Morgunblaðið - 21.05.2020, Síða 20
BORGARBYGGÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Kíktu á B59 í notalega helgarferð,
eða bara hvenær sem er!
B59 hótel er nútímalegt, fjögurra stjörnu hótel í miðbæ Borgar-
ness, aðeins í um klukkustundar akstri frá Reykjavík með öllum
hugsanlegum þægindum
Sumartilboð sem gildir í maí og júní: Gisting, þriggja rétta
kvöldverður, freyðandi fordrykkur og aðgangur að Lóu heilsulind á
24.900.- gildir fyrir tvo.
Sími 419-5959 • www.b59hotel.is/home/ • info@b59hotel.is
Opnað
föstudaginn
29. maí
Upplifðu kjarna íslenskrar náttúru
Krauma eru náttúrulaugar við Deildartungu-
hver, vatnsmesta hver í Evrópu. Á staðnum
er glæsilegt veitingahús sem leggur áherslu
á ferskt hráefni úr héraði með áherslu á gæði.
Sími 555 6066 • www.krauma.is • krauma@krauma.is
Arctic Adventures er íslenskt afþreyingarfyrirtæki með fjölbreytta
möguleika fyrir einstalinga og stóra sem smáa hópa. Hvort sem
það er hvalaskoðun, snorkl, flúðasigling, jöklaferðir, nú eða
hellaskoðun, þá er Arctic Adventures algjörlega málið.
Sími 562 7000 • www.adventures.is
Sími 433-6600 • www.icelandairhotels.com/en/hotels/hamar
hamar@icehotels.is
SÍMI 435 1551 • WWW.HUSAFELL.IS • BOOKING@HOTELHUSAFELL.IS
HÓTEL HÚSAFELL
Hótel Húsafell er staður þar sem friðsæld og lúxus sameinast ævintýrum og
einstakri náttúruupplifun. Á Húsafelli bjóðum við uppá fjölbreytta afþreyingu
í fallegu umhverfi. Hótel Húsafell er fyrsta hótelið á Norðurlöndum sem
hlotnast sá heiður að vera á lista National Geographic yfir unique lodges í
heiminum.
Sumarið 2020 bjóðum við pakka á einstökum verðum.
Kynntu þér frábært tilboð inni á heimsíðunni okkar husafell.is
Icelandair hótel Hamar
er rétt fyrir utan Borgarnes
Þar upplifir þú kyrrð og friðsæld í dýrðlegu umhverfimeð öll
þægindi innan handar og hinn einstaka golfvöll í Borgarnesi á
veröndinni.
Kíktu á heimasíðuna og skoðaðu gjafabréfin og tilboðin.
Heilsulindin Krauma er í uppá-
haldi hjá bæði gestum og heima-
mönnum í Borgarbyggð. Um er að
ræða merkilegt verkefni sem nýtir
sjóðandi heitt vatn sem fengið er
úr Deildartunguhver og kælir það
niður með ísköldu vatni undan öxl-
um Oks sem,
eins og lesendur
vita, var allt þar
til nýlega
minnsti jökull Ís-
lands.
„Við blöndum
heita og kalda
vatninu saman
og bjóðum upp á
fimm heita potta
og einn kaldan.
Heitu pottarnir eru misheitir, frá
37 °C upp í 43 °C. Við blöndum
ekki klór við vatnið heldur höfum
mikið gegnumstreymi til að halda
pottunum hreinum. Þá er vatnið
steinefnaríkt og þykir mörgum að
heimsókn í Krauma geri húðinni
gott,“ útskýrir Jónas Friðrik
Hjartarson, framkvæmdastjóri
heilsulindarinnar. „Til viðbótar
bjóðum við upp á tvö vatnsgufuböð
og hvíldarherbergi þar sem eldur
logar í arni og hægt er að slaka á
við róandi tónlist.“
Ekki er nóg með að Krauma
bjóði upp á nærandi og róandi
stund fyrir líkama og sál heldur
þykir það upplifun fyrir bragð-
laukana að heimsækja veitinga-
staðinn sem þar er rekinn. „Þar
leggjum við ríka áherslu á gott
samband við bændurna á svæðinu
og reynum að nota eins mikið og
við getum af hráefni úr héraði, og
þá það sem er ferskast hverju
sinni. Við vinnum líka með ýmsum
matvælaframleiðendum á svæðinu,
seljum t.d. handverksbjór frá
Steðja og lúxusís frá ísgerðinni
Laufey.“
Eins og öðrum baðstöðum þurfti
að loka Kraumu tímabundið vegna
smitvarnaaðgerða í kórónuveiru-
faraldri en starfsfólkið þar vinnur
núna hörðum höndum að því að
hefja rekstur að nýju 29. maí. Hef-
ur heilsulindin verið þrifin hátt og
lágt og innleiddir verkferlar sem
fullnægja ýtrustu hollustukröfum.
