Morgunblaðið - 06.06.2020, Side 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 2020
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Nýræktarstyrkir Miðstöðvar
íslenskra bókmennta (MÍB) voru af-
hentir í vikunni og hlutu þá fjórir
nýir rithöfundar sem fá hver um sig
hálfa milljón króna í styrk fyrir verk
sín. Aðalsteinn Emil Aðalsteinsson
hlaut styrk fyrir smásögurnar 500
dagar af regni; Arndís Lóa Magnús-
dóttir fyrir ljóðabókina Taugaboð á
háspennulínu; Guðmundur Ingi
Markússon fyrir furðusöguna
Skuggabrúin og Halla Þórlaug Ósk-
arsdóttir fyrir ljóðsöguna Þagnar-
bindindi.
Samkvæmt upplýsingum frá MÍB
eru Nýræktarstyrkir veittir árlega
fyrir skáldverk höfunda sem eru að
stíga sín fyrstu skref á ritvellinum,
óháð aldri, og til að hvetja þá til
frekari dáða á þeirri braut.
Í umsögn bókmenntaráðgjafa um
500 dagar af regni segir að um sé að
ræða safn níu smásagna úr
íslenskum samtíma „þar sem dregin
eru fram lykilaugnablik í lífi venju-
legs fólks. Höfundur hefur gott vald
á smásagnaforminu sem hann notar
til að bregða ljósi á hinar myrku
hliðar mannsins. Næmt auga fyrir
smáatriðum magnar upp ískyggilegt
andrúmsloft þar sem örlögin vega
salt innan ramma hversdagsins.“
Um Taugaboð á háspennulínu
segir að um tvískipta ljóðabók sé að
ræða sem fjalli „um tjáningu, ein-
angrun og einmanaleika. Ljóðin eru
ort af öryggi og hugvitssemi, meðal
annars frá sjónarhóli ómálga barns
og eldri manneskju sem er að tapa
málinu. Höfundur dregur upp ljóslif-
andi myndir sem koma oft á óvart og
býr til heildstæðan og marglaga
heim þar sem hið kunnuglega verður
framandi“.
Um furðusöguna Skuggabrúin
segir að hún sé skrifuð jafnt fyrir
fullorðna sem ungmenni. „Marg-
vísleg átök milli ljóss og skugga,
sýndar og reyndar, berast víða um
ísilagt norðurhvelið en eiga sér líka
stað í huga persónanna. Í þéttofnum
texta er dregin upp margbrotin og
vandlega útfærð heimsmynd þar
sem afar blæbrigðaríkur stíll gerir
umhverfið og náttúruöflin áþreifan-
leg.“
Um Þagnarbindindi segir að ljóð-
sagan miðli hugarheimi konu sem
reyni „að ná tökum á minningum um
missi og ótta, um samskipti við kon-
urnar sem hafa verið henni nánastar
og henda reiður á svo mörgu sem
hún hefur aldrei sagt. Á yfirborðinu
hafa ljóðin lágstemmt yfirbragð
hversdagsraunsæis en markvisst
myndmál og athuganir undirstrika
sársaukann í þögninni og tilfinn-
ingalega dýpt undir kyrrlátu yfir-
borðinu“.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ánægja Styrkþegarnir Guðmundur Ingi Markússon, Arndís Lóa Magnúsdóttir, Aðalsteinn Emil Aðalsteinsson og
Halla Þórlaug Óskarsdóttir ásamt Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, fyrir miðri mynd.
Smásögur, ljóð,
furðusaga og ljóðsaga
Nýræktarstyrkir Miðstöðvar íslenskra bókmennta veittir
Brúðubíllinn frumsýnir sumarsýn-
ingu sína í Hallargarðinum við Frí-
kirkjuveg mánudaginn 8. júní kl. 14. Í
framhaldinu verður sýningin sýnd á
gömlum gæsluvöllum og ýmsum úti-
vistarsvæðum víðs vegar um borgina
alla virka daga í júní og júlí kl. 14, en
allar nánari upplýsingar um sýning-
arstaði má nálgast á vef Reykjavík-
urborgar. Hver sýning tekur um 30
mínútur. Að vanda kostar ekkert að
sjá sýningar Brúðubílsins.
Á ferðinni í ár eru bæði þekktar
brúður eins og Lilli, Blárefurinn og
Úlli úlfur, sem er bæði hrekkjóttur og
stríðinn, og svo er alltaf von á nýjum
persónum og leikendum.
Brúðubíllinn sýnir hvernig sem
viðrar og samkvæmt upplýsingum
frá sýnendum hefur aldrei fallið niður
sýning sökum veðurs þó oft bæði
rigni og blási hressilega.
