Morgunblaðið - 21.05.2020, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
„Verkefnastaðan er viðunandi. Við
erum að vinna í mörgum krefjandi
verkefnum og höfum töluvert af
verkefnum fram undan sem bíða
okkar,“ segir Bergþór Ævarsson,
framleiðslustjóri Slippsins á Akur-
eyri, en deild
hans sinnir fram-
leiðslu og upp-
setningu á
vinnslulínum í
skip og land-
vinnslur. „Þetta
eru bæði innlend
og erlend verk-
efni sem við höf-
um verið að vinna
að en lausnir
okkar hafa í
auknum mæli verið settar upp í er-
lendum skipum og vinnslum. Við
höfum því tekið fullan þátt í að flytja
út þá afburðaþekkingu sem byggst
hefur upp í íslenskum sjávarútvegi.
Við vorum að klára smíði og upp-
setningu á vinnsludekki í Harðbak
EA 3 fyrir Útgerðarfélag Akureyr-
inga og fór skipið í fyrstu veiðiferð
sína á dögunum. Svo erum við að
hefja uppsetningu á móttöku í fisk-
vinnslu Samherja á Dalvík, það
verkefni er gríðarlega spennandi og
næsta verkefni sem er fram undan
hjá okkur.“ Þó svo að verkefnastað-
an sé góð getur Slippurinn bætt við
sig fleiri verkefnum að sögn fram-
leiðslustjórans. „Þar sem við erum
einnig að sinna þjónustuhlutverki
gerir maður ráð fyrir að um 20% af
mannskapnum séu alltaf laus þann-
ig að hægt sé að bregðast við ef eitt-
hvað kemur upp.“
Um 25 starfsmenn sinna verkefn-
um félagins á framleiðslusviðinu en
litlar tafir urðu á verkefnum vegna
kórónufaraldursins að sögn Berg-
þórs. „Vegna Covid og samkomu-
bannsins hægði töluvert á okkur um
tíma og þurftum við að skipta deild-
inni í tvennt og gat eingöngu helm-
ingur starfsmanna deildarinnar
verið í vinnu. Við óttuðumst að þeim
verkefnum sem við vorum að vinna
að myndi seinka en með samstilltu
átaki tókst að standa við gefin loforð
gagnvart viðskiptavinum og fyrir
það fá starfsmenn Slippsins mikið
hrós.“
Vona að landamæri opnist
„Staðan er og hefur verið góð.
Það hægði á hjá okkur í kjölfar sam-
komubanns, en við höfum náð að
halda nokkuð góðri verkefnastöðu í
gegnum þennan erfiða tíma. Erum í
góðri stöðu fram á haustið. Í þess-
um geira telst það nokkuð gott,“
segir Ólafur Ormsson, sviðsstjóri
skipaþjónustu. „Við erum núna með
Tasermiut GR, grænlenskan tog-
ara, hjá okkur í umfangsmiklum
viðhaldsverkefnum. Almálning á
skipinu, öxuldráttur, smíð á nýjum
botnstykkjabáti og viðgerð á afgas-
katli ásamt hefð-
bundnum við-
haldsverkefnum.
Einnig erum við
að leggja loka-
hönd á uppsjáv-
arskipið Kap VE
4, sem er hjá okk-
ur í almálningu,
skrúfu- og stýris-
viðgerð og fleira.
