Morgunblaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Þegar við deilum lífi okkarmeð öðrum er mikilvægtað velta fyrir sér hvað viðviljum fá út úr samband-
inu og hvernig við viljum sjá það
þróast. Við þurfum að vita hvernig
við viljum að komið sé fram við okk-
ur og láta vita af því.
Heilbrigð sambönd
Hafir þú áhyggjur af því að sam-
band þitt við einhvern sé að þróast
út í eitthvað sem þú vilt ekki er gott
að skoða hvað heilbrigð sambönd
fela í sér.
Sambönd fólks eru mismunandi
en það eru nokkur atriði sem ein-
kenna heilbrigt samband. Í heil-
brigðu sambandi ríkir jafnrétti,
heiðarleiki, virðing og samskiptin
eru góð.
Í góðum samböndum eru góðu
tímarnir fleiri en þeir slæmu þó að
ekkert samband sé fullkomið. Engin
manneskja er nákvæmlega eins og
við viljum hafa hana. Allir hafa sína
kosti og galla. Hver og einn ber
ábyrgð á framkomu sinni við annað
fólk.
Ofbeldi í samböndum
Ofbeldi í samböndum byrjar hægt
og bítandi og því getur verið erfitt
að átta sig á hvað er í raun að ger-
ast. Það byrjar gjarnan með and-
legu ofbeldi og kúgun en getur svo
undið upp á sig. Þá er þegar búið að
brjóta þolanda niður svo honum
reynist erfitt að leita sér aðstoðar.
Andlegt ofbeldi er notað til að
brjóta manneskju markvisst niður
og höggva í sjálfsmynd og sjálfs-
virðingu. Það er meðal annars gert
með því að hóta, niðurlægja, barn-
gera, einangra og ráðast að við-
komandi með orðum. Andlegt of-
beldi getur verið af ýmsum toga en
varast ber að nota hugtakið yfir
skoðanaskipti, rifrildi eða ósam-
komulag sem hendir alla einhvern-
tímann.
Þegar ofbeldi er endurtekin
hegðun eru litlar líkur á að það
muni einn daginn hætta af sjálfu
sér án þess að gerandi fái sér-
fræðiaðstoð. Það er því til lítils að
bíða þess að viðkomandi hætti allt í
einu uppteknum hætti eða að þol-
andi geti með hegðun sinni séð til
þess að aldrei verði ástæða til
árekstra.
Heimilisofbeldi
Heimilisofbeldi er því miður allt
of algengt. Það er oft falið og erfitt
að átta sig á því. Heimilið nýtur
friðhelgi og innan veggja þess geta
gerst hlutir sem fara algerlega
fram hjá öðrum.
Að átta sig á því að maður sjálfur
eða einhver sem manni er annt um
búi við ofbeldi af hálfu maka síns,
eða annarra nákominna, er mikið
áfall. Verið getur að þolandi hafi
markvisst verið brotinn niður árum
saman. Það er hluti andlegs og fé-
lagslegs ofbeldis að gera þolandann
bjargarlausan. Þolandi veit ef til
vill ekkert um fjárhagslega stöðu
sína, hefur lítið tengslanet og óttast
ef til vill afleiðingar sambandsslita
bæði fyrir sig og börn sín ef þau
eru til staðar.
Einkenni heimilisofbeldis
Heimilisofbeldi birtist í ýmsum
myndum en í öllum tilvikum er um
að ræða að gerandi hefur vald og
stjórn á þolandanum.
Birtingarmyndir geta til dæmis
verið:
Tilfinningalegt ofbeldi
Ógnanir og hótanir
Líkamlegt ofbeldi
Kynferðisofbeldi
Hefur þú óttast um öryggi þitt í
samskiptum við þína nánustu, fjöl-
skyldu eða vini?
Fáðu hjálp
Ef þú heldur að þú sért í ofbeld-
issambandi er mikilvægt að vita að
það er fólk tilbúið að hjálpa þér.
Þú þarft ekki að bíða eftir því að
neyðarástand skapist til að leita
þér hjálpar. Þú getur leitað til:
Vinar eða fjölskyldumeðlims sem
þú treystir.
Læknis, hjúkrunarfræðings eða
ljósmóður hjá heilsugæslunni.
Á heilsuvera.is er listi yfir opin-
bera aðila og félagasamtök sem
geta aðstoðað þig.
Í neyðartilvikum hringdu í 112.
Á heilsuvera.is er mikið af upp-
lýsingum um samskipti, heilbrigð
sambönd, leiðir til að leysa ágrein-
ing og fleira sem okkur öllum er
hollt að rifja upp reglulega.
Ofbeldi í samböndum
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Ofbeldi Ýmis aðstoð í boði fyrir þá sem verða fyrir ofbeldi í samböndum.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Heilsuráð
Margrét Héðinsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Háskólinn í Reykjavík býður lands-
mönnum að læra nýsköpun á netinu.
Allt námsefni í námskeiðinu Nýsköp-
un og stofnun fyrirtækja er komið út
á vef skólans, www.hr.is. Þar með
geta allir landsmenn færst skrefi nær
því að vera frumkvöðlar.
Námsefnið fjallar um hvernig þróa
á hugmynd að nýrri vöru eða þjón-
ustu, gera fjárhagsáætlun, fara í
gegnum hönnunarsprett, prófa vör-
una og fjármagna hana. Á síðunni er
hægt að horfa á kennslustundir og
viðtöl við fremstu frumkvöðla lands-
ins. Þar er einnig bent á fjölbreytt
fræðsluefni á netinu sem nýtist
frumkvöðlum.
Nýverið lauk þriggja vikna nám-
skeiðinu Nýsköpun og stofnun fyr-
irtækja, sem flestir nemendur HR í
lok vorannar á fyrsta ári tóku. 112
hópar nemenda, úr öllum deildum,
þróuðu jafnmargar nýsköpunar-
hugmyndir. Verðlaun voru veitt fyrir
fjórar hugmyndir. Þau fyrstu hlaut
hópur nemenda sem þróaði hugbún-
aðinn Healie, smáforrit fyrir læknis-
meðferð.
Háskólinn í Reykjavík
Nám á netinu
í nýsköpun
Nýsköpun Healie-hópurinn vann.
hjolhysi.com
Allar nánari upplýsingar og pantanir í síma 863 4449 og 778 2294,
hjolhysi.com, kriben@simnet.is, www.facebook.com/hjolhysi
Bæjarhraun 24, Hafnarfirði • Opið virka daga kl. 11-18 og laugard. kl. 12-16
Uppblásin fortjöld og hjólhýsahreyfar
Hjólhýsa mover
Verð frá 169.000 kr.
TRIGANO
Lima 410
Eftirfarandi aukahlutir
fylgja með:
• Dúkur í fortjald
• Þak klæðning-Roof lining
• Pumpa, svunta, stangir o.fl.
169.000
TRIGANO
Lima 300
Eftirfarandi aukahlutir
fylgja með:
• Dúkur í fortjald
• Þak klæðning-Roof lining
• Pumpa, svunta, stangir o.fl.
149.000
TRIGANO
Bali XL
Getur staðið
eitt og sér.
L 300
d 310
h 250-280
139.000
STÓR-
KOSTLEGT
VERÐ
Opið í dag, uppstigningardag kl. 12-16