Morgunblaðið - 21.05.2020, Page 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Elsku Álfhildur
mín. Við kynntust
’91, þegar ég og Óð-
inn byrjuðum sam-
an. Þú tókst mér
strax opnum örmum og höfum
við haldið sambandi síðan, þrátt
fyrir sambandsslit okkar Óðins.
Þú hefur verið mér góð tengda-
mamma, vinkona og amma
barnanna mína. Þú varst alltaf
svo góð við börnin mín, bæði þau
sem voru þér blóðtengd og þau
sem voru það ekki.
Ég á margar góðar minningar
um þig og ætla ég að nefna
nokkrar hér.
Ég man hvað þú varst alltaf
mikill dýravinur og þú þoldir ekki
að vita til þess að illa væri farið
með dýr. Þú áttir yndislegan
hund, Tönju, og var hún alveg
einstök. Daniel og Alice þótti svo
vænt um hana og þau byrjuðu að
kalla þig ömmu Tönju, til að
greina á milli ammanna, og það
nafn festist við þig eftir það. Þú
varst alltaf kölluð „amma Tanja“
á okkar heimili.
Ég man hvað þér fannst gam-
an að segja sögur um líf þitt,
börnin þín og barnabörnin. Þú
varst svo stolt af þeim og þótt ég
hef ekki hitt sum af barnabörnum
þínum í mörg ár finnst mér eins
ég þekki þau af því þú varst svo
dugleg að segja frá þeim.
Ég man hvað þú vildir alltaf
öllum vel. Þú komst oft með
heimabakað rúgbrauð til okkar,
af því að þú vissir að Daniel þótti
það svo gott.
Ég man líka hvað þú varst
Álfhildur Hjördís
Jónsdóttir
✝ Álfhildur Hjör-dís Jónsdóttir
var fædd 4. maí
1944. Hún lést 3.
maí 2020.
Útförin fór fram
13. maí 2020.
fyndin. Einu sinni
gafstu Alice
ferðaklósett í sex
ára afmælisgjöf.
Alice var alveg dol-
fallin yfir ferðakló-
settinu ykkar og
langaði hana í svona
og það fékk hún
auðvitað og svo
hlóstu bara.
Það var alltaf svo
gaman að hitta þig í
búðinni, þar var spjallað mikið og
lengi, og ef strákarnir voru með
mér spurðir þú alltaf: „Á ég ekki
að kaupa eitthvað fyrir ykkur?“
Það fannst þeim alveg æðislegt.
Ég man hvað þú varst oft
hress. Þá var spilað á gítar og
sungið.
Ég man líka þegar Daniel átti
að byrja hjá dagmömmu og að-
lögunin gekk svo illa, hann bara
grét og grét. Þá ákvaðst þú bara
að gerast dagmamma og passaðir
hann eftir það og þá grét minn
ekki lengur.
Ég man þegar Alice átti mjög
erfitt tímabil og fór lengi ekki út
úr húsi. Þá datt þér það ráð í hug
að biðja hana að koma og hjálpa
afa á Salthúsinu. Það var það sem
kom henni út úr húsi og fékk hún
síðan vinnu hjá ykkur á Salthús-
inu og blómstraði eftir það.
Ég man hvað þú varst hrædd
þegar þú greindist með krabba-
mein. Ég fann svo til með þér. Þú
varst samt svo dugleg og jákvæð
og þér fannst gott að hafa Mar-
gréti þér við hlið.
Ég man eftir síðasta símtalinu
okkar. Ég ákvað að hringja í þig,
þar sem það var ekki lengur hægt
að heimsækja þig út af Covid-
ástandinu.
Við töluðum lengi um hitt og
þetta og þegar við vorum að
kveðja segir þú: „Rúna, mér þyk-
ir vænt um þig.“ Þetta voru síð-
ustu orðin okkar á milli og er ég
rosalega þakklát fyrir það. Ég
hefði ekki viljað hafa það öðru-
vísi.
Elsku Álfhildur mín. Takk fyr-
ir allt.
Elsku Láki, Helena, Björgvin,
Einar, Linda, Margrét og barna-
börn, ég sendi mínar innilegustu
samúðarkveðjur, megi guð gefa
ykkur styrk á þessum erfiða
tíma.
