Morgunblaðið - 21.05.2020, Page 40

Morgunblaðið - 21.05.2020, Page 40
Páll Guðmundsson palli@fi.is Gönguleiðin milli Landmannalauga og Þórsmerkur er vinsælasta göngu- leið landsins og er orðin þekkt um allan heim á meðal göngufólks. Ein- stök náttúrufegurð, litadýrð og fjöl- breytileiki er einkennandi fyrir gönguleiðina. Friðland að Fjallabaki er eitt fegursta svæði Íslands og náttúra og víðerni á Torfajökuls- svæðinu eru einhver mestu verð- mæti á hálendinu. Jarðmyndanir, landslag og hveravirkni eru óvenju- lega fjölbreytt, litrík og stórfengleg. Svæðið er að mestu óraskað og frið- lýsing hefur orðið til þess að land- nýting hefur verið skynsamleg. Þegar Ferðafélag Íslands hóf undirbúning að uppbyggingu Laugavegarins var gönguleiðin bæði ófær og óaðgengileg og var stærsta verkefnið að yfirstíga óbrúaðar ár og byggja skála. Það þurfti mikinn dugnað og áræði frumkvöðlanna til að láta drauminn verða að veruleika. Frá stofnun Ferðafélags Íslands hefur félagið beitt sér fyrir því að byggja upp skála og gönguleiðir á hálendinu og var fyrsti skálinn reist- ur í Hvítárnesi árið 1930. Var það liður í uppbyggingu félagsins á gönguleiðinni um Kjalveg hinn forna. Á árunum sem fylgju voru byggðir upp fjallaskálar á Kjalvegi, í Kerlingarfjöllum og Þjófadölum og síðar í Þverbrekknamúla. Hug- myndin að Laugaveginum í núver- andi mynd mun hafa kviknaði upp úr 1970. Ferðafélagið hafði reist skála í Landmannalaugum árið 1951 og Þórsmörk árið 1954. Það var því nærtæk hugmynd að ganga á milli þessara einstöku og margrómuðu skálasvæða. Könnunarferðir voru farnar af harðduglegum göngu- mönnum og þurfti mikið áræði til að takast á við óbrúað straumvatnið. Árið 1975 hófst eiginlegur undirbún- ingur og var gengið hratt til verks. Strax árið 1976 var skáli reistur í Botnum á Emstrum og ári síðar kom skáli í Hrafntinnusker. Göngubrú, 18 m löng, var byggð á Fremri-- Emstruá árið 1978 og var þá eitt stærsta skrefið í að opna leiðina. Gönguleiðin milli Land- mannalauga og Þórs- merkur er vinsælasta gönguleið landsins og er orðin þekkt um allan heim á meðal göngu- fólks. Leiðin var síðan stikuð sumrin 1978 og 1979 og unnu 36 sjálfboðaliðar fé- lagsins lokahnykkinn haustið 1979. Tveir skálar voru reistir við Álfta- vatn sumarið 1979 og tók annar 20 manns í gistingu en hinn 40. Fyrstu Laugavegargönguna fór Ferða- félagið dagana 13. til 18. júlí 1979 og gengu þá 17 farþegar leiðina undir leiðsögn Kristins Zophóníassonar. Á einungis fjórum árum höfðu sjálf- boðaliðar félagsins byggt upp nýja gönguleið og hefur viðhald og rekst- ur gönguleiðarinnar verið stærsta verkefni félagsins allar götur síðan. Ljósmyndir/FÍ myndabanki Upphaf Laugavegarins Frábær staður Hér má sjáLangadal í Þórsmörk. Margireiga góðar minningar þaðan. Fallegt útsýni Það er fallegt um að litast í Langadal. Sumir myndu segja undurfallegt. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020 Ferðalög á Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Stúdentamyndatökur Einstök minning

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.