Morgunblaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Verkefnastaðan er viðunandi. Við erum að vinna í mörgum krefjandi verkefnum og höfum töluvert af verkefnum fram undan sem bíða okkar,“ segir Bergþór Ævarsson, framleiðslustjóri Slippsins á Akur- eyri, en deild hans sinnir fram- leiðslu og upp- setningu á vinnslulínum í skip og land- vinnslur. „Þetta eru bæði innlend og erlend verk- efni sem við höf- um verið að vinna að en lausnir okkar hafa í auknum mæli verið settar upp í er- lendum skipum og vinnslum. Við höfum því tekið fullan þátt í að flytja út þá afburðaþekkingu sem byggst hefur upp í íslenskum sjávarútvegi. Við vorum að klára smíði og upp- setningu á vinnsludekki í Harðbak EA 3 fyrir Útgerðarfélag Akureyr- inga og fór skipið í fyrstu veiðiferð sína á dögunum. Svo erum við að hefja uppsetningu á móttöku í fisk- vinnslu Samherja á Dalvík, það verkefni er gríðarlega spennandi og næsta verkefni sem er fram undan hjá okkur.“ Þó svo að verkefnastað- an sé góð getur Slippurinn bætt við sig fleiri verkefnum að sögn fram- leiðslustjórans. „Þar sem við erum einnig að sinna þjónustuhlutverki gerir maður ráð fyrir að um 20% af mannskapnum séu alltaf laus þann- ig að hægt sé að bregðast við ef eitt- hvað kemur upp.“ Um 25 starfsmenn sinna verkefn- um félagins á framleiðslusviðinu en litlar tafir urðu á verkefnum vegna kórónufaraldursins að sögn Berg- þórs. „Vegna Covid og samkomu- bannsins hægði töluvert á okkur um tíma og þurftum við að skipta deild- inni í tvennt og gat eingöngu helm- ingur starfsmanna deildarinnar verið í vinnu. Við óttuðumst að þeim verkefnum sem við vorum að vinna að myndi seinka en með samstilltu átaki tókst að standa við gefin loforð gagnvart viðskiptavinum og fyrir það fá starfsmenn Slippsins mikið hrós.“ Vona að landamæri opnist „Staðan er og hefur verið góð. Það hægði á hjá okkur í kjölfar sam- komubanns, en við höfum náð að halda nokkuð góðri verkefnastöðu í gegnum þennan erfiða tíma. Erum í góðri stöðu fram á haustið. Í þess- um geira telst það nokkuð gott,“ segir Ólafur Ormsson, sviðsstjóri skipaþjónustu. „Við erum núna með Tasermiut GR, grænlenskan tog- ara, hjá okkur í umfangsmiklum viðhaldsverkefnum. Almálning á skipinu, öxuldráttur, smíð á nýjum botnstykkjabáti og viðgerð á afgas- katli ásamt hefð- bundnum við- haldsverkefnum. Einnig erum við að leggja loka- hönd á uppsjáv- arskipið Kap VE 4, sem er hjá okk- ur í almálningu, skrúfu- og stýris- viðgerð og fleira. Næstu verkefni eru til dæmis Margrét EA 710 og Jón Kjartansson SU 111. Eikarbát- urinn Húni II EA kemur svo til okk- ar í byrjun júní í árlegan slipp og viðgerð á skans, Húni II er stærsti varðveitti eikarbáturinn á Íslandi.“ Ólafur segir að ríkur vilji sé fyrir hendi til að taka fleiri verkefni en nú eru hjá Slippnum á Akureyri en það sé háð því að aðstæður í þjóðfélag- inu batni og sérhæft starfsfólk fáist til þeirra verka, en erfitt er að sækja starfsfólk með fagmenntun að utan eins og stendur vegna ferða- takmarkana. „Við vonum að það fari að lagast og landmærin að opnast aftur. […] En við búum vel að því að við erum með sterkan kjarna starfs- manna. Þetta er 160 manna fyrir- tæki, þannig að við höfum marga reynda starfsmenn, höfum byggt á þessum kjarna til lengri tíma og stöndum vel að vígi í þessu árferði miðað við marga aðra.