Morgunblaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 49
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Hver er Herdís Stefánsdóttir?Jú, ég varð fyrst var viðþetta nafn í gegnum raf-
poppsdúettinn East of my Youth ár-
ið 2017 og eftir hann liggja nokkur
lög og stuttskífa sem út kom það ár.
Nafn hennar blasti svo við mér
vegna dómnefndarstarfa á síðasta
ári, en þá var hún tilnefnd til Ís-
lensku tónlist-
arverðlaunanna
fyrir tónlistina við
The Sun is also a
Star. Sama ár og
East of my Youth
hóf að vekja at-
hygli útskrifaðist
Herdís frá New York University
með MA-gráðu í kvikmyndatón-
listargerð. Tónlistin hefur alltaf
verið í henni að eigin sögn en hún
reyndi lengi vel að ýta henni í burtu
og fór m.a. í lögfræðinám. Í því námi
kom tónlistin aftur inn í líf hennar
af miklu afli og samfara bókagrúski
fór hún að semja og spila af fítons-
krafti sem hún vissi vart að hún
byggi yfir. Tónlistin tók að lokum
yfir og verk eftir Herdísi hafa nú
ratað inn í innsetningar, dansverk
og leikhús en einnig í stuttmyndir
og myndir í fullri lengd. Auk The
Sun is also a Star (2019) á hún tón-
listina í South Mountain sem kom út
sama ár en það er Hilary Brougher,
ein af virtari kvenleikstjórum sam-
tímans, sem gerir þá mynd. Þá á
Sól, sól, skín á mig
Skáld Herdís Stefánsdóttir kvikmyndatónskáld tekur það rólega í New York.
Herdís líka tónlistina í HBO-
þáttaröðinni We‘re Here sem var
frumsýnd fyrir stuttu. Herdís vann
með Jóhanni Jóhannssyni á meðan
hún var í námi, kom að Arrival, og
stuttmyndir sem hún hefur unnið
tónlistina fyrir hafa verið sýndar á
hátíðum eins og Berlinale, TIFF og
Sundance. Herdís hefur talsvert
verið í viðtölum vegna þessa við
ýmsa miðla, hlaðvörp og kvik-
myndaleg sérfræðirit en ég ákvað
barasta að fara beint í rótina og
heyra aðeins í henni sjálfri og allt
fyrir tilstuðlan hins netbundna
heims. Herdís býr í Berlín alla jafna
en er á Íslandi um þessar mundir.
Spjall okkar fór þó fram í gegnum
Messenger-forritið góða og aðeins í
gegnum tölvupóst. Ég var fyrir það
fyrsta forvitinn um það hvernig fólk
landar svona stórum bitum eins og
The Sun is also a Star?
„Það var í raun frekar langsótt
og ótrúlegt að það hafi gerst miðað
við aldur og fyrri störf!“ segir Her-
dís og hlær í gegnum netið. „Um-
boðskonan mín bað mig að útbúa
möppu með tónlistinni minni fyrir
þessa mynd, sem er oft gert. Ég
hafði aldrei gert tónlist fyrir kvik-
mynd í fullri lengd áður og hafði því
alls ekki mikla reynslu. Við sendum
tónlistina og bjuggumst í raun ekk-
ert við svari og svo kom auðvitað
ekkert svar! Það var ekki fyrr en
nokkrum mánuðum seinna að hún
sendir mér skilaboð og segir að
Warner Brothers séu alltaf að
streyma tónlistinni minni (en hún
fær þá meldingu um það). Í sömu
viku hringir hún í mig og segir:
„Herdís, þú munt ekki trúa þessu en
Warner Brothers voru að hringja í
mig og spyrja hvort þú værir laus.“
Ég hélt auðvitað að hún væri að
grínast. En þá hafði leikstjórinn ver-
ið að hlusta á tónlistina mína og
fannst ég vera tónskáldið fyrir
myndina. Hún fékk það þá í gegn að
ég væri ráðin! Stóru kvikmynda-
verin eru ekki mikið í því að ráða
fólk með litla reynslu svo ég var
frekar heppin!“
Ég spyr Herdísi út í konur í
þessum bransa, hvort hún skynji
einhverjar breytingar, en tölulega
og sögulega séð standa þær höllum
fæti gagnvart karlmönnunum.