Næstu verkefni
eru til dæmis Margrét EA 710 og
Jón Kjartansson SU 111. Eikarbát-
urinn Húni II EA kemur svo til okk-
ar í byrjun júní í árlegan slipp og
viðgerð á skans, Húni II er stærsti
varðveitti eikarbáturinn á Íslandi.“
Ólafur segir að ríkur vilji sé fyrir
hendi til að taka fleiri verkefni en nú
eru hjá Slippnum á Akureyri en það
sé háð því að aðstæður í þjóðfélag-
inu batni og sérhæft starfsfólk fáist
til þeirra verka, en erfitt er að
sækja starfsfólk með fagmenntun
að utan eins og stendur vegna ferða-
takmarkana. „Við vonum að það fari
að lagast og landmærin að opnast
aftur. […] En við búum vel að því að
við erum með sterkan kjarna starfs-
manna. Þetta er 160 manna fyrir-
tæki, þannig að við höfum marga
reynda starfsmenn, höfum byggt á
þessum kjarna til lengri tíma og
stöndum vel að vígi í þessu árferði
miðað við marga aðra.“
Hann segir Slippinn Akureyri
hafa hafið sölu á sjálfvirkum þvotta-
kerfum fyrir færibönd og annan
vinnslubúnað. „Þessari viðbót hefur
verið vel tekið og mikill áhugi er
fyrir þessum búnaði. Nýtt fisk-
vinnsluhús Samherja hf. á Dalvík er
með þennan búnað uppsettan á
færibönd sín, einnig verður þessi
búnaður settur upp í nýrri fisk-
vinnslu Brims á Norðurgarði í
Reykjavík.“
Stöðugt rennerí hjá DNG
Kristján Björn Garðarsson,
rekstrarstjóri DNG, dótturfélags
Slippsins á Akureyri, segir alltaf
mikið um að vera á þessum árstíma
enda margir að undirbúa sumarver-
tíðina og ekki síst hefja strand-
veiðar. Fyrir-
tækið framleiðir
færavindur og
margs konar raf-
einda- og tækni-
búnað. „Þetta er
ákveðinn há-
punktur í við-
gerðum, menn að
gera sig tilbúna
fyrir sumarver-
tíð. […] Þegar
kemur að vindunum er þetta býsna
svipað og síðastliðin ár, kannski ei-
lítið líflegra á þessum tíma þegar
strandveiðarnar eru að byrja og svo
makríllinn í kjölfarið, það koma
miklir toppar í þetta.“
Hann segir að þótt ávallt hafi ver-
ið gert ráð fyrir að af vertíðinni yrði
hafi komið aðeins á óvart að tímabil-
ið hafi gefið jafn mörg verkefni og
raun ber vitni, þar sem virðist hafa
hægt á víða og verð á fiskmörkuðum
er heldur lágt. „Við höfum ekki tek-
ið eftir samdrætti í þessu miðað við
þennan árstíma.“ Kristján treystir
sér ekki til þess að giska á hversu
margir bátar nýti þjónustu DNG á
ári. Spurður hvort um sé að ræða
nokkra tugi báta svarar hann: „Nei,
það eru miklu fleiri, þetta er stand-
andi. Sumir koma á haustin og á
veturna þegar þeir eru ekki í útgerð
og aðrir koma í aðdraganda vertíð-
arinnar og skella þeim til okkar í yf-
irhalningu og eftirlit eða viðgerðir.
[…] Þetta er gríðarlegur fjöldi
hérna á Íslandi, það eru mörg
hundruð vindur í gangi og ekki allt
bundið við strandveiðar.“
Spurður hvort því sé ekki fagnað
að hafa nóg að gera í þessu árferði
kórónuveirunnar segir Kristján svo
vera. „Við höfum verið í fullum
gangi í gegnum Covid-ástandið. Það
hefur ekki verið lokað einn dag
hér.“
DNG þjónustar ekki bara íslensk-
an markað heldur hefur staðið í
talsverðri sölu og þjónustu við
útgerðaraðila víða um heim, að sögn
Kristjáns. „Þetta eru Norðmenn,
Írar, Skotar, Færeyingar mikið og
Grænlendingar. Nýfundnaland,
báðar strendur Bandaríkjanna að
hluta. Þetta er um allt, einu sinni
var Alaska markaðssvæði og svo er
þetta um hvippinn og hvappinn. Við
erum alveg niður í Nýja-Sjáland og
Ástralíu.“
Faraldurinn hafði lítil áhrif
Verkefnastaðan góð hjá öllum deildum Slippsins á Akureyri Náðu að standa við áætlanir þrátt
fyrir faraldurinn Gætu bætt við sig fleiri verkefnum ef hægt yrði að fá fagmenntað fólk til landsins
Rekstur Það hefur verið í mörgu að snúast á athafnasvæði Slippsins á Akureyri að undanförnu og er búist við að
það verði staðan áfram, að minnsta kosti fram á haust. Veirufaraldurinn er sagður hafa valdið fáum töfum.
Kristján B.
Garðarsson
Bergþór
Ævarsson
Ólafur
Ormsson
Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Þú finnur
gæðin!
Skoðaðu úrvalið
í netverslun
isleifur.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum