Morgunblaðið - 21.05.2020, Qupperneq 46
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Hvíta-Rússland
Dinamo Brest – BATE Borisov.............. 1:3
Willum Þór Willumsson kom inn á sem
varamaður á 69. mínútu hjá BATE.
Staðan: BATE Borisov 22, Torpedo
Zhodino 18, Energetik-BGU 18, Slutsk 16,
Shakhtyor Soligorsk 15, Isloch 15, Rukh
Brest 13, Dinamo Brest 13, Dinamo Minsk
12, Vitebsk 12, Slavia Mozyr 11, Gorodeja
11, Minsk 10, Neman Grodno 8, Smolevichi
4, Belshina Bobruisk 3.
KNATTSPYRNA
21. maí 1979
Jóhannes Eðvaldsson er
skoskur meistari í knatt-
spyrnu með Cel-
tic eftir að liðið
vinnur erki-
fjendurna í
Rangers, 4:2, í
dramatískum
leik í loka-
umferð úrvals-
deildarinnar. Rangers hefði
með sigri getað tryggt sér tit-
ilinn með því að vinna tvo
frestaða leiki sem liðið átti
síðan eftir. Þetta er annar
meistaratitill Jóhannesar á
fjórum árum með liðinu en
hann lék 34 af 36 leikjum Cel-
tic í deildinni þennan vetur.
21. maí 1986
Pétur Guðmundsson leikur
sinn síðasta leik fyrir stórliðið
LA Lakers í
NBA-
körfubolt-
anum. Liðið
tapar fyrir
Houston Roc-
kets 114:112
eftir mikla
dramatík í Forum-höllinni í
Los Angeles í úrslitum Vest-
urdeildarinnar eða undan-
úrslitum NBA. Houston vinn-
ur samtals 4:1 og koma
úrslitin verulega á óvart en
Lakers varð meistari árið áð-
ur. Pétur meiddist síðan á
undirbúningstímabilinu hjá
Lakers haustið 1986 og þegar
leið á veturinn var honum
skipt til San Antonio Spurs áð-
ur en hann varð leikfær á ný.
21. maí 1988
Alfreð Gíslason og samherjar í
vesturþýska liðinu Essen
missa af Evr-
ópumeist-
aratitlinum í
handknattleik
á minnsta
mögulegan
hátt. Þeir sigra
CSKA Moskva,
21:18, í seinni úrslitaleiknum í
Essen, eftir að hafa komist í
12:4, en sovéska liðið er Evr-
ópumeistari á jafnri marka-
tölu og fleiri mörkum á úti-
velli. Alfreð skorar sex mörk í
leiknum en þrír leikmenn Ess-
en gera öll mörk liðsins.
21. maí 1991
Íslenska karlalandsliðið í
körfuknattleik sigrar Kýp-
urbúa, 91:77, í fyrsta leik á
Smáþjóðaleikunum í Andorra.
Guðmundur Bragason skorar
22 stig og Guðni Guðnason 16
en Axel Nikulásson, sem skor-
ar 15 stig, er sagður besti
maður vallarins.
21. maí 2004
Íslenska karlalandsliðið í
handknattleik sigrar Túnis-
búa, 30:28, í fyrsta leiknum á
alþjóðlegu móti í Antwerpen í
Belgíu, en það er liður í und-
irbúningi liðsins fyrir Ólymp-
íuleikana í Aþenu um sum-
arið. Ásgeir Örn Hallgrímsson
skorar tíu mörk fyrir Ísland í
leiknum og Arnór Atlason
sex.
Á ÞESSUM DEGI
GRINDAVÍK
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Kristinn Pálsson, landsliðsmaður í
körfubolta, skrifaði síðastliðinn laug-
ardag undir tveggja ára samning við
Grindavík. Kristinn er uppalinn
Njarðvíkingur og mun hann í fyrsta
skipta leika fyrir annað félag hér á
landi næsta vetur. Kristinn, sem er
22 ára, hefur einnig leikið með Stella
Azura á Ítalíu og í Marist-háskól-
anum í Bandaríkjunum.
„Mér fannst þetta vera rétti tím-
inn til að prófa eitthvað nýtt og tak-
ast á við nýjar áskoranir. Ég vil sýna
hvað í mér býr hjá öðru félagi. Þótt
maður sé kominn í Grindavík verður
maður alltaf Njarðvíkingur,“ sagði
Kristinn við Morgunblaðið er hann
var í skólaferð með Njarðvíkurskóla
þar sem hann starfar ásamt því að
spila körfubolta. Bakvörðurinn við-
urkennir að það sé erfitt að yfirgefa
uppeldisfélagið.
