Morgunblaðið - 21.05.2020, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Vaka hefur verið að nota þetta land
til að geyma bílflök og ýmislegt ann-
að lauslegt. Það er ekkert leyfi fyrir
slíku,“ segir Haraldur Sverrisson,
bæjarstjóri í Mosfellsbæ.
Á fundi bæjarráðs Mosfellsbæjar í
gær var fjallað um nýtingu Vöku hf.
á landi fyrirtækisins á Leirvogs-
tungumelum. Í bókun sem sam-
þykkt var á fundinum kemur fram
að brotið hafi verið gegn reglum um
umgengni og nýtingu á landinu og
þrátt fyrir loforð um hreinsun hafi
fyrirtækið ekki brugðist við athuga-
semdum bæjaryfirvalda. Er úrbóta
krafist tafarlaust.
Bæjarstjórinn afar ósáttur
„Bæjarráð Mosfellsbæjar fer
fram á að heilbrigðiseftirlit Kjós-
arsvæðis bregðist hart við í málinu
og beiti tiltækum heimildum sem
eftirlitið hefur til þess að sjá til þess
að fyrirtækið bregðist við at-
hugasemdum og hætti brotum sín-
um um umgengi og óleyfilega nýt-
ingu landsins tafarlaust. Bæjarráð
skorar einnig á heilbrigðisnefnd
Kjósarsvæðis að fylgja málinu eftir
af fullum þunga,“ segir í bókuninni.
Í minnisblaði frá Tómasi Guðberg
Gíslasyni, umhverfisstjóra Mosfells-
bæjar, kemur fram að Vaka keypti
umrætt land árið 2018. Þar hyggist
fyrirtækið vera með starfsstöð í
framtíðinni og athafnasvæði. Þá er
rakið að kvartanir hafi borist í árs-
byrjun vegna slæmrar umgengni og
við eftirlit hafi komið í ljós að mikil
uppsöfnun hafi orðið á bílhræjum og
gámum á geymslusvæði sem áður
var í eigu Ístaks hf. Óskað var úr-
bóta. Í svarbréfi Vöku frá 18. febr-
úar var upplýst að fyrirtækið myndi
þegar hefjast handa við að hreinsa
svæðið og myndi það taka að
minnsta kosti fjórar vikur. Bæjar-
yfirvöld ákváðu að stöðva frekari
viðræður við Vöku þar til brugðist
hefði verið við með fullnægjandi
hætti.
„Við eftirlit umhverfissviðs hefur
komið í ljós að ekki hefur enn verið
brugðist við athugasemdum Mos-
fellsbæjar um hreinsun á svæðinu,
heldur virðast fleira rusl, þ.m.t. opn-
ir gámar með rusli, hafa bæst við á
svæðinu. Umgengni er því ennþá
mjög ábótavant og úrbóta þörf tafar-
laust,“ segir í minnisblaðinu.
Haraldur bæjarstjóri ítrekar
þessa skoðun í samtali við Morgun-
blaðið: „Okkur finnst þetta alls ekki
eiga heima á þessum stað og við er-
um ekki sátt við það hvernig þarna
er gengið um.“
Áföll dynja á fyrirtækinu
Valur Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Vöku, segir að forsvarsmenn
fyrirtækisins viti upp á sig skömm-
ina og reynt verði að bæta úr þessu
hið fyrsta. „Metnaður okkar stendur
til að laga þarna til en undanfarið
hefur hvert atvikið rekið annað og
tafið fyrir,“ segir hann og nefnir að
markaður með stál hafi lokast vegna
kórónuveirufaraldursins. Í kjölfarið
hafi þurft að setja starfsmenn á
hlutabætur segja fólki upp. „Svo
hjálpar ekki til að almenningur hef-
ur verið að henda þarna rusli. Þarna
eru meðal annars brotin klósett og
rusl í pokum. En að sjálfsögðu ætl-
um við að hafa þetta snyrtilegt,“
segir framkvæmdastjórinn. Hann
bætir við að búið sé að teikna höf-
uðstöðvar Vöku á svæðinu og metn-
aður verði lagður í frágang. Trjám
verði plantað við lóðarmörk til að
girða starfsemina af.
Lýsa óánægju með bílhræ og rusl
Bæjarráð Mosfellsbæjar kvartar yfir starfsemi Vöku á Tungumelum Vaka lofar bót og betrun
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á Tungumelum Eins og sjá má er mikið af bílhræjum og rusli á lóð Vöku.