Runa Szmiedówicz.
Yndislega amma mín. Ég á eft-
ir að sakna þess svo mikið að fara
til þín í heimsókn og spjalla tím-
unum saman, hlæja og hlusta á
alla viskuna sem þú geymdir.
Ég er mjög heppin að hafa
fengið að hafa þig sem ömmu
mína í öll þessi ár og að hafa feng-
ið að kynnast þér vel sem vin-
konu líka. Það sem ég hugsa um
þegar ég hugsa um þig er hvað þú
varst góð, hugrökk, fyndin, sterk
og með mikla réttlætiskennd. Ég
hef aldrei fundið fyrir neinu öðru
en ást og kærleika frá þér og þú
varst mikill stuðningsmaður
minn og alltaf svo stolt af mér.
Ég er líka svo stolt af þér og stolt
að vera barnabarnið þitt.
Þú elskaðir að segja sögur af
þér og þínu lífi. Það gleður mig að
hafa þessar sögur og að geta
minnst á þig og hlegið að þeim
eins og við gerðum alltaf. Þú elsk-
aðir afa svo mikið, talaðir alltaf
svo fallega um hann, elskaðir öll
börnin þín svo mikið og elskaðir
að segja mér sögur æur æsku
þeirra.
Það eru fáar ömmur jafngóðar
ömmur og langömmur og þú. Þú
helst alltaf miklu sambandi við
barnabörnin þín og það gleður
mig að Eva hafi líka fengið að
kynnast þér og ég mun alltaf
halda minningu þinni á lífi.
Þú tókst mömmu minni alltaf
sem fjölskyldu þrátt fyrir að þau
pabbi hefðu hætt saman áður en
ég fæddist. Ég tók ekki eftir því
fyrr en á fullorðinsárum hversu
einstakt samband ykkar var og
að þú tókst bræðrum mínum eins
og þínum eigin börnum og gerðir
aldrei upp á milli, það var alltaf
nóg pláss fyrir alla í hjarta þínu
og elskaðir alla.
Þú varst svo einstök mann-
eskja og ég elska þig svo mikið. Í
hvert skipti sem ég talaði við þig
leið mér betur en áður. Ég er
þakklát fyrir öll samtölin okkar
og öll knúsin og kossana. Það er
erfitt að þurfa að kveðja þig
svona snemma og fljótt en ég veit
í hjarta mínu að þú ert hjá mér
enn þá og passar vel upp á mig.
Takk fyrir að hafa verið stór
hluti af lífi mínu, fyrir að taka
mér alltaf opnum örmum, fyrir að
hjálpa mér á marga vegu og fyrir
að sýna mér með þínu fordæmi
hvernig manneskja ég vil vera.
Ég elska þig alltaf, elsku amma
Tanja mín, og mun sakna þín að
eilífu.
Alice Marý Hólm.
Til ömmu Tönju.
Nótt og dag ég hugsa til þín.
Þú barst mig undir verndarvænginn,
mögnuð kona, mamma og amma mín,
komin loks í draumaheiminn.
Ég ætla aldrei að gleyma þér.
Þú ert mér allt og gafst mér allt
og þegar minningin fer
þá er ég komin til þín þúsundfalt.
Þú ert fyrirmyndin í lífi mínu,
ólst mig upp, kenndir mér að lifa,
sýndir mér umhyggju og ást, ég
vildi að ég gæti knúsað þig einu
sinni enn, þú hjálpaðir mér að
kynnast fjölskyldu minni og
sagðir mér sögur um ættingja
mína, það var svo gott að hlusta á
þig.
Þú varst góð við alla í kringum
þig og varst svo sannarlega búin
að finna tilgang lífsins áður en þú
fórst. Gefa af sér skilyrðislaust,
brosa og hafa gaman af sjálfum
sér. Ég mun halda í minninguna
um þig og mun aldrei gleyma þér.
Dreymi þig vel, ég mun gera þig
stolta á meðan.
Mín síðasta kveðja til þín.
Barnabarnið þitt,
Daníel Víðar Hólm.
Þín augu mild mér
brosa
á myrkri stund
og minning þín rís hægt
úr tímans djúpi
sem hönd er strýkur mjúk
um föla kinn
þín minning björt
(Ingibjörg Haraldsdóttir)
Á sorgarstundu minnumst við
okkar góða vinar, Magnúsar Sig-
urðssonar.
