Morgunblaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is F rá því ljósmóðurnemi tók á móti mínu fyrsta barni þegar ég var átján ára hefur það verið draumur minn að vinna við að taka á móti börn- um. Á þeirri stundu varð ég ákveð- in í að einn góðan verðurdag yrði ég sjálf ljósmóðir,“ segir Klara Jenný Húnfjörð Arnbjörnsdóttir sem lýkur ljósmóðurnámi sínu í næstu viku. „Þetta hefur tekið sinn tíma, að ná markmiðinu, það eru tíu ár frá því ég lauk hjúkrunarfræði- námi, sem er skilyrði fyrir því að komast í sérnám í ljósmóður- fræðum. Ég er að norðan og ílengdist þar, en þegar ég flutti suður fyrir þremur árum skellti ég mér loks í þetta sérnám,“ segir Klara, sem er eineggja tvíburi og lenti í þeirri sjaldgæfu og skemmtilegu tilviljun í náminu að taka á móti eineggja tvíburum hjá konu sem sjálf er tvíburi. „Ekki nóg með það, heldur kynntist ég hinni fæðandi móður, Rakel Pálsdóttur, á barnsaldri í leikskóla á Blönduósi. Við fjórar lékum okkur rosamikið saman all- ar fjórar, ég, Sara systir og Rakel og Rebekka tvíburasystir hennar. Við eigum minningar um mörg sameiginleg prakkarastrik,“ segir Klara og hlær. Gömul vináttutengsl vakna „Þetta er dásamleg tilviljun að við vorum leiddar saman. Ég fór í verknám í áhættumæðravernd og fékk að fylgja þar þeirri einu tví- buraljósmóður sem nú starfar á Ís- landi, Ingibjörgu Eiríksdóttur. Ég varð svo hrifin af öllu sem tengist tvíburameðgöngum og fæðingum að ég ákveð að einbeita mér að því í lokaverkefni mínu. Einnig átti ég í námi mínu að sinna konu í áhættumæðravernd í svokölluðu MFS-verkefni sem felur í sér sam- fellu þar sem ég sinni konu á með- göngu, í fæðingu og sængurlegu. Helsta ósk mín var að finna konu sem gengi með tvíbura, því ein- eggja tvíburameðganga er jú áhættumeðganga. Mér var þá bent á konu sem væri barnshafandi að eineggja tvíburum og þegar ég ætlaði að hafa samband við hana og sá nafnið hennar áttaði ég mig á að þetta var hún Rakel, vinkonan frá því ég var lítil stelpa, tvíburinn í leikskólanum. Við höfum ekki verið í samskiptum árum saman, því fjölskylda mín flutti frá Blönduósi þegar ég var sex ára.“ Klara segir að við þessa sam- vinnu í verkefninu hafi aftur vakn- að hin gömlu tengsl á milli hennar og Rakelar. „Ég fór með henni í nánast hverja einustu mæðraskoðun og fylgdi henni í eina sónarskoðun líka. Ég tók á móti tvíburunum hennar í fæðingu og sá um hana í heimaþjónustu eftir fæðingu, enda er þetta verkefni sem á að sýna samfellu í þjónustu. Í lokaritgerð- inni minni fjalla ég svo um reynslu kvenna af tvíburaþungun, með áherslu á sálræna líðan og stuðn- ing ljósmæðra, en í tvíbura- meðgöngu er aukin hætta á flest- öllum fylgikvillum, bæði sálrænum og líkamlegum.“ Ég gat ekki hamið tárin Þegar Klara er spurð hvernig tilfinningin hafi verið þegar hún tók á móti tvíburum Rakelar segir hún það hafa verið stórkostlegt. Stúlkurnar tvær voru ekki teknar með keisara heldur fæddi Rakel þær. „Fyrst þegar ég byrjaði í ljós- móðurnáminu grét ég í hverri ein- ustu fæðingu sem ég fékk að fylgj- ast með. Þegar ég var komin vel á veg og farin að taka sjálf á móti börnum var ég meira að einbeita mér svo það var minna pláss fyrir tilfinningasemi. Fæðing er alltaf jafn falleg, yndisleg og krefjandi, en ég sem ljósmóðir hef nóg að gera strax að fæðingu lokinni, fylgjast með að fylgjan komi, hvort það sé blæðing