Morgunblaðið - 21.05.2020, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
F
rá því ljósmóðurnemi
tók á móti mínu fyrsta
barni þegar ég var
átján ára hefur það
verið draumur minn
að vinna við að taka á móti börn-
um. Á þeirri stundu varð ég ákveð-
in í að einn góðan verðurdag yrði
ég sjálf ljósmóðir,“ segir Klara
Jenný Húnfjörð Arnbjörnsdóttir
sem lýkur ljósmóðurnámi sínu í
næstu viku.
„Þetta hefur tekið sinn tíma,
að ná markmiðinu, það eru tíu ár
frá því ég lauk hjúkrunarfræði-
námi, sem er skilyrði fyrir því að
komast í sérnám í ljósmóður-
fræðum. Ég er að norðan og
ílengdist þar, en þegar ég flutti
suður fyrir þremur árum skellti ég
mér loks í þetta sérnám,“ segir
Klara, sem er eineggja tvíburi og
lenti í þeirri sjaldgæfu og
skemmtilegu tilviljun í náminu að
taka á móti eineggja tvíburum hjá
konu sem sjálf er tvíburi.
„Ekki nóg með það, heldur
kynntist ég hinni fæðandi móður,
Rakel Pálsdóttur, á barnsaldri í
leikskóla á Blönduósi. Við fjórar
lékum okkur rosamikið saman all-
ar fjórar, ég, Sara systir og Rakel
og Rebekka tvíburasystir hennar.
Við eigum minningar um mörg
sameiginleg prakkarastrik,“ segir
Klara og hlær.
Gömul vináttutengsl vakna
„Þetta er dásamleg tilviljun að
við vorum leiddar saman. Ég fór í
verknám í áhættumæðravernd og
fékk að fylgja þar þeirri einu tví-
buraljósmóður sem nú starfar á Ís-
landi, Ingibjörgu Eiríksdóttur. Ég
varð svo hrifin af öllu sem tengist
tvíburameðgöngum og fæðingum
að ég ákveð að einbeita mér að því
í lokaverkefni mínu. Einnig átti ég
í námi mínu að sinna konu í
áhættumæðravernd í svokölluðu
MFS-verkefni sem felur í sér sam-
fellu þar sem ég sinni konu á með-
göngu, í fæðingu og sængurlegu.
Helsta ósk mín var að finna konu
sem gengi með tvíbura, því ein-
eggja tvíburameðganga er jú
áhættumeðganga. Mér var þá bent
á konu sem væri barnshafandi að
eineggja tvíburum og þegar ég
ætlaði að hafa samband við hana
og sá nafnið hennar áttaði ég mig
á að þetta var hún Rakel, vinkonan
frá því ég var lítil stelpa, tvíburinn
í leikskólanum. Við höfum ekki
verið í samskiptum árum saman,
því fjölskylda mín flutti frá
Blönduósi þegar ég var sex ára.“
Klara segir að við þessa sam-
vinnu í verkefninu hafi aftur vakn-
að hin gömlu tengsl á milli hennar
og Rakelar.
„Ég fór með henni í nánast
hverja einustu mæðraskoðun og
fylgdi henni í eina sónarskoðun
líka. Ég tók á móti tvíburunum
hennar í fæðingu og sá um hana í
heimaþjónustu eftir fæðingu, enda
er þetta verkefni sem á að sýna
samfellu í þjónustu. Í lokaritgerð-
inni minni fjalla ég svo um reynslu
kvenna af tvíburaþungun, með
áherslu á sálræna líðan og stuðn-
ing ljósmæðra, en í tvíbura-
meðgöngu er aukin hætta á flest-
öllum fylgikvillum, bæði sálrænum
og líkamlegum.“
Ég gat ekki hamið tárin
Þegar Klara er spurð hvernig
tilfinningin hafi verið þegar hún
tók á móti tvíburum Rakelar segir
hún það hafa verið stórkostlegt.
Stúlkurnar tvær voru ekki teknar
með keisara heldur fæddi Rakel
þær.
„Fyrst þegar ég byrjaði í ljós-
móðurnáminu grét ég í hverri ein-
ustu fæðingu sem ég fékk að fylgj-
ast með. Þegar ég var komin vel á
veg og farin að taka sjálf á móti
börnum var ég meira að einbeita
mér svo það var minna pláss fyrir
tilfinningasemi. Fæðing er alltaf
jafn falleg, yndisleg og krefjandi,
en ég sem ljósmóðir hef nóg að
gera strax að fæðingu lokinni,
fylgjast með að fylgjan komi, hvort
það sé blæðing og fleira. En í fæð-
ingu tvíburastelpnanna hjá Rakel
gat ég ekki hamið tárin. Þegar ég
hafði tekið á móti litlu stúlkunum
og þær voru komnar í fangið á
mömmu sinni brast ég í grát. Ég
fann flæða yfir mig alls konar til-
finningar af því ég er sjálf tvíburi.
