Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 32

Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020 ✝ Anna Snorra-dóttir fæddist á Siglufirði 15. júní 1926. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands í Fjallabyggð 15. maí 2020. Foreldrar Önnu voru Snorri Stef- ánsson, f. 1895, d. 1987, og Sigríður Jónsdóttir f. 1889, d. 1972. Anna var einkabarn. Anna giftist Knúti Jónssyni, f. 1929, d. 1992, 17. október 1953. Fósturbörn Önnu og Knúts eru: 1) Hafdís Fjóla Bjarnadóttir, f. 1967, maki Jóhann Þór Ragn- arson, f. 1965, dætur þeirra eru a) Anna Þóra, f. 1987, í sambúð með Davíð Minnar Péturssyni, f. ari hjá Sparisjóði Siglufjarðar frá 1947 til 1952, hjá Áfengisvarn- arráði Reykjavíkur 1954 til 1957 og nokkur sumur hjá Síldarverk- smiðjum Rauðku á Siglufirði. Hún var stundakennari í Gagn- fræðaskóla Siglufjarðar á ár- unum 1961 til 1968. Anna hafði mikla ánægju af fé- lagsstörfum og var í stjórn kven- félags Sjúkrahúss Siglufjarðar frá 1961 til 1980 og formaður frá 1977. Hún var í stjórn kvenfélags- ins Vonar frá 1974 og formaður frá 1986. Anna var í Barnaheim- ilisnefnd frá 1972 til 1978 og í Lionessuklúbbi Siglufjarðar frá 1979 og formaður frá 1985. Anna var meðlimur í kirkjukór Siglu- fjarðar frá 1946 og í stjórn hans í 20 ár og í Kvennakór Siglu- fjarðar frá stofnun 1968 og for- maður frá 1970. Anna verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju í dag, 6. júní 2020, klukkan 11. 1983, þeirra dóttir er Fjóla Minney, f. 2017, og b) Sandra Ósk, f. 2000. 2) Ósk- ar Einarsson, f. 1970, maki María Ben Ólafsdóttir, f. 1974. Þeirra börn eru Anna Metta, f. 2010, og Andri, Már f. 2013. Sonur Ósk- ars af fyrra sam- bandi er Snorri Már, f. 1998. Anna ólst upp í Hlíðarhúsi á Siglufirði. Anna lauk versl- unarprófi frá Verslunarskóla Ís- lands árið 1947. Hún stundaði nám í Húsmæðraskóla Reykja- víkur frá 1952 til 1953 og sótti ýmis kennaranámskeið á ár- unum 1971 til 1976. Anna var rit- Elsku mamma. Á einum af þessum vordögum í maí kvaddir þú okkur í hinsta sinn. Undanfarin 47, ár eða síðan ég kom til ykkar Knúts á Siglu- fjörð árið 1973, hefur þú verið stoð mín og stytta. Það var sann- kallaður lottóvinningur að fá að alast upp hjá ykkur og það segir mikið að þegar ég kom til ykkar þriggja ára gamall var ég ekki farinn að tala. En eftir að hafa upplifað kærleikann og hlýjuna sem tók á móti mér á heimili ykk- ar var ég orðinn altalandi eftir tvær vikur. Það sýnir manni hversu mikilvægt það er að barn upplifi ást og umhyggju. Uppeldisárin hjá ykkur á Siglufirði voru yndisleg og þú gafst mér frelsi til að prófa ýmis ævintýri og bralla margt, eins og að veiða á bryggjunni, skíða um fjöllin og hjóla um allan bæ. Stundum gátu þessi ævintýri þó farið úr böndunum en þá varst þú yfirleitt sú sem kom til bjargar. Eitt af þeim skiptum var þegar ég var sex ára og komst í flug- eldapakka sem pabbi hafði geymt uppi á lofti á Háveginum og átti að skjóta upp á gamlárskvöld nokkrum dögum seinna. Á ein- hvern hátt tókst mér með rokeld- spýtum að kveikja í öllum pakk- anum, sem skaust eftir ganginum á Háveginum. En þú komst til bjargar og náðir að taka gólf- dregil og henda yfir eldinn sem var orðinn ansi mikill og slökktir hann þannig. Þú tókst þessu öllu með jafnaðargeði, fórst