Við fengum á páskadagsmorg-
un fregnir af andláti hans, ótíma-
bæru en ekki alveg óvæntu, eftir
erfiðar vikur í aðdraganda þessa
sára missis.
Leiðir okkar hafa legið saman
um langa hríð. Maggi og Brynja
voru boðuð í lítið þorrablót sem
stóð fyrir dyrum hjá Guðmundi og
Stínu í janúar 1988. Auk þeirra
var boðið Hvítsíðingnum Sigurði,
Jóhönnu konu hans og Grími,
fyrrum vinnumanni á Kolsstöðum.
Seinna bættist Valgerður hans í
hópinn. Sumir þekktust betur en
aðrir í þessum hópi en eftir þetta
kvöld varð ekki aftur snúið, Þorra-
blótsfélagið varð til.
Án þess að til þess væri sér-
staklega stofnað urðu Maggi og
hans sterku skoðanir ómeðvitað
Magnús
Sigurðsson
✝ Magnús Sig-urðsson fædd-
ist 15. júlí 1959.
Hann lést 12. apríl
2020.
Útför Magnúsar
hefur farið fram.
gott mótvægi við
fremur fornan al-
þýðusmekk hvíts-
íðska karlpeningsins
í hópnum.
Maggi var víðles-
inn, kynnti okkur
það sem á náttborði
hans hafði legið,
gjarnan verk yngri
skálda.
Hafði hann þann-
ig drjúg áhrif á það
hvað heillaði okkur hin í nálægum
bókahillum.
Margt höfum við brallað saman
í áranna rás. Auk árlegra þorra-
blóta voru sumarferðir farnar.
Áföngum í lífi barna okkar var iðu-
lega fagnað saman og jafnvel
kosninganætur urðu tilefni vina-
funda.
Í pólítík var ekki komið að tóm-
um kofunum hjá Magga; hjartað
sló alla tíð vinstra megin, af mikilli
sannfæringu. Í tilefni sextugsaf-
mælis Magga í fyrra fögnuðum við
lífinu á einstökum sólardegi í Suð-
urenginu. Meinið, sem uppgötvast
hafði nokkrum mánuðum fyrr, gaf
grið svo að veisla var haldin.
Í hugann koma ótal myndir:
Maggi, sem fangaði andartakið
með listrænu auga myndavélar-
innar. Maggi, viðmótsþýði og hlát-
urmildi náttúruunnandinn, sem
kleif urð og grjót íslenskrar nátt-
úru af ástríðu og drakk í sig ís-
lenskt sumar, hvernig sem viðraði.
Maggi, sem hafði lesið allar nýj-
ustu bækurnar. Maggi, sem hafði
meiningar um hlutina svo allar
samræður urðu innihaldsríkar.
Fasið hlýtt, blik í auga. Fagnaði
hverjum endurfundi. Tryggur vin-
um sínum.
Elsku Brynja og aðrir ástvinir:
Maggi var bjartur yfirlitum og
það er minning hans líka. Við
þökkum fyrir líf hans og vináttu.
Magga góðu minningar
megi sorgir lina.
Sterkur hann til staðar var
í stórum hópi vina.
Eftir langan vetur – vor
vekur aftur trúna.
Fyrir lífs hans fögru spor
færum þakkir núna.
(Guðmundur Guðlaugsson)
Guðmundur, Kristín,
Sigurður, Jóhanna, Grímur
og Valgerður.
Það er erfitt að
sætta sig við það að
mamma sé farin frá
okkur. Góðu minningarnar um
þessa fallegu konu hrannast upp í
huganum. Hún mamma hafði
risastórt hjarta og var ávallt
tilbúin að gefa af sér til annarra.
Það leið öllum vel í kringum hana
og betri gestgjafa var ekki hægt
að finna.
Hún hafði einstakan hæfileika
í eldhúsinu og það skipti ekki
máli hvort það var bakstur eða
eldamennska, það lék allt í hönd-
unum á henni. Hún eyddi miklum
tíma í að skoða uppskriftir og
handskrifaði allar sem henni leist
vel á inn í uppskriftabókina sína,
sem var eins og biblía heimilisins.
