Morgunblaðið - 21.05.2020, Page 16
BASKVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Seðlabankinn spáir því í nýjum Pen-
ingamálum að atvinnuleysi geti farið
í 12% á þriðja ársfjórðungi. Það sé
mesta atvinnuleysi sem um getur
síðan skipulegar mælingar hófust.
Eins og sýnt er á grafinu hér til
hliðar gæti það samsvarað því að um
26 þúsund manns verði án vinnu.
Það yrði fjölgun um 9-10 þúsund
manns frá aprílmánuði.
Að auki voru um 32.800 manns á
hlutabótaleiðinni í apríl en sú leið
var í boði fyrir fólk sem bjó við skert
starfshlutfall út af faraldrinum.
Vinnumálastofnun umreiknar
þennan fjölda í atvinnuleysis-
prósentur með því að leggja saman
skerðingu á starfshlutfalli. Ef til
dæmis tveir fara í 50% vinnu jafn-
gildir það því að einn sé án vinnu.
Margir í byggingariðnaði
Vinnumálastofnun hefur tekið
saman tölfræði yfir atvinnuleysi er-
lendra ríkisborgara og skiptingu
eftir starfsgreinum. Leiðir sú grein-
ing í ljós að hlutfallið er um 7% í
fiskveiðum, fiskeldi og vinnslu, um
8% í iðnaði og um 14% í bygging-
ariðnaði. Eins og sýnt er á grafinu
hér hægra megin er hlutfallið líka
yfir 10% í verslun, gistiþjónustu og
veitingaþjónustu. Af því leiðir að
samdráttur í ferðaþjónustu á mikinn
þátt í atvinnuleysi erlendra ríkis-
borgara.
Skal tekið fram að hlutföllin vísa
til skiptingar atvinnuleysis innan
hópsins en ekki hlutfalls hans af
heildarfjölda atvinnulausra.
Verði um 30% atvinnulausra
Karl Sigurðsson, sérfræðingur
hjá Vinnumálastofnun, segir mega
áætla út frá þróun síðustu vikna að
um 30% þeirra sem verða án vinnu í
sumar verði erlendir ríkisborgarar.
Ef spá Seðlabankans gengur eftir
gætu því um 8 þúsund erlendir ríkis-
borgarar verið án vinnu í sumar.
Fram kom í máli Þórarins G. Pét-
urssonar, aðalhagfræðings Seðla-
bankans, á kynningarfundi vegna
vaxtaákvörðunar að óvissa væri um
hagspár við þessar aðstæður.
„Það er mjög mikil óvissa um allt,
ekki síst um þessar tölur,“ segir Þór-
arinn í samtali við Morgunblaðið.
Óvissa um aðlögunina
„Það er vegna þess að við vitum
ekki hvernig aðlögunin mun eiga sér
stað. Hún getur orðið með fjölmörg-
um hætti á vinnumarkaði. Það getur
verið að fleiri muni fari í hlutastörf
eða hverfi af vinnumarkaði. Þá verð-
ur atvinnuleysið ekki jafn mikið,
heldur verða viðbrögðin með öðrum
hætti. Við sáum það til dæmis eftir
fjármálakreppuna [2008-9] að margt
fólk hvarf af vinnumarkaði. Það
flutti ekki aðeins til útlanda heldur
fór til dæmis í nám. Þá má benda á
að þegar svona farsótt geisar sér
margt fólk kannski ekki tilganginn
með því að vera virkt í atvinnuleit.
En fólk er ekki skráð atvinnulaust
nema það sé í virkri atvinnuleit,“
segir Þórarinn.
Birta ekki sundurliðunina
Seðlabankinn styðjist í þessu efni
við skilgreininguna í vinnumark-
aðskönnun Hagstofunnar en ekki við
skilgreiningu Vinnumálastofnunar.
Þórarinn segir aðspurður að
26 þúsund gætu verið án vinnu
Svört spá Seðlabankans fyrir sumarið Aðalhagfræðingur bankans segir þó mikla óvissu í spánni
Ef ferðaþjónustan nái sér á strik geti talan orðið lægri Margir erlendir ríkisborgarar án vinnu
17,8%
14,8%
12,0%
Spár um atvinnuleysi næstu mánuði
Áætlun VMST fyrir maí* og spá Seðlabankans fyrir þriðja ársfjórðung**
Íslendingar
(35.343)
Erlendir
ríkisborgarar
(13.900)
Apríl 2020* Maí (spá)* 3. ársfj. (spá)**
Almennt atvinnuleysi Hlutabótaleið Samtals
Atvinnuleysi í apríl 7,5% 10,3% 17,8%
Fjöldi einstaklinga 16.443 32.800*** 49.243
- þar af erlendir ríkisborgarar 5.700 8.200 13.900
Spá VMST um atvinnuleysi í maí 7,2% 7,6% 14,8%
Fjöldi einstaklinga***** 15.785 24.202*** 39.987
Spá Seðlabankans fyrir 3. ársfj. 2020 12,0%
Fjöldi einstaklinga**** 26.309
- þar af erlendir ríkisborgarar***** 7.893
*Mánaðarskýrsla Vinnumálastofnunar um atvinnuleysi í apríl. **Peningamál Seðlabankans, birt í gær, 20. maí.