Erfitt en rétti tíminn
„Þetta hefur tekið ágætlega lang-
an tíma. Það er erfitt að kveðja upp-
eldisfélagið og fara í annað lið á Ís-
landi en stundum þarf maður að gera
það sem er rétt fyrir sig og mér
fannst þetta rétti tíminn til að taka
þessa ákvörðun. Ég þurfti tíma til að
hugsa mig um og þetta var erfið
ákvörðun,“ sagði Kristinn, en hvers
vegna Grindavík?
„Það er erfitt að segja. Ég og Ólaf-
ur Ólafsson erum góðir vinir og erum
mikið saman í kringum landsliðið.
Hann hjálpaði mér rosalega við að
taka þessa ákvörðun. Það er ekki
mikill munur á þessum liðum en von-
andi getur innkoma mín hjálpað
Grindavík að berjast um titla,“ sagði
Kristinn.
Fleiri félög höfðu áhuga á leik-
manninum, sem hefur spilað 15
landsleiki, en hann er sáttur við loka-
ákvörðunina. „Það voru einhver fé-
lög, en ég ákvað að velja Grindavík
og er ánægður með þá ákvörðun.“
Daníel Guðni Guðmundsson þjálf-
ar Grindavík og þekkjast þeir ágæt-
lega, þar sem Kristinn spilaði undir
stjórn Daníels hjá Njarðvík síðari
hluta tímabilsins 2017/18. „Hann var
hjá Njarðvík fyrsta hálfa árið eftir að
ég kem heim frá Bandaríkjunum. Ég
er sannfærður um að þetta verður
skemmtilegt tímabil. Ég er spenntur
og tilbúinn fyrir nýjar áskoranir.“
Markmið snúast um liðið
Kristinn segist ekki endilega hafa
einhver markmið inni á vellinum
næsta vetur, heldur snúist mark-
miðin um Grindavík sem lið. Segir
hann félagið staðráðið í að berjast
um þá titla sem eru í boði. Skoraði
Kristinn sjálfur 9,8 stig, tók 5,4 frá-
köst og gaf 1,6 stoðsendingar að
meðaltali í deildinni með Njarðvík í
vetur.
„Ég vil bæta mig sem alhliða leik-
maður og gera liðið í kringum mig
betra. Það er helsta markmiðið. Ég
vil vera liðsmaður og við viljum sam-
an vera eins nálægt toppnum og við
getum. Við viljum berjast um titla.
Það eru helstu markmiðin. Ég mun
æfa eins og brjálæðingur í sumar og
koma enn sterkari til leiks en ég
gerði í fyrra.“
Pabbi var ánægður í Grindavík
Með félagsskiptunum fetar Krist-
inn í fótspor föður síns, Páls Krist-
inssonar. Páll lék í rúman áratug
með Njarðvík, áður en hann fór í
Grindavík og lék þar frá 2005 til
2011. „Hann setti þetta svolítið yfir á
mig, en auðvitað ræddi ég við föður
minn. Hann talaði vel um klúbbinn
enda var hann þarna frekar lengi.
Hann var ánægður með sína reynslu
í Grindavík og auðvitað hugsaði
maður um það líka.“
Kristinn segir Njarðvíkinga hafa
tekið vel í óskir hans um að skipta
um félag, þrátt fyrir að rígur sé á
milli Suðurnesjafélaganna. „Ég verð
að hrósa þeim. Þeir voru mjög opnir,
sérstaklega eftir allt sem við höfum
gengið í gegnum saman,“ sagði
Kristinn. Njarðvík þurfti að greiða
ítalska félaginu Stella Azura 1,2
milljónir í uppeldisbætur er hann
kom heim úr háskólaboltanum í
Bandaríkjunum, þrátt fyrir að hann
væri uppalinn hjá Njarðvík. Félagið
hefur því gert mikið fyrir Kristin.
Ekkert neikvætt hingað til
„Ég var mjög opinn með mitt og
sagði þeim hvað væri í spilunum og
hélt engu frá þeim. Þegar kom að því
að taka ákvörðun skildu þeir hana al-
veg. Hingað til hef ég ekki fengið
neitt neikvætt út á þessi félagsskipti.
Mér finnst ekki ólíklegt að ég klæðist
grænu einhvern tímann aftur á ferl-
inum,“ sagði Njarðvíkingurinn.
Kristinn fór ungur að árum til Ítal-
íu og varð hann m.a. Ítalíumeistari 18
ára og yngri með Stella Azura. Hann
stefnir aftur út í atvinnumennskuna.
