Morgunblaðið - 21.05.2020, Qupperneq 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
á sanngjörnu verði og að
auki förum við með bílinn
þinn í endurskoðun, þér
að kostnaðarlausu.
Of dýrt að sýna fyrir hálfum sal
„Ef tekið er mið af þeim við-
burðum sem ekki gat orðið af og
þeim sjálfsaflatekjum sem við miss-
um auk fjárfestinga í verkefnum
sem óvíst er hvort verði að veruleika
þá nemur tjón Íslensku óperunnar
u.þ.b. 15 til 20 milljónum króna,“
segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir,
óperustjóri Íslensku óperunnar, og
tekur fram að í ljósi þeirrar óvissu
sem enn ríki liggi endanleg tala ekki
fyrir. „Þetta jafngildir um 10% af
heildarveltunni sem er á þriðja
hundrað milljónir króna.“
Steinunn Birna segir ákveðið lán
að ÍÓ hafi verið milli verkefna sem
mildi að nokkru höggið vegna
samkomubannsins, en ÍÓ hefði átt
að frumsýna Valkyrjuna í samstarfi
við SÍ á Listahátíð í Reykjavík eftir
nokkra daga. „Unnið er að því að
finna nýja sýningardaga. Þeirri
framtíð sem við áttum von á hefur
verið aflýst og því ríður á að hugsa í
skapandi lausnum og finna ný tæki-
færi,“ segir Steinunn Birna og bend-
ir á að flest óperuhús reyni að fresta
verkefnum yfirstandandi starfsárs
til að vernda fjárfestingar sínar.
„Meðan óvissan er svona mikil,
bæði vegna samkomubanns og
ferðatakmarkana, er vandasamt að
gera tímaplön,“ segir Steinunn
Birna og bendir á að einnig þurfi að
huga að fjarlægðartakmörkunum
listafólks á sviði. „Því í eðli sínu
krefjast sviðslistirnar mikillar lík-
amlegrar nálægðar listamanna.“ Að
sögn Steinunnar Birnu hafa óperu-
hús víða á meginlandinu nú þegar
tilkynnt að þau verði lokuð til ára-
móta til að minnka fjárhagsskaðann,
enda of dýrt að sýna fyrir hálftómu
húsi meðan lögbundnar fjarlægðar-
takmarkanir eru í gildi og bóluefni
ekki komið til sögunnar.
Sýningarferðum aflýst
„Heildartap Íslenska dansflokks-
ins vegna samkomubannsins og
ferðatakmarkana að frádregnu því
sem sparast af því að starfsemin hef-
ur verið í lágmarki er um fjórar
milljónir,“ segir Hlynur Páll Páls-
son, framkvæmdastjóri Íslenska
dansflokksins (Íd). Aðspurður segir
hann að samkvæmt rekstraráætlun
fyrir árið 2020 hafi áætluð velta Íd
verið í kringum 220 milljónir.
Hlynur Páll bendir á að Íd afli sér
helst sértekna með sýningarferðum
erlendis. Til stóð að Íd myndi sýna
Black Marrow í Southbank Centre í
London 21. mars og Aiõn á sviðs-
listahátíð í Harstad í Norður-Noregi
í júní, en báðum sýningarferðum var
aflýst. „Sem þýðir að við verðum af
5,2 milljónum auk þess sem við sitj-
um uppi með útlagðan kostnað
vegna kaupa á flugmiðum og flutn-
ings leikmyndar til Bretlands. Þann-
ig er heildartjónið vegna aflýstra
sýningarferða a.m.k. 7,5 milljónir.
Vegna ástandsins munum við þurfa
að hliðra til verkefnum sem leiðir til
aukins launakostnaðar á þessu ári,“
segir Hlynur Páll og bendir á að
stærsti útgjaldaliðurinn á starfs-
árinu sem sparist sé sýningarferð til
Akureyrar sem færist til næsta árs,
en til stóð að sýna Rómeó og Júlíu í
Menningarhúsinu Hofi í júní í sam-
starfi við Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands, Þjóðleikhúsið og Listahátíð
í Reykjavík. „Þar sparast um 4,5
milljónir. Í því samhengi er vert að
nefna að svo virðist sem menningar-
stofnanir á höfuðborgarsvæðinu geti
hvergi sótt um styrki til að fara í
sýningarferðir á landsbyggðinni,
sem er bagalegt,“ segir Hlynur Páll
og bindur vonir við að væntanleg
sviðslistamiðstöð muni beita sér fyr-
ir breytingu þar á.
