Morgunblaðið - 13.06.2020, Síða 6

Morgunblaðið - 13.06.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2020 Vestmannaeyjabær og höfnin í Eyjum skörtuðu sínu fegursta í veðurblíðunni og glampandi sólskini í vikunni þegar ljós- hlýju veðri yfir helgina. Veðurstofan spáir frá 12 til 17 stiga hita á landinu á morgun. myndari tók meðfylgjandi mynd ofan af Klifi. Þrátt fyrir að rignt hafi víða um land í gær má áfram búast við hægu og Höfnin í Eyjum í glampandi sól og blíðu Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Ef borgin ætlar að setja fötluðu fólki þær skorður að það geti ekki komist um göngugöturnar og lagt þar í sérmerkt stæði er borgin að jaðarsetja fatlað fólk enn frekar,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), um ósk Reykjavíkurborgar um að sveitarfélög fái sjálf að ákveða hvort og þá hvaða undanþágur verði veittar á ökubanni um göngugötur. Ef ósk borgarinnar verður sam- þykkt fær borgin heimild til að tak- marka umferð hreyfihamlaðra öku- manna um göngugötur. Hreyfi- hamlaðir fengu fyrst undanþágu frá ökubanni um göngugötur í byrjun árs eftir áralanga baráttu ÖBÍ. Morgunblaðið greindi í gær frá ósk borgarinnar sem hún sendi til umhverfis- og samgöngunefndar í apríl síðastliðnum. Þuríður segir að það að borgin hafi sent nefndinni er- indið um tveimur mánuðum áður en göngugötur voru opnaðar sýni að borgin hafi ekki verið tilbúin að láta reyna á breytt skipulag áður en hún óskaði eftir því að fá að fara með undanþáguvaldið sjálf. „Það eru mikil vonbrigði að borgaryfirvöld vilji ekki einu sinni láta reyna á þessa nýjung.“ Hanna Katrín Friðriksson, þing- maður Viðreisnar sem situr í um- hverfis- og samgöngunefnd, segir eðlilegt að taka beiðni borgarinnar til skoðunar. Einn liður í því sé að skoða hvernig nágrannalöndin hagi sambærilegu skipulagi. „Reykjavík er sannarlega ekki fyrsta borgin sem hefur áhuga á því að hafa göngugötur sem virka. Ég held að það liggi bara nærri lagi að við kynnum okkur hvernig þetta er í nágrannalöndunum þar sem borgar- kjarnar hafa byggst upp í kringum mannlíf á göngugötum.“ Ekkert samráð Þuríður segir að ósk borgarinnar hafi komið henni í opna skjöldu. Ekkert samráð hafi verið haft við hreyfihamlaða vegna málsins. Í minnisblaðinu þar sem ósk borgarinnar er kunngjörð er sagt vandséð í hvaða tilgangi hreyfihaml- aðir eigi að aka um göngugötur ef þar er ekki að finna bílastæði fyrir þá eða aðstæður til aksturs. Þuríður segir ótækt ef fækka eigi stæðum fyrir hreyfihamlaða á göngugötum og færa þau út í hliðar- götur. Margar þeirra eru í halla og getur það skapað hættu fyrir fólk sem notar hjólastól eða göngugrind- ur þegar það fer úr ökutækjum sín- um, sérstaklega yfir vetrartímann. „Ég held að Reykjavíkurborg þurfi líka að hugsa þetta í víðara samhengi og ég velti fyrir mér hvernig hún hyggst uppfylla mark- mið Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks þar sem sérstaklega er tekið á aðgengismálum og mis- munun.“ Þuríður bendir á að í borgum þar sem milljónir búi hafi gengið prýði- lega að hafa göngugötur opnar fyrir bílaumferð hreyfihamlaðra. Í því samhengi bendir hún á Stokkhólm, Ósló og fleiri borgir. Hvorki náðist í borgarstjóra né samgöngustjóra Reykjavíkur við vinnslu fréttarinnar. Takmörkun á umferð jaðarsetning Morgunblaðið/Hari Ósk Þuríður vonast til þess að borgin horfi á beiðni sína í víðara samhengi.  ÖBÍ segir ósk borgarinnar um undanþáguvald vonbrigði og ótækt ef flytja eigi stæði  Nefndarmað- ur segir eðlilegt að skoða málið og líta til nágrannalanda  Erindi borgarinnar barst nokkru fyrir opnun Dagskrá: Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins Vakin er athygli á að allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinummeð málfrelsi og tillögurétti. Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs Grand Hótel Reykjavík, þriðjudaginn 16. júní kl. 17:00 Gildi–lífeyrissjóður Ársfundur 2020 ▪ Lífeyrissjóður www.gildi.is Landsréttur þyngdi í gær dóm yfir Sigurði Sigurðssyni í 10 ár vegna til- raunar til manndráps, en áður hafði hann verið dæmdur í 6 ára fangelsi í Héraðsdómi Austurlands vegna málsins. Landsréttur segir í dómi sínum að hending ein hafi ráðið því að ekki hlaust bani af og að Sigurður hafi sýnt einbeittan brotavilja við verkn- aðinn. „Verður lagt til grundvallar að atlagan hafi verið með þeim hætti að það hafi verið beinn ásetningur ákærða að brotaþoli biði bana af,“ segir í dóminum. Dæmdar bætur hækkaðar úr 2 milljónum í 2,7 milljónir Þá eru dæmdar bætur einnig hækkaðar úr tveimur milljónum í tæplega 2,7 milljónir. Var Sigurður fundinn sekur um að hafa ráðist á mann á heimili í Nes- kaupstað með tveimur hnífum. Sig- urður stakk manninn í hálsinn og margsinnis í líkama með þeim afleið- ingum að maðurinn hlaut fjölda áverka. Neitaði Sigurður sök í málinu fyrir dómi. Upplýst var að Sigurður hefði verið mjög ósáttur við sambandsslit sín við unnustu þess sem varð fyrir árásinni og að hann hefði í aðdrag- anda árásarinnar haft í alvarlegum hótunum. Fram kom í frumskýrslu lögreglu að lögreglumenn hefðu haft afskipti af Sigurði allnærri vettvangi. Hann var með blóð á höndum og föt hans voru einnig blóðug. Hann var færður á lögreglustöð og vistaður í fanga- klefa. Fram kemur að Sigurður hafi ver- ið í annarlegu ástandi, en ekki verið með sýnileg ölvunareinkenni. Þá segir í skýrslunni að framburður hans hafi verið greinargóður og mál- farið skýrt. 10 ár fyrir tilraun til manndráps  Landsréttur þyngdi refsidóminn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.