Morgunblaðið - 21.05.2020, Qupperneq 45
sem deildarstjóri á Barnhabiliter-
ingen í Värmlandi, Svíþjóð, gift Hans
Gunnari Erlandsson, f. 5.4. 1956,
heilsugæslulækni og eiga þau þrjú
börn: Sunna Hansdóttir, f. 22.2. 1987,
listamaður, í sambúð með Joakim
Ojanen, f. 14.11. 1985; Kristján Er-
landsson, f. 4.4. 1989, landslags-
arkitekt, og Sólveig Hansdóttir, f. 7.5.
1993, stundar nám í sálfræði; 2) Sig-
ríður Snjólaug Vernharðsdóttir, f.
7.8. 1961, grafískur hönnuður og
kennari í Reykjavík, hún á tvö börn:
Vernharður L. Reinhardsson, f. 21.7.
1990, pípulagningamaður, í sambúð
með Tinnu Björk Hilmarsdóttur, f.
23.3. 1992, og Elísabet Snjólaug Rein-
hardsdóttir, f. 8.4. 1994, viðskipta-
fræðingur. Barnsfaðir Sigríðar Snjó-
laugar er Reinhard Reinhardsson,
pípulagningamaður.
Systur Vilhelmínu: Ólafía Kristín
Þorvaldsdóttir, f. 5.8. 1918, d. 30.4.
1968, síðustu árin vefnaðarkennari að
Laugum í Reykjadal, Soffía Þorvalds-
dóttir, f. 6.5. 1924, d. 26.1.2008, hús-
móðir á Akureyri, og Guðbjörg Þor-
valdsdóttir, f. 28.1. 1927, húsmóðir og
hattagerðarmeistari, búsett á hjúkr-
unarheimilinu Sóltúni.
Foreldrar Vilhelmínu voru hjónin
Þorvaldur Sigurðsson, f. 14.12. 1882,
d. 8.7. 1946, kaupmaður og síðar bók-
haldari hjá Gefjun á Akureyri, og El-
ísabet S. Friðriksdóttir, f. 14.4. 1888,
d. 6.4. 1985, handavinnukennari í
Barnaskólanum á Akureyri, menntuð
í Den kvinnelige industriskole í Ósló.
Vilhelmína
Bergþóra
Þorvaldsdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfreyja á Fremri-Bakka
Kristján Bjarnason
bóndi á Fremri-Bakka í
Langadal, N-Ís.
Kristín Kristjánsdóttir
húsfreyja í Lágadal og á
Hallsstöðum
Friðrik Sigurður Bjarnason
bóndi í Lágadal og á
Hallsstöðum á Langadalsströnd
Elísabet S. Friðriksdóttir
handavinnukennari á
Akureyri
Elísabet Ólafsdóttir
húsfreyja í Tirðilmýri
Bjarni Jónsson
bóndi í Tirðilmýri á
Snæfjallaströnd
Soffía
Þorvaldsdóttir
húsmóðir á
Akureyri
Jóhann Sigurjónsson
skáld
Þorvaldur
Þorsteinsson
skáld og
myndlistar-
maður
Snjólaug Þorvaldsdóttir
húsfreyja á Laxamýri
Sigurður
Þórarinsson
jarðfræðingur
Snjólaug Sigurðardóttir
húsfreyja á Teigi í Vopnafirði
Snjólaug Baldvinsdóttir
húsfreyja á Sökku og á
Krossum
Þorvaldur Gunnlaugsson
bóndi á Sökku í Svarfaðardal
og Krossum á Árskógsströnd
Soffía Jóhanna Þorvaldsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Sigurður Sigurðsson
járnsmiður á Akureyri
Solveig Sigfúsdóttir
húsfreyja á Hæringsstöðum
Sigurður Jónsson
bóndi á Hæringsstöðum í
Svarfaðardal
Úr frændgarði Vilhelmínu Þorvaldsdóttur
Þorvaldur Sigurðsson
kaupmaður og bókhaldari
á Akureyri
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími7.30-16.30
Er ekki kjörið að grilla um helgina?
Úrval af kjöti á grillið – Kíktu við!
„ÉG HEF EKKERT Á MÓTI ÞVÍ AÐ VERA Á
17. HÆÐINNI SVO LENGI SEM ÉG FÆ 64
LÖK.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að endurlifa upphafið.
MENN SEGJA AÐ ÞAÐ
SÉ HOLLT AÐ STUNDA
LÍKAMSRÆKT
MIG LANGAR AÐ FÁ
AÐ VITA EITT …
HVERJIR ERU ÞESSIR „MENN”
OG HVERS VEGNA ERU ÞEIR AÐ
BLAÐRA SVONA?
Í DAG ER AFMÆLISDAGURINN MINN! FÆ ÉG
ENGA GJÖF FRÁ ÞÉR?!
GET ÉG FÆRT ÞÉR EITTHVAÐ NÚ ÞEGAR ÉG ER
STAÐINN UPP?
„ÉG REYNDI AÐ SLÍPA TILBOÐIÐ TIL,
EN EKKERT GEKK. KANNSKI GETUR ÞÚ
HAMRAÐ ÞETTA Í GEGN.”
Ólafur Stefánsson yrkir að gefnutilefni:
Það nær ekki nokkurri átt,
núna að opna’upp á gátt,
fyrir veiru frá Kína,
með kórónu sína,
slíkt væri saupasátt.
Þetta rifjar upp fyrir mér limru
sem ég lærði líklega á síðustu öld
og ég man ekki hvort er eftir Móra
eða karlinn á Laugaveginum:
Það nær auðvitað alls engri stefnu
að eiga sér viðhaldsnefnu
að halla sér að
þegar heima er það
sem ég venst að ganga að sem gefnu.
Aldrei er hin frjálsa náttúra jafn
heillandi eins og á vorin. Á þriðju-
dag segir Philip Vogler frá því á
Boðnarmiði að þau hjónin hafi
skroppið úr bílnum á leið austur um
Skaftafellssýslur:
Um lækjarbakka hvetur hvönn
hvatvísa að ganga.
Dýrðarhlé frá dagsins önn
dugir árið langa.
Indriði á Skjaldfönn rifjar upp
vísu eftir afa sinn Indriða á Fjalli
með yfirskriftinni „Ósamræmi“:
Af stórum kominn en manna minnstur.
Að mælgi dýpstur en hugsun grynnstur.
Í stöðu fremstur en framsókn hinstur.
Og fátt hann vissi en lærði kynstur.
Anton Helgi Jónsson skrifar á
sunnudag: „Í ferð gærdagsins um
sunnanverðan Sveifluhálsinn rák-
umst við í gönguhópnum á blóm
sem mér fannst vert að tengja við
vorið og vináttuna. Til urðu tvær
vísur – en kannski bara ein og hálf.
Bragurinn er þó örugglega frum-
hent léttilag“:
Vorið sýnir vinarþel
með vetrarblómi.
Losar mig úr læstri skel
og leiðans tómi.
Eftir langan mæðumel
sést mikill ljómi.
Vorið sýnir vinarþel
með vetrarblómi.
Vísunum fylgdi falleg mynd af
vetrarblóminu.
Magnús Halldórsson yrkir:
Fuglarnir að fara’á kreik,
fagna degi nýjum.
Við hólinn eru lömb að leik,
logar glóð í skýjum.
Hér kveður við annan tón hjá
Magnúsi, - „Skarði in memoriam“, -
og lætur fallega mynd fylgja:
Ungur fékk hann úrvalsmöt,
einkum bak og læri,
hann varð seinna hangikjöt,
hrúturinn minn kæri.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Saupasátt og vetrarblóm