Enginn sem kom í mat eða kaffi
til mömmu fór svangur út. Hún
lifði fyrir það að fá börnin sín og
barnabörnin í heimsókn og stjana
við þau og leggja kræsingar á
borð fyrir þá sem komu.
Eldamennska og bakstur var
mikið áhugamál og tengjast því
margar sögur af henni mömmu,
bæði mat og bakstri. Við systk-
inin rifjum upp útilegur og sum-
arbústaðaferðir þar sem allt var
upp á tíu þegar kom að nesti í
þessar ferðir. Hún elskaði að fá
fólk í heimsókn og fengu allir
matarást á henni mömmu, líka
dýrin sem komu inn í hennar líf.
Hundarnir og kettirnir í fjöl-
skyldunni elskuðu mömmu líkt
og mannfólkið.
Mamma var mikið fyrir útivist
og eigum við ótalmargar minn-
ingar úr útilegum og veiðitúrum.
Við erum margoft búin að keyra
Erna Vilbergsdóttir
✝ Erna Vilbergs-dóttir fæddist
17. febrúar 1948.
Hún lést 1. maí
2020.
Útför hennar fór
fram í Fríkirkjunni
í Reykjavík 11. maí
2020.
hringinn í kringum
landið og gista í öll-
um landshornum í
tjaldi. Hún var mikil
fjölskyldumann-
eskja og vissi fátt
betra en að hafa alla
í kringum sig.
Mamma var mjög
lagin með barna-
börnin sín og elskaði
þau afar heitt og
voru þau pabbi gríð-
arlega mikilvæg okkur öllum
þegar nóg var að gera á stórum
heimilum. Þegar krakkarnir
vissu af því að þau væru á leið í
næturgistingu hjá ömmu og afa
var alltaf mikil tilhlökkun því þau
vissu að það yrði stjanað við þau
frá morgni til kvölds. Þau voru
líka mjög dugleg að fylgja barna-
börnunum eftir í þeirra íþrótta-
starfi og komu nánast í hvert sinn
að styðja við bakið á þeim og taka
af þeim myndir í leik og starfi.
Svona minningar um ömmu og
afa eru ómetanlegar og erum við
öll þakklát fyrir þann tíma sem
við fengum með þessari yndis-
legu konu sem við erum svo
heppin að fá að kalla mömmu.
Þótt síðustu mánuðir í lífi
mömmu hafi verið erfiðir kvart-
aði hún aldrei.
Hún tók veikindum sínum með
jákvæðni og von í brjósti og var
ekki að íþyngja neinum í kringum
sig.
Elsku mamma, þú verður allt-
af hetja í okkar augum og þótt
það sé ofboðslega sárt að þurfa að
horfa á eftir þér inn í drauma-
landið vitum við að þú ert hætt að
þjást af erfiðum veikindum og
komin á góðan stað þar sem þér
líður vel með fólki sem þú hefur
ekki fengið að hitta lengi. Við vit-
um að þú munt passa upp á okkur
öll áfram og við látum minn-
inguna um bestu mömmu í heimi
lifa að eilífu.
Þórunn, Vilberg (Villi),
Benedikt (Benni) og Bjarki.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar
Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag?
Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is.
Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur
í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð
erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti.
Katla Þorsteinsdóttir,
lögfræðingur
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Sálm. 16.11
biblian.is
Kunnan gerðir þú
mér veg lífsins,
gleðignótt er fyrir
augliti þínu, yndi í
hægri hendi þinni
að eilífu.
Sendum ættingjum og vinum innilegar
þakkir fyrir vináttu og samúð við andlát
móður okkar,
VALBORGAR SIGURÐARDÓTTUR,
Hringbraut 50, Reykjavík,
áður Grandavegi 47.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Grundar á deild A-3 og handavinnustofu.
Magnús, Valgeir, Anna Soffía og Valgerður
Kærar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna
andláts elskulegrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
AUÐAR LINDU ZEBITZ.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Hrafnistu, Mánateig, fyrir góða umönnun.
Ólafur Kristinsson
Ásta Ólafsdóttir
Kristinn Guðni Ólafsson Ingunn Ingimarsdóttir
Guðrún Ólafsdóttir Erlingur Bótólfsson