„Brúðubíllinn er bæði til skemmt-
unar og fræðslu. Börnum er kennt að
ganga vel um náttúruna, vera góð við
blóm og dýr og sérstaklega og ekki
síst við hvert annað,“ segir í tilkynn-
ingu frá borginni.
Morgunblaðið/Eggert
Góð Helga Steffensen í góðum félagsskap annarra leikara og persóna.
Brúðubíllinn á ferð
Egill Heiðar Anton Pálsson er til-
nefndur til dönsku sviðslistaverð-
launanna sem kennd eru við Reum-
ert fyrir
leikstjórn sína á
Fanný og Alex-
ander eftir Ing-
mar Bergman í
nýrri leikgerð
Egils sem frum-
sýnd var hjá
Borgarleikhúsinu
í Álaborg í sept-
ember 2019. Í við-
tali sem Egill
veitti Morgun-
blaðinu í tengslum við frumsýn-
inguna lýsti hann þeim sterku við-
brögðum sem hann fékk frá
áhorfendum í frumsýningarvikunni.
„Áhorfendur hrifust af frásagnar-
forminu sem blandar saman epísku
frásagnarleikhúsi og dramatískum
átökum. Fólki fannst líka gaman að
láta koma sér á óvart með upplýs-
ingum sem aðeins er að finna í nó-
vellunni og ekki í sjónvarpsþátt-
unum,“ sagði Egill. Uppfærslan fékk
lofsamlega dóma í dönskum miðlum.
Vegna kórónuveirufaraldursins
með tilheyrandi samkomutakmörk-
unum frestast verðlaunaafhendingin
til hausts og fer fram í Folketeatret í
Kaupmannahöfn 21. september og
farið eftir þeim reglum sem gilda um
hámarksfjölda gesta á viðburðum.
Af Agli er það annars að frétta að
hann flytur í sumar til Tromsø í
Norður-Noregi þar sem hann tekur
við starfi leikhússtjóra Hálogalands-
leikhússins 1. ágúst. Tilkynnt var
um ráðningu hans síðasta haust og
er hann ráðinn til fimm ára. Í viðtali
sem Egill veitti Morgunblaðinu þeg-
ar tilkynnt var um ráðninguna sagði
hann spennandi tíma framundan.
„Mér finnst mjög gaman að fá tæki-
færi til að skipta um umhverfi og
færa mig úr leikstjórastólnum og
kennslunni í leikhússtjórastólinn,“
sagði Egill sem kennt hefur leik-
stjórn við Ernst-Busch-leiklistar-
háskólann í Berlín þar sem hann
hefur verið prófessor frá árinu 2013.
Tilnefndur til Reumert-
verðlauna fyrir leikstjórn
Egill Heiðar
Anton Pálsson
Strengjakvartettinn Spútnikk held-
ur hádegistónleika í Hannesarholti
á morgun kl. 12.15. Á efnisskránni
er Strengjakvartett opus 54 nr. 1
eftir Joseph Haydn. „Strengja-
kvartettinn Spúttnik var stofnaður
2018. Meðlimir eru fiðluleikararnir
Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir og
Diljá Sigursveinsdóttir, víóluleik-
arinn Vigdís Másdóttir og sellóleik-
arinn Gréta Rún Snorradóttir.
Spúttnikk hefur verið í nánu sam-
starfi við fiðlusmiðinn Jón Marinó
Jónsson og leikið við hin ýmsu tæki-
færi á hljóðfæri hans, sum í eigu
hljóðfæraleikaranna sjálfra eða
fengin að láni,“ segir í tilkynningu.
Miðar eru seldir á vefnum tix.is.
Fjör Strengjasveitin Spútnikk ásamt Jóni.
Spútnikk leikur
Haydn á morgun
Sjöunda starfsári
tónleikaraðar-
innar Hljóðana
lýkur í Hafnar-
borg annað
kvöld, sunnudag,
kl. 20 með tón-
leikum Ástu
Fanneyjar Sig-
urðardóttur,
listakonu og
skálds, og Svans
Vilbergssonar gítarleikara. Yfir-
skrift tónleikanna er „Hljorð“. Um
er að ræða nýyrði Ástu Fanneyjar
sem samsett er úr orðunum „hljóð“
og „orð“ og er tilraun til að sam-
þætta í eitt orð tvær ólíkar birting-
armyndir merkingar. „Annars veg-
ar fyrirframgefna merkingu
orðanna og hins vegar samhengis-
bundna merkingu hljóða, þar sem
merkingin sprettur fram eftir sam-
hengi þeirra og samsetningu,“ seg-
ir í tilkynningu frá safninu.
Hljorð á Hljóð-
önum í Hafnarborg
Ásta Fanney
Sigurðardóttir