.html - ágúst 2020. 7. Gold J, Hawryluk M, Kaiser, Health Nems. Covid in the cafeteria: hospitals leave workers in the dark over expos- ures. theguardian.com/us-news/2020/may/13/coronavir- us-healthcare-workers-hospitals - ágúst 2020. 8. Parmet WE, Sinha MS. Covid-19 — The Law and Limits of Quarantine. N Engl J Med 2020; 382: e28. 9. Jewett C, Luthra S, Baily M. Workers Filed More Than 4,100 Complaints About Protective Gear. Some Still Died. Kaiser health news. khn.org/news/osha-investigations- -workers-filed-nearly-4000-complaints-about-protective- -gear-some-still-died/ - ágúst 2020. 10. Bradley EH, Sipsma H, Taylor LA. American health care paradox: high spending on health care and poor health. QJM 2017; 110: 61-5.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.