Gríðarleg áhrif á reksturinn
„Samkomubannið hefur haft
gríðarleg áhrif á rekstur Borgar-
leikhússins. Öllum sýningum var
frestað til næsta leikárs en vegna
þess varð leikhúsið af 40% miða-
sölutekna leikársins. Áætlaðar miða-
sölutekjur leikársins voru 730 millj-
ónir króna en vegna samkomu-
bannsins fórum við á mis við
miðasölutekjur upp á tæplega 300
milljónir. Enn er óljóst hver
langtímaáhrif samkomubannsins
verða en miklu máli skiptir að mögu-
legt sé að opna leikhúsið á ný, án
takmarkana, frá og með haustinu,“
segir Brynhildur Guðjónsdóttir
borgarleikhússtjóri. Spurð hvort
leikhúsið þurfi eða muni óska eftir
aukafjárveitingu frá borginni til að
mæta tekjutapinu segir hún það enn
óljóst. „Við erum í góðu samtali við
Reykjavíkurborg og upplýsum þau
reglulega um stöðuna.“
Varð fyrir algeru tekjufalli
„Þjóðleikhúsið varð fyrir algeru
tekjufalli nú á seinni hluta leikárs
vegna samkomubannsins enda voru
allar sýningar felldar niður og engir
gestir komu í húsið. Þarna gufaði um
þriðjungur af sértekjum ársins upp.
Við erum í góðu samtali við mennta-
og menningarmálaráðuneytið og
vonumst til að þetta verði bætt
þannig að leikhúsið komist aftur í
gang samkvæmt áætlun þegar
haustið gengur í garð,“ segir Magn-
ús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri.
Áætlaðar sértekjur fyrir árið 2020
voru um 400 milljónir, en sam-
kvæmt rekstraráætlun ársins var
heildarveltan áætluð 1,7 milljarðar
– áður en kórónuveirufaraldurinn
setti strik í reikninginn.
Sjálfsaflafé dregst saman
Menningarfélag Akureyrar rekur
þrjár menningarstofnanir; Leik-
félag Akureyrar, Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands og Menningar-
húsið Hof. Samkvæmt upplýsingum
frá Þuríði Helgu Kristjánsdóttur,
framkvæmdastjóra MAk, varð LA
af 50% af áætluðum miðasölu-
tekjum vegna samkomubannsins.
„SN hefur getað haldið þjónustu-
starfsemi sinni áfram og nýtt tím-
ann til að taka upp tónlist fyrir
þrjár Netflix-bíómyndir, en tón-
leikum SN hefur verið frestað fram
á haust. Menningarhúsið Hof hefur
orðið fyrir verulegu tekjufalli þar
sem ekki hefur verið hægt að halda
viðburði í húsinu, sértekjur í mars
féllu um 60% og maí og apríl yfir
90%,“ segir Þuríður. Aðspurð segir
hún sértekjufall félagsins í heild
fyrir tímabilið vera í kringum 40%
og er áætlað að sjálfsaflafé félagsins
milli ára dragist saman um 14%.
„Árið 2019 var heildarvelta félags-
ins 490 milljónir króna og þar af var
sjálfsaflafé 46% en fyrir núverandi
tímabil stefnir sjálfsaflafé í að verða
32%,“ segir Þuríður og bendir á að
MAk fái um 5% af því sem sambæri-
legar stofnanir á höfuðborgar-
svæðinu fá í opinber framlög.
Óttast niðurskurð í framhaldi
Fæst þeirra sem rætt var við
reiknuðu með því að stjórnvöld
myndu bæta menningarstofnunum
upp það rekstrartap sem hlotist hef-
ur af samkomubanninu. Mörg óttast
frekar að niðurskurðar sé að vænta
í ljósi mikilla fjárútláta hins opin-
bera á öðrum sviðum vegna efna-
hagslegra afleiðinga kórónuveiru-
faraldursins á íslenskt efnahagslíf.