Ég veit að það er mikil vinna og
fyrirhöfn að ganga með og fæða
tvíbura. Það er afrek. Þar fyrir ut-
an var ég líka með pressu á mér
að standa mig sem allra best, því
þetta er jú vinkona mín. Þetta var
afar dýrmætt fyrir okkur báðar og
allt þetta meðgönguferli bjó til al-
veg nýjan vinskap okkar á milli.“
Vitum þegar hinni líður illa
Klara er sjálf þriggja barna
móðir en á ekki tvíbura.
„Eineggja er hálfgert krafta-
verk. Reyndar halda sumir því
fram að við Sara séum tvíeggja, af
því við komum í tveimur fylgjum,
en eineggja geta líka fæðst í
tveimur fylgjum. Mamma lét aldr-
ei tékka á því hvort við værum
eineggja en við erum alveg ná-
kvæmlega eins svo það er ekki vafi
á því. Við þekkjum okkur ekki
sjálfar í sundur á myndum fyrr en
eftir tíu ára aldur,“ segir Klara og
hlær. Hún segir það hafa verið
mikinn stuðning í uppvextinum að
eiga tvíburasystur.
„Við höfum alltaf verið bestu
vinkonur systurnar og það var
gott að hafa alltaf hinn helminginn
til staðar. Í uppvextinum kveið ég
aldrei fyrir neinum breytingum af
því ég vissi alltaf að ég hefði Söru
með mér, að við fylgdumst að,“
segir Klara og bætir við að þær
hafi flutt mjög oft þegar þær voru
litlar, bjuggu á Blönduósi, Ólafs-
firði og Dalvík.
„Ég varð eftir á Akureyri
þegar Sara flutti suður með for-
eldrum okkar þegar við vorum 18
ára og við bjuggum þá í 13 ár hvor
í sínum landshluta. Ég skil ekki
enn hvernig við fórum að því,“
segir Klara og hlær.
„Nú búum við í sama hverfi í
Reykjavík og við heyrumst á
hverjum degi og hittumst mjög
reglulega. Við erum mjög tengdar
og þannig hefur það alltaf verið,
við finnum oft á okkur ef hinni líð-
ur illa þótt við séum ekki saman.
Við eigum margar slíkar sögur, til
dæmis þegar ég var 14 ára að
keppa á Ísafirði á skíðum og fót-
brotnaði. Sara var allan daginn
grátandi í mömmu heima á Dalvík
og sagði að sér liði illa og vissi
ekkert af hverju. Þegar þau fengu
loks símhringingu um að ég væri
fótbrotin kom skýringin í ljós.
Þannig er þetta enn þann dag í
dag; við skiljum hvor aðra rosa-
lega vel, sem getur verið pressa á
makana, þeir skilja okkur aldrei
eins vel og við hvor aðra,“ segir
Klara og hlær.
„Þessi tengsl eru í raun stór-
furðuleg, og falleg. Ég hef ekki
séð neina galla við það að vera tví-
buri, mér finnst gott að vera þann-
ig hluti af annarri manneskju.“
Tvíburaþrenna með óvænt tengsl
Í byrjun mars tók kona
sem er tvíburi á móti tví-
burum hjá móður sem er
tvíburi. Tilviljun ein leiddi
þær Klöru og Rakel saman
í þessar aðstæður en þær
og tvíburasystur þeirra
höfðu leikið sér saman í
leikskóla litlar stúlkur en
ekki hist síðan þá.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tvíburaþrenna Klara (ljóshærð) og Rakel halda hér á tveggja mánaða tvíburadætrum Rakelar sem Klara tók á
móti. Við hlið Klöru er Sara tvíburasystir hennar og við hlið Rakelar er Rebekka tvíburasystir hennar.
2 vinnubúðir úr timbri,
15 m2 með WC, sturtu og eldhúskrók.
Rúm og dýnur ásamt lausamunum fylgja.
600.000 kr. m/vsk pr. stk.
Upplýsingar í síma 892 3388 / hjortur@isol.is
600.000 kr.