Morgunblaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Laserlyfting
Lyftir kjálkalínunni, augnsvæðinu
og kinnunum
Er ástand húðarinnar verra en
aldurinn gefur til kynna?
Þéttir slappa húð á andliti og hálsi
Eyku kollagenframleiðslu
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Ég kom einu sinni inn á sýninguna
allar þessar vikur meðan hún var
lokuð. Ég fékk leyfi til að taka rykið
af verkunum þegar byrjað var að
hreinsa. Það var áhugavert að vera
aftur ein með henni, eins og þegar
ég setti hana upp, en nú í þessu
furðuástandi.“
Myndlistarkonan Guðný Rósa
Ingimarsdóttir er að tala um viða-
mikla sýningu sína, some things …,
sem var opnuð í menningarmiðstöð-
inni ISELP í Brussel í janúar en
Guðný hefur verið búsett og starfað
þar í borg um langt árabil.
Á sýningunni er fjöldi nýrra
verka, sem sýnd eru bæði á veggjum
og í sýningarkössum. Samhliða kom
út vegleg bók, samnefnd sýningunni,
en í henni eru yfir sjötíu verk Guð-
nýjar Rósu frá síðasta áratug. Vel
var staðið að sýningunni á alla vegu,
til að mynda með metnaðarfullu
fræðslustarfi fyrir jafnt grunnskóla-
börn sem háskólanemendur, en til
stóð að sýningunni lyki seint í mars.
Áður en að því kom var hins vegar
skellt í lás vegna kórónuveirufarald-
ursins. Sýningin var opnuð að nýju
nú á þriðjudag og hefur verið fram-
lengd, lýkur 14. júní.
Þrátt fyrir að Guðný Rósa hafi
verið búsett í Belgíu síðasta aldar-
fjórðung, þar sem hún vinnur með
galleríi og sýnir oft, á eiginmann
sem er líka myndlistarmaður og þrjú
börn, sýnir hún líka reglulega hér
heima. Til að mynda í Listasafni Ís-
lands 2008, Hafnarborg í fyrra, og
þá hefur hún sýnt í Hverfisgalleríi
þar sem hún er einn listamanna
hússins. En þegar spurt er hvort
þessi sýning í ISELP sé ekki hennar
viðamesta segir hún svo vera.
„Og ég hef verið djúpt snortin yfir
því hversu vel var tekið á móti mér
og vel að öllu staðið,“ segir hún.
„Sýningin var til að mynda kvik-
mynduð með vönduðum hætti og
miðlað þannig nú meðan var lokað,
og þá hefur verið búið til afar vandað
efni fyrir nemendur að vinna með í
tengslum við sýninguna og verkin.“
Einstakur heimur verka
Verk Guðnýjar Rósu eru hljóðlát
og fínleg, íhugul og marglaga. Hún
vinnur mikið með ýmiskonar pappír,
sem er skorinn út, klipptur og saum-
aður, þá koma orð og setningar við
sögu, á ensku, frönsku og líka ís-
lensku, og er iðulega leikið með
merkinguna eins og á flöskunni sem
í eru fífur og með ritvél hefur verið
skrifað á miða sem á henni er:
(m)einsemd. Hugmyndir um ein-
semd og meinsemd togast þar á. Þá
vinnur hún líka með hljóðverk.
Í grein í bókinni nýju lýsir sýn-
ingarstjórinn Catherine Henkinet
heimsókn í vinnustofuna til Guð-
nýjar Rósu, og segir verk hennar
gerð úr þögn, stillingu og markvissri
notkun efna og hugmynda. Vinnu-
stofuna segir hún bæði vera rann-
sóknarstofu og safn furðuhluta þar
sem listakonan nýti sér hvaðeina
sem hendi er næst: pappírsarkir, af-
klippur úr eldri verkum, gamlar
teikningar, smáglös sem hún hefur
hirt, búta úr veggfóðri, minnismiða,
minjagripi – alls kyns efnivið sem
hún umbreyti á sinn hátt til að skapa
einstakan heim verka.
„Ég fékk að vera ein í sýningar-
rýminu í þrjár, fjórar vikur um jólin
og það var mjög mikilvægt,“ segir
Guðný Rósa um gerð sýningarinnar.
„Ég fór í raun með vinnuborðin mín
þar inn og þar sem má sjá í sýn-
ingarkössunum varð jafnvel til þar á
staðnum eða tók breytingum. Þar
eru til að mynda brot úr verkum sem
má sjá í bókinni, einhver eldri verk
sem hafa breyst í ferlinu – það er
mikil endurvinnsla í þessu ferli. Og
það var gott að geta komið þar inn
með alls kyns efnivið úr vinustofunni
að moða úr. Það eina sem ég vissi í
byrjun þegar ég kom í salinn var að
ég vildi hafa á endavegg rautt verk
sem er þar, eins konar „fláða“ ljós-
mynd sem er saumuð undir pappír.