***Fjöldatalan vísar til einstaklinga en prósentutalan er fjöldinn margfaldaður með starfshlutfalli. Þ.e.a.s.
ef til dæmis tveir einstaklingar fara í 50% starfshlutfall jafngildir það því að einn sé atvinnulaus.
****Útreikningar Morgunblaðsins. *****Áætlun Karls Sigurðssonar, sérfræðings hjá Vinnumálastofnun, fyrir blaðið.
Alls
49.243
einstak-
lingar
Atvinnuleysi í apríl
eftir ríkisfangi
Fjöldi einstaklinga
72%
7,5%
10,3%
7,2%
7,6%
Vegna skerts starfshlutfalls
Alm. atvinnuleysi
bankinn birti ekki sundurliðaðar
spár um atvinnuleysi eftir hlutfalli
erlendra og íslenskra ríkisborgara
né heldur skiptingu atvinnuleysis
milli atvinnugreina.
Þá segir hann aðspurður að ef
ferðaþjónustan fer í gang í sumar
kunni atvinnuleysið að reynast
minna en bankinn spái nú.
Fjallað er um það í Peninga-
málum að stjórnvöld hafi ákveðið að
flýta umsvifamiklum fjárfestingar-
verkefnum og auka heildarfjárfest-
ingu hins opinbera um 20 milljarða
króna frá því sem var ákveðið.
Taka tillit til fjárfestingar
Spurður um áhrifin á atvinnuleys-
ið segir Þórarinn að tekið sé tillit til
þessa í spá Seðlabankans fyrir
þriðja fjórðung. „Ef það hefði ekki
komið til þessara aðgerða hefði at-
vinnuleysið væntanlega orðið
meira,“ segir Þórarinn.
Seðlabankinn geri ráð fyrir ein-
hverjum brottflutningi erlends
vinnuafls vegna samdráttar. Þó
megi reikna með að meirihluti er-
lendra ríkisborgara muni kjósa að
búa áfram á Íslandi.
En sú var einmitt raunin eftir
fjármálakreppuna 2008. Þá má
benda á að víða í Evrópu er staða
efnahagsmála mun verri en hér.
Aukið náttúrulegt atvinnuleysi
Loks segir Þórarinn útlit fyrir að
náttúrulegt atvinnuleysi muni
aukast á næstunni. En hvað skyldi
það hagfræðihugtak þýða?
„Það sem við erum að vísa í er að
við eðlilega nýtingu framleiðsluþátta
í hagkerfinu, þar sem verðbólga er
við markmið og framleiðsluþættir
fullnýttir, er alltaf eitthvert atvinnu-
leysi. Fólk er að segja upp starfi,
leita að annarri vinnu og flæða milli
greina,“ segir Þórarinn.
Skipting atvinnuleysis erlendra ríkisborgara
Hlutfallsleg skipting þeirra eftir atvinnugreinum í apríl
1,0% 0,7%
6,6% 4,2%
8,5% 10,3%
0,4% 0,4%
14,4% 4,5%
13,6% 12,6%
2,4% 4,2%
11,8% 21,8%
12,6% 15,9%
8,2% 13,6%
0,7% 0,7%
0,6% 0,2%
1,4% 0,3%
2,4% 1,9%
8,2% 3,3%
3,8% 0,7%
3,4% 4,8%
Landbúnaður
Fiskveiðar, fiskeldi og fiskvinnsla
Iðnaður
Sorp og veitur
Byggingariðnaður
Verslun og vöruflutningar
Farþegaflutningar með flugi
Gistiþjónusta
Veitingaþjónusta
Ferðaþjónusta ýmis
Upplýsingatækni og útgáfa
Fjármál og tryggingar
Fasteignasala og -leiga
Sérfræðiþjónusta
Ýmis þjónustustarfsemi
Opinber þjónusta, fræðsla, heilbr.- og fél.þjón.
Listir, söfn, tómst., félög, pers. þjón. o.fl.
Heimild:
Vinnumálastofnun
Almennt
atvinnuleysi
Hlutabótaleið
(skert starfs-
hlutfall)
Karl
Sigurðsson
Þórarinn G.
Pétursson
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Það sem þátttakendur uppskera:
• Þor til að koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa áhrif
• Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu
• Hugrekki til að segja sína skoðun og taka þátt í umræðum
• Leiðir til að kynnast nýju fólki, bæta samskipti og styrkja sambönd
• Betra skipulag og skýrari markmið
• Jákvætt viðhorf og kvíða/streitu stjórnun
“Égvissi ekki aðégværi óstöðvandi!”
Skráning er hafin á námskeið sumarsins
Næstu námskeið:
18-25 ára • 21. júlí kl 8.30-17:00 3 dagar í röð
16-19 ára • 26. maí kl 18:00-22:00 8 skipti á 4 vikum
16-19 ára • 10. ágúst kl 18:00-22:00 8 skipti á 4 vikum
20-25 ára • 25. maí kl 18:00-22:00 8 skipti á 4 vikum - Örfá sæti laus
20-25 ára • 4. ágúst kl 18:00-22:00 8 skipti á 4 vikum
Kynntu þér dagsetningar fyrir 10-12 ára og 13-15 ára á dale.is eða í síma 5557080
Skráning í ókeypis kynningartímaádale.is/ungtfolk
Copyright©2020DaleCarnegie&Associates, Inc. All rights reserved. Gen next 050820Ad25x15