Allir viðmælendur vona að hægt
verði að sýna án takmarkana frá og
með haustinu, en ýmsir óttast bak-
slag í baráttunni við faraldurinn og
því sé óvissan enn mjög mikil.
Morgunblaðið/Júlíus
Búast við hundraða milljóna tapi
Sviðslistastofnanir hafa orðið fyrir verulegu fjárhagstjóni vegna kórónuveirufaraldursins
Stjórnendur vona að frá og með næsta starfsári verði viðburðahald ekki takmörkunum háð
Morgunblaðið/Skapti HallgrímssonMorgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fjárhagstjón Samkvæmt upplýsingum frá sex sviðslistastofnunum gæti fjárhagstjón þeirra vegna samkomubannsins farið yfir hálfan milljarð. Leitað var
upplýsinga hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslensku óperunni, Þjóðleikhúsinu, Íslenska dansflokknum, Borgarleikhúsinu og Menningarfélagi Akureyrar.
Morgunblaðið/Golli
FRÉTTASKÝRING
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Kasper Holten, leikhússtjóri Kon-
unglega danska leikhússins (Det
Kongelige Teater) í Kaupmanna-
höfn, upplýsti í viðtali við Politiken í
liðinni viku að samkomubannið í
Danmörku hefði nú þegar kostað
Konunglega danska leikhúsið (sem
rekur leikhús, ballett og óperu)
samtals 53 milljónir danskra króna
(sem samsvarar rúmum 1,1 milljarði
íslenskra króna). Í viðtalinu segir
hann um tapaðar miðasölutekjur að
ræða að frádregnum þeim kostnaði
sem hlýst af því að sýna ekki. Tekur
Holten fram að ef stofnunin megi
aðeins sýna fyrir 500 manns í einu
þegar sýningar hefjast á ný í haust
verði talan 20 milljónum hærri.
Blaðamanni lék forvitni á að vita
hvernig staðan væri hjá sambæri-
legum menningarstofnunum hér á
landi og óskaði eftir upplýsingum
frá Sinfóníuhljómsveit Íslands,
Íslensku óperunni, Íslenska dans-
flokknum, Borgarleikhúsinu, Þjóð-
leikhúsinu og Menningarfélagi
Akureyrar.
Óvissan enn mikil
„Vegna samkomubanns hefur
Sinfóníuhljómsveit Íslands orðið
fyrir verulegum tekjumissi enda
fjöldi tónleika fallið niður eða frest-
ast til næsta starfsárs. Erfitt er að
segja nákvæmlega til um áhrifin
sem þetta hefur á reksturinn enn
sem komið er, en tapið hleypur á
tugum milljóna eða allt að þriðjungi
af áætluðum tekjum af miðasölu ár-
ið 2020,“ segir Lára Sóley Jóhanns-
dóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands (SÍ). Áætluð
heildarvelta SÍ á yfirstandandi
starfsári er um 1,6 milljarðar, þar af
var ráðgert að sértekjur næmu um
300 millljónum.
Að sögn Láru Sóleyjar er nú unn-
ið að endurskoðun rekstraráætlana í
góðu samstarfi við mennta- og
menningarmálaráðuneytið. „En
hljómsveitin bindur miklar vonir við
að frá og með næsta starfsári verði
viðburðahald ekki takmörkunum
háð, hvorki hvað varðar gesti í sal né
ferðahöft,“ segir Lára Sóley og tek-
ur fram að meðan óvissan sé enn
jafnmikil og raun ber vitni sé bæði
vandasamt að gera áætlanir og fá
heildarmyndina. Aðspurð segir hún
flesta tónleikagesti vilja nýta sér
það að eiga inneign í stað þess að fá
miða endurgreidda, en inneignin
gildir í fjögur ár. „Þannig mun
áhrifanna mögulega gæta lengur en
út næsta starfsár,“ segir Lára
Sóley.