Morgunblaðið - 21.05.2020, Síða 47
ÍÞRÓTTIR 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Þessa dagana snúast flest-
ar íþróttafréttir um hvenær
keppni geti hafist á ný í hinni og
þessari íþróttagreininni eftir að
kórónuveiran er farin að lina tök
sín á daglegu lífi fólks.
Ástandið er mismunandi eft-
ir löndum og aðferðafræðin er
ólík eftir því. Englendingar eru
t.d. í miklu basli með að koma
fótboltanum aftur af stað hjá
sér og horfa öfundaraugum til
Þjóðverja sem eru komnir í
gang.
Eitt er það sem vekur athygli í
öllu þessu og það er að alls
staðar snýst þetta um að koma
stærstu deildum karlafótboltans
í gang.
Kvennadeildirnar koma
svo einhvers staðar í kjölfarið
eða þá að keppni í þeim er af-
lýst. Hvers vegna? Jú, þar eru
miklu minni peningar í húfi.
Mér sýnist Ísland vera eina
landið þar sem konur og karlar
fara af stað á sama tíma hvað
fótboltann varðar. Hér verður
fyrstu umferðinni í úrvalsdeild
kvenna lokið áður en flautað
verður til fyrsta karlaleiksins.
Enda standa konur í fótbolta
og flestum öðrum íþróttum bet-
ur að vígi hérlendis en víðast
hvar annars staðar, hvað varðar
umgjörð, umfjöllun og almennt
viðhorf.
Ummæli „sérfræðings“ í hlað-
varpsþætti í vikunni um að ís-
lensk landsliðskona sem samdi
við íslenskt félag á dögunum
fengi meira borgað en leikmenn
í kvennafótbolta ættu að fá voru
í besta falli kjánaleg. Þau hljóma
eins og aftan úr grárri forn-
eskju, enda þótt ótrúlega margir
virðist enn fastir í gömlum
kreddum á þessu sviði.
Ef íslenskt íþróttafélag er
tilbúið til að greiða konu hærri
laun fyrir að spila fótbolta en
karlmanni þá er það einfaldlega
enn eitt skrefið í rétta átt.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hann sendi nafnlausa könnun til for-
ráðamanna liða í úrvalsdeildinni sem
sneri að launakostnaði félaganna en
fékk dræmar undirtektir.
„Það kom mér á óvart hvað menn
eru feimnir við peninga í körfubolt-
anum. Ég sendi órekjanlega könnun
á fimmtán forráðamenn liða í úrvals-
deildunum og ég gat varla notað
niðurstöðurnar sem ég fékk til baka
því þær voru svo vitlausar. Þegar þú
ert með einn erlendan leikmann, ut-
an EES-svæðisins eins og öll liðin
eru með, þarf sá leikmaður að fá at-
vinnuleyfi á Íslandi. Til þess að það
gangi upp þarf að borga viðkomandi
lágmarkslaun.
Þú færð ekki atvinnuleyfi fyrir
fólk sem er að fara að skúra gólfið í
Hagkaup, þú þarft sérstakt atvinnu-
leyfi fyrir fólk sem kemur hingað til
lands til þess að stunda íþróttir.
Launin þurfa að vera yfir 300.000
krónur í samningi milli atvinnurek-
anda og launþega og þessu þarf að
skila inn til Vinnumálastofnunar.
Þegar fólk segir að launakostnaður
sé í kringum núll til eina milljón
króna hjá sínu liði yfir tímabilið
gengur það einfaldlega ekki upp.
Meðalrekstur deildanna kvenna-
megin er í kringum 13 milljónir og
35 milljónir karlamegin og tölurnar
sem ég fékk frá til baka félögunum
stóðust þess vegna engan veginn.“
Girðingar úti um allt
Grímur leggur til að farið verði í
ákveðið átak til þess að sporna við
þessari þróun og bendir á að í lönd-
unum í kringum okkur sé ýmislegt
gert til þess að skikka liðin til að
vera með uppalda leikmenn bæði í
hópi og inni á vellinum. Þá er hann
ósáttur við þá þróun að kvennalið
hér á landi séu lögð niður í tíma og
ótíma þegar í harðbakkann slær.
„Tillögurnar eru á einhvern hátt
skoðanir mínar út frá reynslu en
þær eru líka byggðar á því sem er
gert í löndunum í kringum okkur.
Það eru ákveðnar girðingar úti um
allt og sem dæmi þurfa víða í deild-
unum í Evrópu að vera alltaf sex
uppaldir leikmenn í hverju einasta
liði.
