Morgunblaðið - 21.05.2020, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Eftir að ég eignaðist alvöru
myndavél og fór að hafa meiri tíma
hóf ég að taka myndir af hlutum
sem ég hafði haft áhuga á en ekki
getað sinnt. Það eru aðallega nær-
myndir úr íslenskri náttúru. Ég hef
líka þurft að vinna með mynd-
vinnsluforrit í starfi mínu og fór að
gera tilraunir. Ég er ekkert feim-
inn við að gera úr hráefninu þá
mynd sem mér líkar,“ segir Áskell
Þórisson áhugaljósmyndari sem
sýnir verk sín í Gallerí Vest á
morgun og laugardag.
Áskell segist oft fara með
myndavélina af stað og taka marg-
ar ljósmyndir í ferðinni, stundum
geti hann enga nýtt í framhalds-
vinnslu en stundum gangi betur.
Hann setjist síðan niður við tölvuna
og geri tilraunir með hráefnið.
„Ég dreg fram liti sem mér
finnst fallegir. Það kemur fyrir að
mér þyki útkoman gefa góð fyrir-
heit og þá hætti ég ekki fyrr en
myndin er orðin áhugaverð,“ segir
Áskell.
Hann segir að það hafi helst
valdið sér vandræðum hvað dýrt er
að stunda þetta áhugamál og hon-
um hafi stundum verið bent á að
heimilisbókhaldið krefjist þess að
eitthvað komi á móti. „Ég hef svo
sem selt myndir en veit að ég er af-
burðalélegur sölumaður.“
Áskell hefur stefnt að því um
tíma að setja upp sýningu og greip
gæsina þegar hann fékk aðstöðu í
Galleríi Vest á Hagamel 67 í
Reykjavík og kveðst þakklátur fyr-
ir það. Þar vonast hann til að
geta jafnvel selt einhverjar
myndir svo heimilisbókhaldið kom-
ist í jafnvægi.
Tveir dagar eru langur tími
Sýningin stendur ekki lengi, hún
verður opnuð síðdegis á morgun,
föstudag, og verður síðan opinn frá
kl. 13 til 17 á laugardag. „Tveir
dagar eru langir í lífi fjölmiðla-
manns,“ segir Áskell þegar hann er
spurður um þennan skamma tíma
en hann starfaði lengi sem blaða-
maður, meðal annars sem ritstjóri
Bændablaðsins og Dags á Akur-
eyri. Hann starfar nú við útgáfu-
og fræðslumál hjá Landgræðsl-
unni.
Sýnir nærmyndir úr náttúrunni
Myndvinnsla í tölvunni er framlenging á myndatökunni hjá Áskeli Þórissyni áhugaljósmyndara
Vinnur myndirnar sínar þar til þær verða áhugaverðar Sýnir myndir í Gallerí Vest í tvo daga
Ljósmynd/aðsend
Listaverk úr náttúrunni Áskell Þórisson við eina af myndunum sem hann hefur unnið og látið prenta á striga.
Rannsókn lögreglu á upptökum elds
sem kom upp í einu elsta húsi Akur-
eyrar í fyrrakvöld hófst í gær. Lög-
reglumenn frá rannsóknardeild lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
fóru norður í gær til að aðstoða lög-
regluna á Norðurlandi eystra. Rann-
sókn á vettvangi hússins í Hafnar-
stræti 37 stóð fram undir kvöld en
var ekki lokið.
Reykkafarar fundu einn mann í
brennandi húsinu og var honum
komið á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Hann var alvarlega slasaður og
fluttur með sjúkraflugvél til Reykja-
víkur og lagður inn á Landspítalann.
Rannsókn
stendur yfir
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Rústir Íbúðarhúsið í Hafnarstræti er ónýtt eftir brunann í fyrrakvöld.
Fangelsismálastofnun hefur ákveð-
ið að aflétta öllum höftum vegna
kórónuveirunnar er gilt hafa í fang-
elsum landsins frá því er neyðar-
stigi var lýst yfir. Tekur þetta gildi
25. maí nk.
Stofnunin segir í tilkynningu að
áfram gildi þó áherslur sóttvarnar-
yfirvalda um handþvott, sprittun og
almennt að virða tveggja metra
regluna eftir því sem því verður við
komið. Þá er einnig í gildi reglan
um að þeir sem séu í sóttkví eða
smitaðir eigi ekki að koma í fang-
elsi.
„Engir skjólstæðingar Fangelsis-
málastofnunar eða starfsmenn hafa
smitast af veirunni og er full
ástæða til að þakka starfsmönnum,
samstarfsaðilum og föngum fyrir
góða framgöngu við erfiðar að-
stæður,“ segir í tilkynningunni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fangelsið á Hólmsheiði Höftum vegna kórónuveiru hefur verið aflétt.
Sóttvarnahöftum
aflétt í fangelsum
GJÖFIN TIL
ÍSLENZKRAR
ALÞÝÐU
Falleg bók ummyndlist
– tilvalin útskriftagjöf
Fæst í bókaverslunum
og vefverslunwww.listasafnasi.is
Ármúli 8 I 108 Reykjavík I Sími 516 0600 I www.birgisson.is
HLJÓÐDEMPANDI
OG EINANGRANDI
VIÐARLOFT &
VIÐARVEGGIR