“ Hann segir Slippinn Akureyri hafa hafið sölu á sjálfvirkum þvotta- kerfum fyrir færibönd og annan vinnslubúnað. „Þessari viðbót hefur verið vel tekið og mikill áhugi er fyrir þessum búnaði. Nýtt fisk- vinnsluhús Samherja hf. á Dalvík er með þennan búnað uppsettan á færibönd sín, einnig verður þessi búnaður settur upp í nýrri fisk- vinnslu Brims á Norðurgarði í Reykjavík.“ Stöðugt rennerí hjá DNG Kristján Björn Garðarsson, rekstrarstjóri DNG, dótturfélags Slippsins á Akureyri, segir alltaf mikið um að vera á þessum árstíma enda margir að undirbúa sumarver- tíðina og ekki síst hefja strand- veiðar. Fyrir- tækið framleiðir færavindur og margs konar raf- einda- og tækni- búnað. „Þetta er ákveðinn há- punktur í við- gerðum, menn að gera sig tilbúna fyrir sumarver- tíð. […] Þegar kemur að vindunum er þetta býsna svipað og síðastliðin ár, kannski ei- lítið líflegra á þessum tíma þegar strandveiðarnar eru að byrja og svo makríllinn í kjölfarið, það koma miklir toppar í þetta.“ Hann segir að þótt ávallt hafi ver- ið gert ráð fyrir að af vertíðinni yrði hafi komið aðeins á óvart að tímabil- ið hafi gefið jafn mörg verkefni og raun ber vitni, þar sem virðist hafa hægt á víða og verð á fiskmörkuðum er heldur lágt. „Við höfum ekki tek- ið eftir samdrætti í þessu miðað við þennan árstíma.“ Kristján treystir sér ekki til þess að giska á hversu margir bátar nýti þjónustu DNG á ári. Spurður hvort um sé að ræða nokkra tugi báta svarar hann: „Nei, það eru miklu fleiri, þetta er stand- andi. Sumir koma á haustin og á veturna þegar þeir eru ekki í útgerð og aðrir koma í aðdraganda vertíð- arinnar og skella þeim til okkar í yf- irhalningu og eftirlit eða viðgerðir. […] Þetta er gríðarlegur fjöldi hérna á Íslandi, það eru mörg hundruð vindur í gangi og ekki allt bundið við strandveiðar.“ Spurður hvort því sé ekki fagnað að hafa nóg að gera í þessu árferði kórónuveirunnar segir Kristján svo vera. „Við höfum verið í fullum gangi í gegnum Covid-ástandið. Það hefur ekki verið lokað einn dag hér.“ DNG þjónustar ekki bara íslensk- an markað heldur hefur staðið í talsverðri sölu og þjónustu við útgerðaraðila víða um heim, að sögn Kristjáns. „Þetta eru Norðmenn, Írar, Skotar, Færeyingar mikið og Grænlendingar. Nýfundnaland, báðar strendur Bandaríkjanna að hluta. Þetta er um allt, einu sinni var Alaska markaðssvæði og svo er þetta um hvippinn og hvappinn. Við erum alveg niður í Nýja-Sjáland og Ástralíu.“ Faraldurinn hafði lítil áhrif  Verkefnastaðan góð hjá öllum deildum Slippsins á Akureyri  Náðu að standa við áætlanir þrátt fyrir faraldurinn  Gætu bætt við sig fleiri verkefnum ef hægt yrði að fá fagmenntað fólk til landsins Rekstur Það hefur verið í mörgu að snúast á athafnasvæði Slippsins á Akureyri að undanförnu og er búist við að það verði staðan áfram, að minnsta kosti fram á haust. Veirufaraldurinn er sagður hafa valdið fáum töfum. Kristján B. Garðarsson Bergþór Ævarsson Ólafur Ormsson Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Þú finnur gæðin! Skoðaðu úrvalið í netverslun isleifur.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.