„Það er alltaf draumurinn að komast
aftur út að spila og það er mikið und-
ir mér komið og liðinu sömuleiðis og
hvernig tímabilið fer. Eitt af helstu
markmiðunum er að láta drauma
sína rætast og fara aftur út,“ sagði
Kristinn Pálsson við Morgunblaðið.
Njarðvíkingar
skildu mína
ákvörðun
Kristinn Pálsson fetar í fótspor
föður síns og leikur með Grindavík
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skiptir Kristinn Pálsson og Jón Arnór Stefánsson eigast við í leik Njarðvík-
ur og KR. Kristinn klæðist búningi Grindvíkinga á næsta tímabili.
Þýski knattspyrnumarkvörðurinn
Manuel Neuer hefur framlengt
samning sinn við þýska stórveldið
Bayern München til ársins 2023.
Neuer er 34 ára gamall og hefur
leikið með Bayern í níu ár en hann
kom til félagsins árið 2011 frá
Schalke. Hann hefur orðið sjö sinn-
um Þýskalandsmeistari með liðinu
og einu sinni unnið Meistaradeild
Evrópu, auk fjölda einstaklings-
verðlauna. Þá hefur Neuer leikið 92
landsleiki fyrir Þýskaland, þar sem
hann varði mark heimsmeistara-
liðsins árið 2014.
Neuer áfram
næstu árin
AFP
Reyndur Manuel Neuer hefur leikið
398 leiki í Bundesligunni.
Adrian Mariappa, varnarmaður
Watford, hefur staðfest að hann sé
sá leikmaður liðsins sem greindist
með kórónuveiruna í vikunni. Sex
smit greindust meðal þriggja liða í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
þegar allir leikmenn og starfsfólk
liðanna 20 voru sett í próf. Fram hef-
ur komið að þrír þeirra séu frá Wat-
ford, þar af tveir úr starfsliði, og að-
stoðarstjórinn Ian Woan hjá
Burnley. Mariappa er 33 ára gamall
Jamaíkumaður, fæddur í London, og
hefur leikið tæplega 300 deildaleiki
með uppeldisfélaginu Watford.
Staðfesti að hann
væri smitaður
AFP
Smitaður Adrian Mariappa er varn-
armaður hjá Watford.
Aðra helgina í röð mætast atvinnukylfingarnir Valdís
Þóra Jónsdóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Guðrún
Brá Björgvinsdóttir á golfmóti hér á landi. Fyrir mótið í
Mosfellsbæ höfðu þær ekki leikið saman á móti frá árinu
2016 en um síðustu helgi hafði Guðrún betur í sexföldum
bráðabana gegn Ólafíu og Valdís hafnaði í fjórða sæti.
Á morgun hefst fyrsta mótið í mótaröð Golfsambands
Íslands á þessu tímabili en það er B59 Hotel-mótið sem
fram fer á Garðavelli á Akranesi. Valdís Þóra verður því
á heimavelli að þessu sinni. Leiknar verða 54 holur eins
og í Mosfellsbæ en að þessu sinni er keppt á þremur dög-
um í stað tveggja, frá föstudegi til sunnudags.
Í karlaflokki eru einnig margir af bestu kylfingum landsins meðal kepp-
enda, eins og Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Har-
aldur Franklín Magnús, Bjarki Pétursson, Axel Bóasson, Ólafur Björn
Loftsson og Rúnar Arnórsson. vs@mbl.is
Þrjár bestu mætast aftur
Valdís Þóra
Jónsdóttir
Serge Aurier, bakvörður enska knattspyrnuliðsins
Tottenham Hotspur, sætir nú rannsókn hjá félaginu, en
hann virðist hafa brotið reglur um fjarlægðartakmark-
anir í þriðja skipti. Aurier hefur í tvígang neyðst til að
biðjast afsökunar á því að brjóta reglur um útgöngu-
bann á Bretlandseyjum sem var í gildi vegna útbreiðslu
kórónuveirunnar.
Í fyrrakvöld birti hann mynd af sér á Instagram þar
sem hann skartaði nýrri klippingu og merkti færsluna
jafnframt hárskeranum Justin Carr. Sky Sports segir að
Tottenham hafi tekið málið til rannsóknar, en svo virðist
sem um einbeittan brotavilja sé að ræða og hann má því
búast við því að eiga yfir höfði sér refsingu frá félaginu.
Aurier er 27 ára gamall Fílabeinsstrendingur sem hefur leikið með
Tottenham frá 2017, en þá kom hann til félagsins frá París SG. Hann á að
baki 62 landsleiki fyrir Fílabeinsströndina. vs@mbl.is
Braut reglur í þriðja skipti
Serge
Aurier