Morgunblaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 56
af öllum sumarvörum
lýkur á mánudag
Opið í dag 12-18
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Mánudaga - Sunnudaga 12-18
Frí heimsending
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
FYRIR ÞÁ SEM VERSLA
FYRIR 5.000 EÐA MEIRA
WWW.ILVA.IS
GILDIR Í VEFVERSLUN Í MAÍ
25%Sparadu-
BALANCE gólflampi. Reyklitaður
kúpull. 21.995 kr. Nú 14.995 kr.
YPE stóll. Grátt PU
urlíki, svartir fætur.
900 kr. Nú 21.900 kr.
H
leð
29.
27%
32%
Cunio & Lioni
CUNIO garðborð með 2 plönkum. Svart polywood, álfætur. 210x100 cm.
74.900 kr. Nú 56.175 kr. LIONI garðstóll. Staflanlegur. 16.900 kr. Nú 12.675 kr.
MaíTILBOÐ
WWW.ILVA.IS/TILBOD
LOPEZ sólbekkur. 3 stillingar.
12.900 kr. Nú 9.675 kr.
Nýjar kannanir sem gerðar hafa verið meðal gallerista
víða um lönd draga upp dökka mynd af viðskiptum með
myndlist og afkomu listamanna. Um þriðjungur þeirra
býst við því að þurfa að loka galleríum sínum og þá
einkum þeim sem hafa fáa starfsmenn, níu eða færri.
Samtök listsala í Bandaríkjunum spá 73% samdrætti í
sölu milli ára og hefur álíka háu hlutfalli lausamanna
og verktaka verið sagt upp. Um helmingur sölu gallería
á sér stað á listkaupstefnum, sem liggja alfarið niðri,
og býst stór hluti gallerista ekki við að taka þátt í nein-
um slíkum á árinu.
Mikill samdráttur í sölu myndlistar-
verka og galleríum verður lokað
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 142. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Mér fannst þetta vera rétti tíminn til að prófa eitthvað
nýtt og takast á við nýjar áskoranir. Ég vil sýna hvað í
mér býr hjá öðru félagi. Þótt maður sé kominn í Grinda-
vík verður maður alltaf Njarðvíkingur,“ segir Kristinn
Pálsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, sem á dög-
unum flutti sig um set á Suðurnesjunum og yfirgaf
uppeldisfélagið. »46
Ég vil sýna hvað í mér býr
hjá öðru félagi
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Undanfarið um eitt og hálft ár hafa
Tom Grove, doktorsnemi við Edin-
borgarháskóla í Skotlandi og Háskóla
Íslands, og Edda Elísabet Magnús-
dóttir, líffræðingur og nýdoktor við
HÍ, unnið við hvalarannsóknir á
Norðurlandi, bæði í Eyjafirði og
Skjálfanda, í sam-
starfi við Rann-
sóknasetur HÍ á
Húsavík og fyrir-
tæki hvalaskoð-
unarbáta. Rann-
sóknirnar eru
ótengdar en eiga
það sameiginlegt
að kannað er
hvaða áhrif breyttar umhverfis-
aðstæður hafa á hvalina. Gert er ráð
fyrir að þeim ljúki innan tveggja ára.
„Tilgátan er að hvalir séu hér í
auknum mæli allt árið vegna breyt-
inga í umhverfinu,“ segir Edda. „Ég
er að reyna að kanna hvaða vist-
fræðilegir þættir stýra því hvort
þessir farhvalir fari í far eða ekki,
hvort þeir haldi sig æ meira á norður-
slóðum vegna breyttra aðstæðna.“
Doktorsverkefni Toms Groves
snýr að því að kanna hvort hvala-
skoðun valdi streitu hjá hvölum og
beitir hann ýmsum aðferðum í rann-
sókn sinni. Hann reynir m.a. að
greina streituhormón úr útblæstri
hvala með því að láta dróna fljúga í
gegnum útblásturinn og safna sýnum
og kannar atferli þeirra frá bátum og
landi. „Tilgangurinn er ekki að grafa
undan hvalaskoðun heldur efla þekk-
ingu og hjálpa hvalaskoðunarfyrir-
tækjum að bæta sjálfbærnina í starf-
seminni, bæta reglur um siglingar í
nágrenni hvala, hvað margir bátar í
einu og svo framvegis, og verkefnið
er unnið náið með hvalaskoðunarfyr-
irtækjum,“ leggur Edda áherslu á.
Nýir möguleikar með banni
Fyrir um þremur árum varði Edda
doktorsritgerð um söng hnúfubaka.
Hún bendir á að karldýrin syngi á
veturna, þegar þeir eru orðnir frjóir
og tilbúnir að makast. Hegðunin sé
þekkt á suðrænum æxlunarsvæðum
en óvenjulegt sé að heyra söngvana á
norðurslóðum. Vegna þessa hafi hún
farið að kanna betur hvali við landið,
hvers vegna þeir væru hér allt árið og
sýndu sig fyrir kvendýrum með fyrr-
greindum hætti. „Ætla má að aukið
aðgengi að fæðu vari lengur fram á
vetur en áður, sem er vísir að breyt-
ingum í hafinu, og það sé ástæða þess
að þeir eru hér lengur,“ segir hún.
Ætla má að kórónuveirufarald-
urinn dragi verulega úr hvalaskoð-
unum í sumar. Edda segir að þess
vegna fáist ekki jafn ýtarlegt yfirlit
um hvaða hvalir eru út af Norður-
landi allt sumarið. Starfsmenn Rann-
sóknasetursins á Húsavík fari viku-
lega í dagsleiðangra, ef veður leyfir.
Þá sé svæðið kannað og hvalir mynd-
aðir, atferli þeirra skráð, fjöldi, lífsýni
tekin þegar tækifæri gefst og svo
framvegis. Hins vegar verði líklega
lítið um söfnun öndunarsýna.
Breyttar aðstæður bjóði samt upp
á nýja möguleika. Hún verði með hóp
nemenda fyrir norðan sem fylgist
með atferli hvalanna frá landi, geri
mælingar á köfunartíðni og þar með
öndunartíðni. Þessar upplýsingar
segi til um orkunýtingu í misjöfnum
athöfnum. „Við fáum líka yfirsýn yfir
hvernig þeir haga sér að þessu leyti
þegar bátaumferð er mjög lítil og síð-
an þegar hún eykst aftur. Þetta er
einstakt tækifæri til að hjálpa öllum
að átta sig á mögulegum áhrifum
skipaumferðar.“
Edda hefur tekið upp hljóð í Skjálf-
anda í mörg ár og ætlar að gera það í
samstarfi við Tom Grove í sumar.
„Áhugavert verður að sjá hvort við
sjáum mun á hljóðvistinni þegar allt
liggur í dvala og svo þegar allt verður
komið á fullt á ný. Við ætlum að nýta
þessar sérstöku aðstæður til saman-
burðarrannsókna til þess að efla
skilning okkar á hvölunum og hvern-
ig við getum nýtt þessa þekkingu til
að haga okkur á skynsaman hátt
gagnvart auðlindinni sem hvalirnir
eru.“
Hvalaskoðun og streita
Rannsóknir Edda Elísabet Magnúsdóttir er vel kunnug hvölum.
Áhrif breytinga í umhverfinu á hvali rannsökuð fyrir norðan
Vísindi Tom Grove vinnur að doktorsverkefni um hegðun hvala.