með mig á sjúkrahúsið og lést gera að sár- unum. Eftir stóðu hins vegar ör á höndum og gólfi sem áminning um að fara varlega með hættu- lega hluti. Á þessum tímapunkti rifjast upp margar yndislegar minning- ar með þér eins og ferðir til út- landa, heimsóknir til Fjólu og fjölskyldu á Grundarfjörð, ferða- lög til Reykjavíkur og margt fleira. Á meðan þú bjóst ein í stóra húsinu á Háveginum var ég vanur að koma í nokkrar vikur á hverju sumri og sinna viðhaldi á húsinu fyrir þig. Því hafði ég lof- að þér þegar pabbi dó 1992 og gerði það alltaf, alveg þangað til þú seldir húsið og fluttir á Skála- hlíð. Á þessum vikum var dyttað að húsinu en á kvöldin eldaðir þú góðan mat og við sátum og spjöll- uðum fram eftir. Þessar vikur voru því eins og sumarfrí fyrir mig og eru einar þær dýrmæt- ustu í lífi mínu. Nokkrum sinnum um ævina hef ég þurft að ganga í gegnum erfið veikindi og stórar skurðaðgerðir. Alltaf varst það þú sem komst með mér og studd- ir mig og varst til staðar fyrir mig og er ég ævinlega þakklátur fyrir það. Ég er líka mjög þakklátur fyrir hvað þú varst dugleg að koma til okkar Maríu og krakk- anna á Selfoss eftir að ég flutti þangað. Þökk fyrir allt sem þú gafst mér og og fjölskyldu minni um ævina. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfin úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þinn fóstursonur Óskar Einarsson. Það er sorg í hjarta mínu þeg- ar ég kveð hana móður mína og aldrei á málshátturinn „enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“ betur við en hér. Hef alltaf sagt að ég hafi unnið minn happ- drættisvinning þegar hún og pabbi komu inn í líf mitt þegar ég var rúmlega 6 ára gömul og veittu okkur Óskari bróður skjól og það skjól höfðum við í 47 ár. Ég man það svo ljóslifandi þegar þau komu og sóttu okkur systkinin á barnaheimilið sem við vorum á, og okkur sagt að við værum að fara til Siglufjarðar, pabbi og mamma komu á Range Rover-jeppa og hafði ég aldrei sest upp í eins stóran bíl, þau sögðu okkur að við myndum keyra í gegnum göng á leiðinni og held ég að ég hafi byrjað að spyrja þegar við vorum komin upp í Mosfellssveit hvort göngin færu nú ekki að koma. Mamma var einstök kona, allt- af hlý og góð sem elskaði okkur systkinin skilyrðislaust. Það var ekki fyrr en ég komst til vits og ára að ég gerði mér grein fyrir hversu stórt verkefni þau tóku að sér og leystu með glæsibrag og fyrir það er ég svo innilega þakklát. Hvíl í friði í faðmi ásvina þinna, veit að þau taka þér opnum örm- um. Blessuð vertu baugalín. Blíður Jesú gæti þín, elskulega móðir mín; mælir það hún dóttir þín. (Ágústína J. Eyjólfsdóttir) Dóttir þín að eilífu, Fjóla. Elsku amma. Takk fyrir að vera alltaf svo góð við mig og Önnu Mettu. Það var gaman að koma til þín á Siglufjörð og líka þegar þú komst til okkar í heimsókn. Það var líka skemmtilegt að spila við þig eins og við gerðum oft. Þú varst dug- leg að lesa fyrir mig og að hjálpa mér að læra að lesa. Það var svo gott að knúsa þig, amma, og ég sakna þín mikið. Ég veit að þér líður þér vel á himnum hjá Knúti afa og skilaðu ástarkveðjum til hans. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þinn ömmustrákur Andri Már. Elsku amma. Það hefur verið dásamlegt að hafa þig hjá mér og ég mun sakna þín, Siglóamma. Ég vona að þér líði vel með Knúti afa, hann beið svo lengi eftir þér. Þú varst góð kona og þú hjálpaðir mér þegar ég fékk hlaupabóluna og passaðir mig þegar mamma og pabbi fóru út. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og þú varst yndisleg amma og þessi tíu ár voru dásamleg með þér. Það var alltaf svo gam- an þegar þú komst til okkar á Sel- foss. Ég mun sakna þín mikið. Besta amma í heimi, hvíl í friði. Þín ömmustelpa Anna Metta. Hún Anna hefur kvatt okkur í hinsta sinn og er farin í ferðina löngu til fundar við Knút sinn. Það er svo erfitt að trúa því að við eigum aldrei eftir að hitta þig aft- ur og knúsa. Á þessari stundu rifjast upp allar yndislegu minn- ingarnar sem ég á um þig allt frá því að ég heimsótti þig á Háveg- inn á Siglufirði í fyrsta sinn, nokkrum mánuðum eftir að við Óskar hófum okkar samband í ágúst 2007. Eins og ávallt eftir það voru móttökurnar alltaf in- dælar og ljúfar. Þú töfraðir fram dýrindis máltíðir, spjallað var um heima og geima, farið í ökuferð um fjörðinn, sólað sig í garðinum og margt fleira. Það var alltaf svo gaman að koma á Siglufjörð og hitta þig og eiga með þér góðar stundir. Þú varst líka svo dugleg að koma til okkar á Akureyri og síðan á Selfoss eftir að við flutt- um þangað. Það var alltaf til- hlökkun að fá þig um jólin og þau voru fyrst komin þegar þú varst komin til okkar. Og þrátt fyrir að aldurinn færðist yfir komstu allt- af til okkar. Ein dýrmætasta minningin sem ég á um þig er fæðingin hans Andra Más. Seint um kvöld i september fyrir tæpum sjö árum, þá 87 ára, léstu þig ekki muna um að koma til Akureyrar frá Siglu- firði til að vera viðstödd fæð- inguna, sem var sú fyrsta og eina sem þú upplifðir. Og þrátt fyrir hraðar hríðir og frekar stutta fæðingu beið Andri eftir því að amma væri komin og þá kom hann í heiminn. Amma átti að fá að vera viðstödd. Og þegar Anna Metta fékk hlaupabóluna komstu með rútunni 91 árs á Selfoss til að hjálpa okkur og vera heima með henni á meðan ég var að vinna og Óskar að byggja húsið okkar. Mér þótti líka mjög vænt um þeg- ar þú komst frá Siglufirði og varst hjá okkur þegar pabbi dó og við fylgdum honum til grafar. Þú vildir alltaf aðstoða og hjálpa okkur á meðan þú gast. Þú varst einstök og ég er mjög þakk- lát fyrir allan tímann sem ég fékk með þér og að Anna Metta og Andri Már eigi fallegar minning- ar um bestu ömmu sem til var. Þú gafst okkur mikið með nærveru þinni og kærleika og við munum sakna allra stundanna með þér en við munum alltaf geyma þig í hjarta okkar og eftir standa dýr- mætar minningar um yndislega konu, Takk fyrir allt, Anna, og von- andi líður þér vel núna í faðmi Knúts sem var búinn að bíða svo lengi eftir þér. Og skilaðu kveðju til mömmu og pabba. Þín tengdadóttir María Ben Ólafsdóttir. Stella frænka fæddist og ólst upp í Hlíðarhúsi. Hún var auga- steinn foreldra sinna, Snorra Stefánssonar, framkvæmda- stjóra Rauðku, og Sigríðar Jóns- dóttur húsfreyju. Í minningunni var Hlíðarhús öðruvísi veröld en ég sá annars staðar. Að koma þar var eins og að stíga inn í ævintýri. Í Hlíðarhúsi var ekki bara borð- stofa heldur líka betristofa og allt svo fínt, fágað og framandi. Þarna ólst Stella frænka upp eina barn foreldra sinna. Ein af fyrstu minningum mín- um um Stellu frænku