Morgunblaðið - 21.05.2020, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 2 1. M A Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 119. tölublað 108. árgangur
GOLFIÐ HENTAR
ÖLLUM Í FJÖL-
SKYLDUNNI
SÆLUREITUR
STEINSNAR
FRÁ BORGINNI
NÝTT KÖRFU-
BOLTAÆÐI VEGNA
JORDANS
BORGARBYGGÐ 20-21 VINSÆLIR ÞÆTTIR 6SÉRBLAÐ UM GOLF 24 SÍÐUR
Baldur Arnarson
Stefán E. Stefánsson
Seðlabankinn hefur leiðir til þess
að ýta á viðskiptabankana um að
draga úr vaxtamun sem aukist
hefur að undanförnu. Þetta segir
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri í
ítarlegu viðtali við Morgunblaðið.
Í nýjustu útgáfu Peningamála
sem kom út í gær kemur fram að
vaxtaálag útlána hjá bönkunum
hefur vaxið mikið að undanförnu.
Segir Ásgeir að nú ætli bankinn
að beina sjónum sínum að þessu
úrlausnarefni, ekki hafi verið
heppilegt að
standa í því á
sama tíma og
gengið var frá
samningum um
bankana um út-
færslu svokall-
aðra viðbótar-
og brúarlána.
Ekki allir
axlað ábyrgð
Ásgeir segir einnig að ríkissjóð-
ur hafi í of ríkum mæli verið kall-
aður til björgunarstarfa án þess
að allir hlutaðeigendur hafi axlað
sína ábyrgð. Það hafi m.a. gerst
þegar hlutabótaleið og önnur úr-
ræði á vinnumarkaði voru kynnt
og það hafi gerst „án þess að
verkalýðsfélögin tækju að öllu
leyti ábyrgð á ástandinu og því
mikla atvinnuleysi sem nú hefur
skapast“.
Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá
Seðlabankans er ekki gert ráð fyr-
ir nema um 50 þúsund ferðamönn-
um til landsins á síðari helmingi
ársins. Sú staða leiði m.a. til þess
að atvinnuleysi muni mælast 12%.
Samkvæmt því má gera ráð fyrir
því að um 26 þúsund manns verði
á atvinnuleysisbótaskrá – fleiri en
nokkru sinni fyrr í sögunni. Þór-
arinn G. Pétursson, aðalhagfræð-
ingur Seðlabankans, segir þó að
mikil óvissa sé í spánni. Ferða-
þjónustan geti mögulega náð sér
meira á strik en spáin geri ráð
fyrir og það muni leiða til minna
atvinnuleysis. Hins vegar sé tekið
tillit til áforma ríkisstjórnarinnar
um að örva atvinnulífið í henni.
Flest bendir til þess að atvinnu-
leysi meðal erlendra ríkisborgara
verði mikið á komandi misserum.
Bankar dragi úr vaxtamun
Seðlabankastjóri segir bankann hafa verkfæri til að draga úr vaxtamun Segir stéttarfélögin ekki
hafa axlað fulla ábyrgð á ástandinu Gerir ráð fyrir að 26 þúsund manns gætu lent á atvinnuleysisskrá
Harkaleg niðursveifla
» Seðlabankinn gerir ráð fyrir
8% samdrætti á þessu ári.
» 26 þúsund manns án at-
vinnu gangi spá um 12% at-
vinnuleysi eftir.
» Bankinn gerir ráð fyrir að 50
þúsund manns sæki landið
heim á síðari hluta ársins.
» Það jafngildir 274 ferða-
mönnum á dag.
MVaxtalækkun... »16 og 24-25
Ásgeir
Jónsson
Samkvæmt upplýsingum frá sex
sviðslistastofnunum hérlendis gæti
samanlagt fjárhagstjón þeirra vegna
samkomubannsins farið yfir hálfan
milljarð. Leitað var upplýsinga hjá
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslensku
óperunni, Þjóðleikhúsinu, Íslenska
dansflokknum, Borgarleikhúsinu og
Menningarfélagi Akureyrar.
Hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands
nemur tapið þriðjungi af áætluðum
miðasölutekjum árið 2020. Hjá Þjóð-
leikhúsinu fengust þau svör að þriðj-
ungur af sértekjum ársins hefði guf-
að upp vegna samkomubannsins. Á
sama tíma varð Borgarleikhúsið af
40% miðasölutekna á yfirstandandi
leikári vegna samkomubannsins.
Tap Íslensku óperunnar nemur um
10% af heildarveltu ársins. »48
Morgunblaðið/Eggert
Tap Sinfóníuhljómsveit Íslands og
Íslenska óperan starfa í Hörpu.
Hundruð
milljóna
gætu tapast
„Þetta er dásamleg tilviljun. Fyrir lokaverkefni
mitt í ljósmóðurfræðum var mér bent á konu sem
væri barnshafandi að eineggja tvíburum og þegar
ég ætlaði að hafa samband við hana og sá nafnið
hennar áttaði ég mig á að þetta var hún Rakel,
vinkonan frá því að ég var lítil stelpa, tvíburinn í
leikskólanum. Við höfum ekki verið í samskiptum
árum saman, því að fjölskylda mín flutti burt þeg-
ar ég var sex ára,“ segir Klara, sem er tvíburi og
tók á móti tvíburum Rakelar í mars. Tvíbura-
þrennan kom saman, f.v. Sara, Klara, Rakel og
Rebekka með nýju tvíburana. »12
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Flott þrenna: Tvíburi tók á móti tvíburum hjá tvíbura
EITTHVAÐ FYRIR ALLA Í NÆSTU VERSLUN NETTÓ!
Hrossalund
í blönduðum pipar
3.499KR/KG
ÁÐUR: 4.999 KR/KG
Hindber - 250 gr
559KR/PK
ÁÐUR: 799 KR/PK
Brómber - 125 gr
433KR/PK
ÁÐUR: 619 KR/PK
Grísagrillsneiðar
Bógsneiðar
1.044KR/KG
ÁÐUR: 1.899 KR/KG
-30%
-30%
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 21. - 24. maí
-45%