Uppaldir leikmenn teljast vera
þeir sem hafa spilað körfubolta inn-
an viðkomandi sambands frá 12 til
20 ára aldurs. Önnur lönd eru síðan
með enn frekari girðingar. Í Pól-
landi má þannig vera með þrjá er-
lenda leikmenn inni á vellinum í einu
og í Ísrael er leyfilegt að vera með
tvo erlenda leikmenn inni á í einu.
Ég tel að við verðum að gera þetta
líka, en horfa síðan til svokallaðra
kaldra svæða og gera þar sérreglur.
Leyfa þessum svæðum að vera með
t.d. þrjá erlenda leikmenn. Það er
staðreynd að á Ísafirði, Stykkis-
hólmi, Egilsstöðum og Höfn getur
verið erfiðara að manna lið en hér á
suðvesturhorninu.“
Allt annar leikur
Þá er Grímur ósáttur við þá þróun
að kvennalið hér á landi séu lögð nið-
ur í tíma og ótíma þegar í harðbakk-
ann slær.
„Það hefur verið hægt að leggja
niður lið hér á landi of auðveldlega
að mínu mati, eins og kvennalið
Stjörnunnar og Þórs á Akureyri
gerðu fyrir stuttu. KR fór þá leið að
senda liðið í fyrstu deild árið 2015.
Hjá Stjörnunni átti að fara í upp-
byggingu eins og það er kallað og
veðja á uppaldar stúlkur, sem var
svo bara hætt við á miðri leið, og
töluverð losung virðist vera á liðinu í
dag. Nú heyrast sögur um að aftur
eigi að fara í þessa uppbyggingu í
Vesturbænum. Það er endalaust
verið að fara í eitthvert uppbygging-
arstarf kvennamegin en aldrei
karlamegin því þar virðist vera allt
annar leikur í gangi, sem er ekki
gott.
Ég er ekki að ásaka neinn en fólk
þarf að setjast niður, reyna að
bregðast við því sem er að gerast, og
hvernig við getum haldið stelpum
lengur í körfubolta sem dæmi. Við
þurfum að hugsa áður en við fram-
kvæmum. Kvennalið Stjörnunnar
sem stóð sig gríðarlega vel í nokkur
ár var skyndilega dregið úr úrvals-
deild í júní á síðasta ári. Þá voru enn
fjórir mánuðir í mót. Síðan var tekin
ákvörðun í ágúst um að draga liðið
alfarið úr keppni og leggja meist-
araflokkinn niður. Var allt gert til að
halda liðinu í úrvalsdeild? Það virðist
því miður ekki hafa verið þannig.
Mitt mat er að það halli verulega á
konur í íþróttum og ekki sé unnið í
anda jafnréttisstefnu ÍSÍ, KKÍ og
félaganna sem eiga í hlut, auk sveit-
arfélaganna sem styrkja mörg þess-
ara liða. Ég tala hér ekki sem Vals-
ari heldur fyrst og fremst sem
áhugamaður um jafnrétti í íþróttum
og að kvennakarfan sérstaklega
verði öflugri,“ sagði Grímur Atlason
í samtali við Morgunblaðið.
Fækkunin kom á óvart
Grímur Atlason rannsakaði áhrif þess að 4+1 reglan í körfuboltanum var af-
numin Íslendingum fækkaði mikið Kvennalið lögð niður eftir hentugleikum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Erlendir Nikolas Tomsick, Sinisa Bilic og Urald King eigast við í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í viðureign
Stjörnunnar og Tindastóls síðasta vetur. Íslendingar í efstu deildum karla og kvenna eru mun færri en áður.
KÖRFUBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Það er ekki boðlegt að félög geti
lagt niður kvennalið sín þegar þeim
hentar,“ segir Grímur Atlason,
stjórnarmaður körfuknattleiks-
deildar Vals, en lokaritgerð Gríms í
MBA-námi hans við Háskóla Íslands
fjallaði um afnám „4+1 reglunnar“ í
körfuboltanum hér á landi og áhrif
hennar á íþróttina.
Í nóvember 2017 sendi ESA,
Eftirlitsstofnun EFTA, íslenska rík-
inu ályktun þess efnis að „4+1 regl-
an“, sem sneri að fjölda útlendinga í
liðum hér á landi, bryti á EES-
samningnum og að evrópskir leik-
menn ættu að fá að starfa við sömu
skilyrði hér á landi og íslenskir leik-
menn.
KKÍ, Körfuknattleikssamband Ís-
lands, ákvað því að afnema regluna
fyrir tímabilið 2018-19 og hefur það
meðal annars haft þær afleiðingar í
för með sér að bæði hefur íslenskum
iðkendum fækkað og þá fá Íslend-
ingar færri mínútur inni á vellinum
en fyrir afnám reglunnar.