var þegar sá hana leika í Ævintýri á Göngu- för með Leikfélagi Siglufjarðar. Hún var svo flott og glæsileg á sviðinu með ljósu lokkana sína og söng svo vel. Ég, stelpuskottan, var upp með mér af frænku minni. Svo man ég hana keyrandi flotta jeppann hans Snorra. Það var ekki algengt þá að konur keyrðu bíla. Það var líka töff. Stella var glæsileg kona og ávallt einstaklega falleg til fara. Sann- kölluð dama. Hún hafði unun af listum, einkum tónlist og mynd- list en líka ljóðlist. Stella talaði fallega íslensku og var oft afskaplega skemmtilega hnyttin. Stuttu efir að ég varð sjötug kom ég til hennar og við vorum að ræða saman og ég segi eitthvað á þá leið að ég skilji þetta bara ekki, mér finnist ég ekkert orðin sjötug og þá segir Stella það er nú bara ekkert skrítið, mér finnst ég ekki einu sinni vera orðin níræð. Hún söng í kirkjukór Siglu- fjarðar áratugum saman og líka í blönduðum kórum. Stella var fé- lagslynd og virk í kvenfélagi Slysavarnafélags Íslands, kven- félaginu Von og formaður þess lengi. Svo verður að geta þess að hún var félagi í Sjálfstæðisfélagi Siglufjarðar alla tíð. Hún lét víða gott af sér leiða, ekki bara með sjálfboðastarfi víða heldur sýndi hún hug sinn til samfélagsins á Siglufirði þegar hún gaf æsku- heimili sitt, Hlíðarhús, til Síldar- minjasafnsins þar. Það varð þeim hjónum, Knúti og Stellu, mikil gæfa að fá á sitt heimili systkinin Fjólu og Óskar. Talaði Stella oft um það hve mik- ið gæfuspor það var. Hún elskaði þau eins og þau væru hennar eig- in. Gleðin og hamingjan við að eignast barnabörnin var mikil. Fjóla og Óskar sýndu mömmu sinni einstakan stuðning, ást og kærleika. Stella var afar sæl að sjá fjölskylduna sína dafna og farnast vel. Stella frænka var einstaklega sjálfstæð kona. Hún hafði líka mikla þörf fyrir að bjarga sér sjálf. Hún var og höfðingi heim að sækja. Stella bjó í húsinu sínu fram á tíræðisaldurinn og keyrði sinn bíl. Fyrir um það bil tveimur árum ákvað hún að nú væri nóg komið, seldi húsið og bílinn og flutti út í Skálahlíð. Svona gat hún haft þetta vegna stuðnings sinna nánustu, barna sinna og góðra granna. Stella frænka var sátt við guð og men og tilbúin að kveðja. Hún var mér fyrirmynd í mörgu og ég er þakklát henni fyrir það og okkar vináttu. Ég á eftir að sakna þess að geta ekki hringt, spjallað og litið til hennar. Hún var eldklár í kollinum, fylgd- ist vel með og var nútímaleg. Ég og fjölskylda mín vottum börn- unum hennar og fjölskyldum samúð við fráfall þessarar góðu konu, móður, ömmu og lang- ömmu. Guð blessi minningu Önnu Snorradóttur. Meira: mbl.is/andlat Árdís Þórðardóttir. Við systkinin kölluðum hana alltaf Stellu frænku. Frá barn- æsku hefur hún átt sérstakan sess í lífi mínu. Mamma og hún voru systradætur og bernsku- heimili beggja var í Hlíðarhúsi á Siglufirði. Þar bjuggu systurnar amma Ólöf og Sigríður frænka alla tíð ásamt fjölskyldum sínum. Heimilis- og fjölskyldulíf í Hlíð- arhúsi byggðist á hefðum fyrri tíma. Samvinna og verkaskipting var um matseld, heimilishald og húsþrif. Við íbúðarhúsið var fal- legur vel hirtur garður með rifs- berjarunnum og blómaskrúði. Tvær kýr, Grána og Rauðka, voru í útihúsi, mannýgur hani og hænur á vappi í túninu og nokkr- ar kindur í fjárhúsi. Þessar að- stæður eru greyptar inn í