„Ef þess þarf getum við stýrt því
hversu margir eru í heilsulindinni
hverju sinni en gestir ættu að geta
viðhaldið hæfilegum aðskilnaði of-
an í pottunum og í búningsklef-
unum. Þá höfum við búið þannig
um veitingastaðinn að góð fjar-
lægð er á milli matargesta og vita-
skuld hægt að snæða utandyra ef
veður leyfir.“ ai@mbl.is
Fylla heitu pottana með
hvera- og jökulvatni
Þægindi Nóg pláss er fyrir gesti í heilsulindinni, og auðvelt að slaka á.
Jónas Friðrik
Hjartarson
● Veitingastaður Krauma er í uppáhaldi hjá mörgum
Það tekur ekki nema rétt rúmlega
klukkustund að aka frá Reykjavík
til Borgarbyggðar en þegar þangað
er komið er auðvelt að verja mörg-
um dögum í að skoða söfn, kirkjur
og undur náttúrunnar, heimsækja
heilsulindir og framúrskarandi veit-
ingastaði og verja nóttinni á vist-
legu tjaldsvæði,
þægilegu hóteli
eða gistiheimili
þar sem öll um-
gjörð, þjónusta
og gestrisni eru
eins og best
verður á kosið.
Björk Júlíana
Jóelsdóttir, verk-
efnastjóri mark-
aðsmála hjá
Markaðsstofu Vesturlands, segir að
mikil sprenging hafi orðið í ferða-
þjónustu á svæðinu bara á síðustu
fimm eða sex árum og muni þar
ekki síst um opnun ísganganna í
Langjökli og Hótel Húsafells árið
2015. „Síðan þá hefur hreinlega
verið ótrúlega mikið að gera og alls
konar þjónusta og afþreying bæst
við framboðið. Er ekki nokkur
vandi að verja heilli viku á þessu
svæði og gera eitthvað nýtt hvern
dag.“
Nú er upplagt fyrir landann að
endurnýja kynnin af Borgarbyggð,
enda má reikna með að á helstu
áfangastöðum ferðamanna verði ró-
legra en venjulega þangað til kom-
ur erlendra gesta fara aftur í eðli-
legt horf. Eiga örugglega margir
t.d. enn eftir að heimsækja ísgöngin
í Langjökli og segir Björk að upplif-
unin sé alveg einstök. „Að ganga
inn í jökulinn er hreinlega ótrúlegt
og nokkuð sem allir aldurshópar
hafa gaman af, og líka tækifæri til
að læra þá merkilegu sögu sem jök-
ullinn geymir og birtist t.d. í ösku-
lögunum sem sjást þegar gengið er
eftir ísgöngunum. Það sama má
segja um Víðgelmi, sem er stærstur
allra hraunhella á Íslandi og ein-
staklega aðgengilegur gestum “
Freistingar af ýmsu tagi
Matgæðingar ættu að gera sér
sérstaka ferð til Borgarbyggðar og
segir Björk að þó að þjóðvega-
sjoppan Hyrnan skipi sérstakan
sess í hjörtum margra landsmanna
geymi Borgarnesbær og nágrenni
marga fyrsta flokks veitingastaði í
bland við setur og sýningar, garða
og göngustíga sem gaman er að
rölta um.
Af veitingastöðunum á svæðinu
má nefna Englendingavík, þar sem
njóta má vandaðra rétta og fallegs
útsýnis, og Geirabakarí, sem
heimamenn eru á einu máli um að
sé eitt allrabesta bakarí og kaffihús
landsins. „Sundlaugin í bænum lað-
ar marga til sín, með rennibraut,
gufuböð og notalega heita potta. Þá
er Skallagrímsgarður fallegur
sælureitur, og börnin gleyma ekki
heimsókn í Bjössaróló, Lata-
bæjarsafnið eða fuglasýninguna í
Safnahúsi Borgarfjarðar. Land-
námssetrið ættu líka allir að heim-
sækja enda sýningarnar þar fræð-
andi og umgjörðin flott, að
ógleymdum veitingastaðnum þar
sem er í uppáhaldi hjá mörgum.
Þeir sem beygja til vinstri við
Hyrnuna, á leið sinni norður í land,
munu uppgötva að Borgarnes er
ótrúlega huggulegur bær sem býð-
ur upp á margt að gera og sjá.“
Þegar komið er út fyrir Borgar-
nesbæ er líka ótalmargt í boði fyrir
ferðalanga. Geitfjársetrið Háafell
tekur vel á móti gestum og geta
áhugasamir meira að segja tekið
geit í fóstur og þannig lagt sitt af
mörkum við verndun íslenska geita-
stofnsins. Fjórir golfvellir eru á
svæðinu, fimm sundlaugar og sex
hestaleigur sem bjóða upp á bæði
styttri og lengri ferðir. Af nátt-
úruundrum má nefna Hraunfossa,
sem þykja með allra fallegustu
fossum á landinu, og Deild-
artunguhver, sem er vatnsmesti
hver Evrópu. ai@mbl.is
Margt að sjá og gera
● Golfvellir, hestaleigur, náttúruundur, hátíðir, ljúffengur
matur og góðir gistimöguleikar bíða í Borgarbyggð
Björk Júlíana
Jóelsdóttir
Rétt hjá Hraunfossar eru ein af mörgum perlum Borgarbyggðar.