Morgunblaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 40
Páll Guðmundsson
palli@fi.is
Gönguleiðin milli Landmannalauga
og Þórsmerkur er vinsælasta göngu-
leið landsins og er orðin þekkt um
allan heim á meðal göngufólks. Ein-
stök náttúrufegurð, litadýrð og fjöl-
breytileiki er einkennandi fyrir
gönguleiðina. Friðland að Fjallabaki
er eitt fegursta svæði Íslands og
náttúra og víðerni á Torfajökuls-
svæðinu eru einhver mestu verð-
mæti á hálendinu. Jarðmyndanir,
landslag og hveravirkni eru óvenju-
lega fjölbreytt, litrík og stórfengleg.
Svæðið er að mestu óraskað og frið-
lýsing hefur orðið til þess að land-
nýting hefur verið skynsamleg.
Þegar Ferðafélag Íslands hóf
undirbúning að uppbyggingu
Laugavegarins var gönguleiðin bæði
ófær og óaðgengileg og var stærsta
verkefnið að yfirstíga óbrúaðar ár og
byggja skála. Það þurfti mikinn
dugnað og áræði frumkvöðlanna til
að láta drauminn verða að veruleika.
Frá stofnun Ferðafélags Íslands
hefur félagið beitt sér fyrir því að
byggja upp skála og gönguleiðir á
hálendinu og var fyrsti skálinn reist-
ur í Hvítárnesi árið 1930. Var það
liður í uppbyggingu félagsins á
gönguleiðinni um Kjalveg hinn
forna. Á árunum sem fylgju voru
byggðir upp fjallaskálar á Kjalvegi, í
Kerlingarfjöllum og Þjófadölum og
síðar í Þverbrekknamúla. Hug-
myndin að Laugaveginum í núver-
andi mynd mun hafa kviknaði upp úr
1970. Ferðafélagið hafði reist skála í
Landmannalaugum árið 1951 og
Þórsmörk árið 1954. Það var því
nærtæk hugmynd að ganga á milli
þessara einstöku og margrómuðu
skálasvæða. Könnunarferðir voru
farnar af harðduglegum göngu-
mönnum og þurfti mikið áræði til að
takast á við óbrúað straumvatnið.
Árið 1975 hófst eiginlegur undirbún-
ingur og var gengið hratt til verks.
Strax árið 1976 var skáli reistur í
Botnum á Emstrum og ári síðar kom
skáli í Hrafntinnusker. Göngubrú,
18 m löng, var byggð á Fremri--
Emstruá árið 1978 og var þá eitt
stærsta skrefið í að opna leiðina.
Gönguleiðin milli Land-
mannalauga og Þórs-
merkur er vinsælasta
gönguleið landsins og er
orðin þekkt um allan
heim á meðal göngu-
fólks.
Leiðin var síðan stikuð sumrin 1978
og 1979 og unnu 36 sjálfboðaliðar fé-
lagsins lokahnykkinn haustið 1979.
Tveir skálar voru reistir við Álfta-
vatn sumarið 1979 og tók annar 20
manns í gistingu en hinn 40. Fyrstu
Laugavegargönguna fór Ferða-
félagið dagana 13. til 18. júlí 1979 og
gengu þá 17 farþegar leiðina undir
leiðsögn Kristins Zophóníassonar. Á
einungis fjórum árum höfðu sjálf-
boðaliðar félagsins byggt upp nýja
gönguleið og hefur viðhald og rekst-
ur gönguleiðarinnar verið stærsta
verkefni félagsins allar götur síðan.
Ljósmyndir/FÍ myndabanki
Upphaf Laugavegarins Frábær staður Hér má sjáLangadal í Þórsmörk. Margireiga góðar minningar þaðan.
Fallegt útsýni Það er fallegt um að litast í
Langadal. Sumir myndu segja undurfallegt.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Ferðalög á
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Stúdentamyndatökur
Einstök
minning