Sankaði að sér gögnum
„Þegar ég fór að leiða hugann að
lokaverkefninu fór ég aðeins að taka
saman heildarmínútur íslenskra
leikmanna eftir að reglunum um er-
lenda leikmenn í deildinni var
breytt,“ sagði Grímur í samtali við
Morgunblaðið, en hann hefur setið í
stjórn hjá Val frá árinu 2010 og
fylgst afar náið með körfuboltanum
undanfarin ár.
„Ég ákvað að skoða nokkra þætti
innan liðanna, spilaðar mínútur,
hvernig hóparnir voru samsettir,
fjárhag liðanna og svo auðvitað
kvennakörfuna og hvort þessar
reglubreytingar hefðu meiri áhrif á
konurnar en karlana. Ég sökkti mér
svo bara í þetta og allur veturinn fór
í að sanka að mér gögnum og skoða
hlutina í samhengi við fyrri tíð og
tíma.
Ég gaf mér fyrir fram að mínútum
íslenskra leikmanna í deildunum
hefði fækkað en það kom mér á
óvart hversu mikið þeim hefur fækk-
að, sérstaklega í 1. deild karla sem
dæmi. Það var búið að tala um það
eftir reglubreytingarnar að kannski
myndi þetta koma niður á leik-
mönnum í efstu deild og þeir gætu
þá bara farið í 1. deildina til þess að
spila meira. Þar var hins vegar um
22% fækkun mínútna að ræða og svo
hafa æfingahóparnir sjálfir einnig
minnkað í öllum deildum en mest í 1.
deild karla, þar sem fækkaði um 51 í
deildinni.“
Ónothæfar niðurstöður
Grímur fjallar um fjárhag ís-
lensku liðanna í lokaverkefni sínu og
telur hann að nær ómögulegt sé að
nálgast upplýsingar um rekstur ein-
staka deildar hvers íþróttafélags.
Frederik Schram, einn af landsliðs-
markvörðum Íslands í knattspyrnu
undanfarin ár, hefur framlengt
samning sinn við danska úrvals-
deildarfélagið Lyngby til loka yfir-
standandi tímabils. Þar sem keppni
í dönsku úrvalsdeildinni, sem hefst
á ný 29. maí, á að standa fram eftir
júlímánuði var öllum leikmönnum
deildarinnar sem voru að ljúka sín-
um samningum boðin eins mánaðar
framlenging. Lyngby mætir FCK í
fyrsta leik eftir kórónuveiruhlé 1.
júní. Lyngby er í áttunda sæti af
fjórtán liðum.
Landsliðsmark-
vörður framlengir
Morgunblaðið/Eggert
Markvörður Frederik Schram verð-
ur hjá Lyngby út leiktíðina.
Franski knattspyrnumaðurinn
N’Golo Kanté hefur bæst í hóp
þeirra leikmanna sem treysta sér
ekki til að mæta aftur til æfinga með
liðum sínum í ensku úrvalsdeildinni
af ótta við kórónuveiruna. Leik-
menn Chelsea æfðu í gær, en Kanté
var hvergi sjáanlegur. Kanté er af
mörgum talinn einn besti miðjumað-
ur heims og varð heimsmeistari með
Frökkum á HM í Rússlandi 2018.
Troy Deeney, fyrirliði Watford, neit-
aði einnig að æfa með liði sínu í gær.
Gert er ráð fyrir því að deildin fari
af stað á nýjan leik í júní.
Kanté hélt sig frá
æfingasvæðinu
AFP
Chelsea Miðjumaðurinn N’Golo
Kanté æfði ekki með Chelsea í gær.
Forráðamenn
ítalska knatt-
spyrnu-
sambandsins
funduðu í gær
með yfirmönnum
ítölsku A-
deildarinnar.
Komust þeir að
niðurstöðu um að
klára yfirstand-
andi tímabil í
ítalska boltanum 20. ágúst næst-
komandi og byrja næsta tímabil að-
eins tólf dögum síðar. Var samþykkt
að tímabilið í A-, B- og C-deild Ítalíu
yrði leikið til loka og sömuleiðis
ítalski bikarinn. Takist ekki að klára
tímabilið munu úrslit deildanna ráð-
ast með einhvers konar umspili.
Deildarkeppnirnar á Ítalíu hafa enn
ekki fengið grænt ljós frá yfirvöld-
um, en endanlegt svar fæst væntan-
lega á fundi 28. maí næstkomandi.
Eru lið byrjuð að æfa saman og vilja
þau byrja 13. júní. Emil Hall-
freðsson leikur með Padova í C-
deildinni, en hann hefur verið orð-
aður við FH síðustu vikur. Þá leikur
Sveinn Aron Guðjohnsen með
Spezia í B-deildinni. Eru bæði lið í
baráttu um að fara upp um deild.
Vilja klára
þrjár efstu
deildirnar
Emil
Hallfreðsson