Hof 1 Austurhús, Öræfum
Húsakostur er mjög glæsilegt einbýlishús og
sumarhús. Einbýlishúsið er um 120,1 m2 auk
þess sambyggt sérstakt gestaherbergi 28 m2
og geymsla 10,2 m2. Einbýlishúsið skiptist
í alrými með eldhúsi, 2 svefnherbergi, bað-
herbergi og þvottahús. Sumarhúsið er 32,2m2
stakstætt fullbúið hús með 1 svefnherbergi,
alrými með eldhúskróki og baðherbergi.
Helgadalur, Mosfellsbæ
Hér er um að ræða frábæra náttúruperlu
rétt við bæjarmörkin. Ágætur húsakostur.
Landstærð um 500 hektarar. Jörðinni
tilheyrir 20 mínútulítrar af heitu vatni.
Kalt vatn úr vatnsbóli úr hlíðinni fyrir ofan
bæinn. Töluverð skógrækt. Mjög áhugaverð
eign sem gefur ýmsa möguleika.
Lækargata 4, skrifstofuhúsnæði
Áhugavert skrifstofuhúsnæði á annari hæð
við Lækjargötu 4 í Reykjavík auk þess tvö
bílastæði í lokaðri bílageymslu. Um er að
ræða sex skrifstofuherbergi, elhúskrók og
snyrtingu. Lyfta og vel um gengin sameign.
Tvö stæði í lokuðu bílastæðishúsi. Gæti verið
laust við kaupsamning.
Tilboð óskast.
Krakkarnir í leikskólanum Geislabaugi fengu
loksins í gær að halda öskudagsgleði, en henni
hafði verið frestað vegna kórónuveirufaraldurs-
Eins og sést þarf að vanda vel til verka og ein-
beitingin leynir sér ekki í andliti þessa unga
herramanns sem þarna fær að spreyta sig.
ins. Brugðið var á leik af því tilefni og fengu
krakkarnir meðal annars að mála andlit sín og
slá apann úr tunnunni.
Langþráð öskudagsgleði í leikskólanum
Morgunblaðið/Eggert
Guðmundur
Franklín Jóns-
son, viðskipta- og
hagfræðingur, og
Guðni Th. Jó-
hannesson, for-
seti Íslands, hafa
skilað meðmæl-
endalistum vegna
framboðs til emb-
ættis forseta Ís-
lands í öllum
kjördæmum
landsins. Yfirkjörstjórnir yfirfara
listana.
Frambjóðendur þurfa að skila
framboðum til dómsmálaráðuneyt-
isins eigi síðar en á morgun, föstu-
dag. Framboði skal fylgja samþykki
forsetaefnis, nægilegur fjöldi með-
mælenda og vottorð yfirkjörstjórna
um að meðmælendur séu kosninga-
bærir. Ráðuneytið auglýsir eigi síð-
ar en föstudaginn 29. maí hverjir
verða í kjöri.
Forsetakosningar verða laugar-
daginn 27. júní, ef fleiri en eitt gilt
framboð berast.
Tveir skila
meðmæl-
endalistum
Auglýst fljótlega
hverjir verða í kjöri
Atkvæði Kosið
verður 27. júní.
Tilkynnt var í gær að eitt nýtt smit
af kórónuveirunni hefði greinst á
undangengnum sólarhring. Er það
fimmta smitið sem greinst hefur til
þessa í maímánuði, en tekin hafa
verið um það bil 7.500 sýni í mán-
uðinum.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir sagði í gær á upplýsinga-
fundi almannavarna að verkefna-
hópur ríkisstjórnarinnar ynni að því
að finna leiðir til að opna landið fyrir
ferðamönnum og skilar hann niður-
stöðum 25. maí. Í framhaldinu mun
hann skila heilbrigðisráðherra til-
lögu um tilslakanir á landamærum.
Þórólfur sagði ekki tímabært að
segja til um hvenær þær tækju gildi.
Eitt nýtt smit og
fimm í maímánuði
1.803
staðfest smit
1
nýtt smit
828
í sóttkví
20.132
lokið sóttkví
4
virk smit
1.789
náð bata
0
á sjúrahúsi
10
andlát
57.628
sýni tekin
Tillögur um opnun landsins 25. maí