og fleira. En í fæð- ingu tvíburastelpnanna hjá Rakel gat ég ekki hamið tárin. Þegar ég hafði tekið á móti litlu stúlkunum og þær voru komnar í fangið á mömmu sinni brast ég í grát. Ég fann flæða yfir mig alls konar til- finningar af því ég er sjálf tvíburi. Ég veit að það er mikil vinna og fyrirhöfn að ganga með og fæða tvíbura. Það er afrek. Þar fyrir ut- an var ég líka með pressu á mér að standa mig sem allra best, því þetta er jú vinkona mín. Þetta var afar dýrmætt fyrir okkur báðar og allt þetta meðgönguferli bjó til al- veg nýjan vinskap okkar á milli.“ Vitum þegar hinni líður illa Klara er sjálf þriggja barna móðir en á ekki tvíbura. „Eineggja er hálfgert krafta- verk. Reyndar halda sumir því fram að við Sara séum tvíeggja, af því við komum í tveimur fylgjum, en eineggja geta líka fæðst í tveimur fylgjum. Mamma lét aldr- ei tékka á því hvort við værum eineggja en við erum alveg ná- kvæmlega eins svo það er ekki vafi á því. Við þekkjum okkur ekki sjálfar í sundur á myndum fyrr en eftir tíu ára aldur,“ segir Klara og hlær. Hún segir það hafa verið mikinn stuðning í uppvextinum að eiga tvíburasystur. „Við höfum alltaf verið bestu vinkonur systurnar og það var gott að hafa alltaf hinn helminginn til staðar. Í uppvextinum kveið ég aldrei fyrir neinum breytingum af því ég vissi alltaf að ég hefði Söru með mér, að við fylgdumst að,“ segir Klara og bætir við að þær hafi flutt mjög oft þegar þær voru litlar, bjuggu á Blönduósi, Ólafs- firði og Dalvík. „Ég varð eftir á Akureyri þegar Sara flutti suður með for- eldrum okkar þegar við vorum 18 ára og við bjuggum þá í 13 ár hvor í sínum landshluta. Ég skil ekki enn hvernig við fórum að því,“ segir Klara og hlær. „Nú búum við í sama hverfi í Reykjavík og við heyrumst á hverjum degi og hittumst mjög reglulega. Við erum mjög tengdar og þannig hefur það alltaf verið, við finnum oft á okkur ef hinni líð- ur illa þótt við séum ekki saman. Við eigum margar slíkar sögur, til dæmis þegar ég var 14 ára að keppa á Ísafirði á skíðum og fót- brotnaði. Sara var allan daginn grátandi í mömmu heima á Dalvík og sagði að sér liði illa og vissi ekkert af hverju. Þegar þau fengu loks símhringingu um að ég væri fótbrotin kom skýringin í ljós. Þannig er þetta enn þann dag í dag; við skiljum hvor aðra rosa- lega vel, sem getur verið pressa á makana, þeir skilja okkur aldrei eins vel og við hvor aðra,“ segir Klara og hlær. „Þessi tengsl eru í raun stór- furðuleg, og falleg. Ég hef ekki séð neina galla við það að vera tví- buri, mér finnst gott að vera þann- ig hluti af annarri manneskju.“ Tvíburaþrenna með óvænt tengsl Í byrjun mars tók kona sem er tvíburi á móti tví- burum hjá móður sem er tvíburi. Tilviljun ein leiddi þær Klöru og Rakel saman í þessar aðstæður en þær og tvíburasystur þeirra höfðu leikið sér saman í leikskóla litlar stúlkur en ekki hist síðan þá. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tvíburaþrenna Klara (ljóshærð) og Rakel halda hér á tveggja mánaða tvíburadætrum Rakelar sem Klara tók á móti. Við hlið Klöru er Sara tvíburasystir hennar og við hlið Rakelar er Rebekka tvíburasystir hennar. 2 vinnubúðir úr timbri, 15 m2 með WC, sturtu og eldhúskrók. Rúm og dýnur ásamt lausamunum fylgja. 600.000 kr. m/vsk pr. stk. Upplýsingar í síma 892 3388 / hjortur@isol.is 600.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.