Annað vissi ég ekki fyrir en smám
saman tók sýningin á sig mynd.“
Hún segir þessa rauðu mynd, sem
í er fláð setningin „The self being re-
cyclable“, vera dæmigerða fyrir það
hvernig hún vinnur; ljósmyndina tók
hún 1997, framkallaði hana 2001,
„fláði“ hana svo fyrir sýningu í París
2010 og nú endar hún hér og búið að
sauma pappír yfir hana.
Nýir upphafspunktar
Guðný Rósa segir sýningarsal
ISELP alls ekki auðveldan viðfangs
og hvað þá fyrir svo fínleg verk.
Þetta er fyrrverandi verksmiðju-
húsnæði, að hluta á tveimur hæðum,
og stórir svartir stálbitar vitna um
fyrri starfsemi. En jafnvægið og
áhrifamikla heildina á sýningunni,
sem hefur verið lofuð, segir hún án
efa afrakstur þess að geta eytt svo
löngum tíma ein þar við uppsetn-
inguna.
„Satt best að segja var ég upp-
haflega hálfhrædd við þetta rými og
ákvað að halda veggjum sem voru
settir upp fyrir sýningu sem var þar
á undan; það hentaði mér ekki að
fara að skapa einhverja leikmynd.
Á neðri hæðinni eru dyr í enda
salarins og þar fyrir innan minni sal-
ur þar sem ég hugðist hafa hljóð-
verkið „Then fold bottom up“. En í
hvert sinn sem ég opnaði dyrnar
hvarf einhvern veginn þögnin sem
ég naut að hafa í salnum. Ég endaði
því með að hafa dyrnar bara lokaðar,
lét smíða bekk sem fór í anddyri sal-
arins við kaffistofuna og setti hljóð-
verkið þar í heyrnartól. Dyrnar urðu
að vera lokaðar svo ég gæti unnið.“
Þegar talað er um fínlega sam-
stillingu verkanna, sem er svo
áhugavert að rýna í, segir Guðný
Rósa að sér þyki mikilvægt að gestir
geti sjálfir uppgötvað heima og hug-
myndir sem í þeim búa. Því hafi hún
beðist undan því að vera með leið-
sögn á sýningunni; sér finnist hún
frekar draga úr upplifun annarra á
verkunum en bæta við sé hún á
staðnum. En hvað með hlutverk
textabrotanna sem má svo víða sjá í
verkunum?
„Á vinnustofunni verður textinn
til samhliða teikningu og sauma-
skap,“ segir hún. „Ég get verið að
teikna og stend svo upp og fer að
skrifa í annað verk. Á vinnustofunni
eru ein átta borð og ég dett inn í
verk á einu og fer svo yfir á annað og
held þar áfram, í einhverju flæði. Ég
hef alltaf litið á textana, orðin, sem
hluta af heildinni, ekki sem útskýr-
ingar eða lykla. Ég tek til dæmis
gamla texta og rugla í þeim. Þeir eru
oft eins og einhver augnablik.
En ég vinn úr allra handa efniviði
– ég er gríðarlegur safnari og alltaf
að endurvinna eitthvað í verkunum
sem mér finnst áhugavert.“
Nú hefur Guðný Rósa verið lengi
búsett í Brussel; er hún ekki orðin
belgískur listamaður?
„Nei!“ svarar hún og hlær. „Ég
verð alltaf að hafa íslensku allt í
kringum mig. Og ég á „ísbelgi“, segi
ég um börnin mín.
Ég starfa vissulega hér en er líka
alltaf með hugann og annan fótinn
heima. Ég hef svosem verið virkari
hér í listinni, en ég er ánægð með að
hafa getað sýnt reglulega heima.“
Síðan í mars hefur Guðný Rósa
verið að mestu heima við með fjöl-
skyldunni en skóli níu ára sonar hen-
ar er enn lokaður. „En ég hlakka til
að geta farið að vera meira á vinnu-
stofunni aftur. Ég hef sýnt mikið
undanfarið og sýningin í ISELP er
eins konar lokapunktur á þeirri törn,
en nú bíður mín ógrynni nýrra upp-
hafspunkta,“ segir hún.
Hljóðlát, fínleg og marglaga
Viðamesta sýning Guðnýjar Rósu Ingimarsdóttur aftur opin í ISELP-menningarstofnuninni í
Brussel Hefur verið djúpt snortin yfir móttökunum Vann alein í sölunum í nokkrar vikur
Morgunblaðið/Einar Falur
Íhugul Guðný Rósa Ingimarsdóttir
á sýningu sinni í Hverfisgalleríi.
Ljósmyndir/Jules Toulet
Markvisst Frá sýningu Guðnýjar Rósu í ISELP í Brussel, þar sem fjöldi verka er á veggjum og í sýningarkössum.
Alls kyns Horft í einn sýningarkassann, en í þeim mætast allrahanda brot
og verk sem Guðný Rósa raðar saman og lagði lokahönd á í salnum.
Endurvinnsla Verk án titils frá
2011, úr glösum og þráðum.