mitt barnsminni. Hlíðarhús var og er minnismerki um liðinn tíma hvað varðar húsaskipan og innan- stokksmuni. Það var því viðeig- andi þegar Stella ánafnaði Síld- arminjasafninu húsið til varðveislu. Stella var tveimur ár- um yngri en mamma en strax frá barnsaldri var samband þeirra mjög náið. Síðar æxlaðist það svo að þær bjuggu lengst af í sama húsinu á Háveginum, Stella og Knútur á efri hæðinni, eftir að Sína, Lalli og fjölskylda fluttu suður, og mamma og pabbi á þeirri neðri. Í barnæsku minnist ég margra ánægjustunda með Stellu. Hún söng í kirkjukórnum og tók mig með á söngæfingar og í messur. Ég fékk að sitja uppi á kirkjuloftinu hjá kórnum og lærði ógrynnin öll af sálmum sem ég kann enn í dag. Þá eru mér minn- isstæðar allar berjaferðirnar sem við fórum á Willysjeppanum hans Snorra yfir Skarðið inn í Fljót og Flókadal eða inn í Stíflu. Stund- um fórum við í styttri ferðir yfir á Ásinn og inn í Hólsdal, þá oft með mömmu, ömmu og frænku. Í mín- um huga var Stella frænka nán- ast fullkomin og gat allt. Hún keyrði bíl, söng í kirkjukórnum, var falleg, glaðvær og alltaf glæsileg. Eftir að ég flutti að heiman var alltaf mitt fyrsta verk að koma við hjá Stellu þegar ég heimsótti heimabæinn minn. Þá voru þau Knútur flutt í nýtt hús hinum megin við götuna. Heimili þeirra var einstaklega fallegt og bar vott um natni og frábæra smekkvísi enda Stella mikil hannyrðakona og kenndi um tíma handavinnu í Gagnfræðaskólan- um. Knútur starfaði lengst af hjá Síldarútvegsnefnd, þar sem tungumálakunnátta hans kom sér vel, og sat í mörg kjörtímabil í bæjarstjórn. Dugnaður og lífs- gleði Stellu smitaði út frá sér í öllu sem hún tók sér fyrir hendur hvort sem það var í kennslu, kirkjukórnum eða kvenfélaginu. Hún naut þess að vera innan um fólk, var hafsjór af fróðleik og stálminnug. Þó að líkaminn væri farinn að gefa sig var viljinn og lífskrafturinn óbreyttur. Hún víl- aði ekki fyrir sér að fara margar bílferðirnar suður til að hitta börnin sín og barnabörnin, núna Anna Snorradóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Eiginmaður minn elskulegur og besti vinur, GEIR TORFASON, Melabraut 50, Seltjarnarnesi, sem lést 26. mars, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 11. júní klukkan 13. Ingveldur Ingólfsdóttir og fjölskylda Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GISSUR ÞÓR SIGURÐSSON húsasmíðameistari, Fífusundi 1, Hvammstanga, lést 1. júní á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Hvammstanga. Útförin verður auglýst síðar. Guðrún Valgerður Árnadóttir Lukka S. Gissurardóttir Þorkell Helgason Ragna Gissurardóttir Larsen Kristján R. Larsen Sunneva Gissurardóttir Sigurrós Gissurardóttir Arnþór Stefánsson Árni Jón Gissurarson Laufey Þórðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sambýlismaður minn, fósturfaðir okkar, bróðir og frændi, EINAR HAUKUR EINARSSON, Snægili 3b, Akureyri, varð bráðkvaddur miðvikudaginn 3. júní. Hann verður jarðsunginn í kyrrþey, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd. Mekkin Kjartansdóttir, börn og barnabarn Steinunn Einarsdóttir Valberg Kristjánsson Þórey Einarsdóttir Guðjón Rúnar Guðjónsson Heiðdís, Einar, Díana, Kristján, Dagný Hulda, Silja, makar og börn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.