„Konum er klárlega að fjölga í
þessum bransa,“ svarar hún. „Ég
held að við munum sjá fleiri og fleiri
á næstu árum. Ég hef séð miklar
breytingar á síðustu árum eða síðan
ég byrjaði að pæla í kvikmynda-
tónlist. Þegar ég var að byrja gat ég
varla talið kvenkyns kvikmynda-
tónskáld á fingrum annarrar hand-
ar og vissi ekkert hvar ég ætti að
leita að þeim! Hildur Guðnadóttir og
fleiri konur eru að ryðja veginn með
stærri verkefnum og ferskir vindar
blása um Hollywood, finnst mér.“
Fram undan hjá Herdísi er að
vinna tónlist fyrir Blackport (Ver-
búðin) sem er ný sjónvarpssería frá
Vesturporti. Hún segist þá vera að
vinna að sólóplötu líka og verður
líka í sýningu í Borgarleikhúsinu í
lok árs. Það er ýmislegt hægt
greinilega, sé hjartanu fylgt.
» Tónlistin tók aðlokum yfir og verk
eftir Herdísi hafa nú
ratað inn í innsetningar,
dansverk og leikhús en
einnig í stuttmyndir og
myndir í fullri lengd.
Herdís Stefánsdóttir
hefur verið að vekja at-
hygli í heimi kvik-
myndatónlistar, sér-
staklega fyrir tónlist
sína við The Sun is also
a Star, sem er Holly-
woodframleiðsla í
stærri kantinum.
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
EIN BESTA MYND SEM KOMIÐ HEFUR Á ÞESSU ÁRI.
JAMIE FOXX OG MICHAEL B.JORDAN
ERU BÁÐIR HÉR MEÐ FRÁBÆRAN LEIK. MYND SEM ALLIR
KEPPAST VIÐ AÐ HÆLA EFTIR AÐ HAFA SÉÐ MYNDINA.
Ingunn Fjóla
Ingþórsdóttir
opnar á morgun,
sunnudag, kl. 13
sýninguna Mynd
eftirmynd í
Kompunni í Al-
þýðuhúsinu á
Siglufirði. Þar
teflir hún saman
þremur mynd-
pörum úr ofnum
málverkum og daufum einlitum
flötum sem málaðir eru beint á
veggi sýningarrýmisins. Mynda
verkin saman innsetningu í rýminu
þar sem hefðir handverks og mál-
verks mætast, skv. tilkynningu.
Sýningunni lýkur 21. júní og verður
hún opin daglega frá kl. 14 til 17.
Ingunn er með meistaragráðu í
myndlist og hefur hún sýnt víða,
bæði innanlands og utan.
Mynd eftirmynd
opnuð í Kompunni
Ingunn Fjóla
Ingþórsdóttir
Hljómsveitin Staðlaráðið hefur tón-
leikaröðina Sumarjazz á Jómfrúnni
í dag kl. 15 og er þetta 25. sumarið
sem boðið er upp á djass á torgi
veitingastaðarins. Líkt og undan-
farin ár er dagskrárgerð og kynn-
ing í höndum Sigurðar Flosasonar.
Staðlaráðið er skipað þaul-
reyndum djössurum, Ari Bragi
Kárason leikur á trompet, Sigurður
Flosason á saxófón, Andrés Þór
Gunnlaugsson á gítar, Þorgrímur
Jónsson á kontrabassa og Einar
Scheving á trommur. Þeir munu
flytja fjölbreytta efnisskrá djass-
standarda og er aðgangur ókeypis
að tónleikunum sem endranær.
Staðlaráðið hefur
djasssumarið
Blæs Ari Bragi Kárason trompetleikari.