Morgunblaðið - 13.06.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2020
Það vantar ekki hugmyndirnarhjá þeim sem stjórna Reykja-
víkurborg en þær mættu óneitan-
lega margar vera betri. Nýjasta
hugmyndin er að hrúga upp grjóti
meðfram Eiðsgranda. Þegar þau
ósköp hófust héldu líklega flestir að
þarna væri verið að undirbúa að
tyrfa lítil hæðardrög eins og hefur
komist í tísku í seinni tíð og á víða
vel við. Svo kom á daginn að það
stóð alls ekki til, þarna áttu einfald-
lega að vera grjóthrúgur.
Nú hefur komið í ljós að afaróljóst er hvernig grjóthrúg-
urnar eiga að vera, en svo virðist
sem ætlunin sé að leyfa þar nokkuð
frjálsan uppvöxt ýmissa plantna.
Þá segir fulltrúi meirihlutans íborginni að með því að setja
niður þessar hrúgur minnki svæðið
sem þurfi að slá. Þetta er út af fyrir
sig óumdeilanlegt og þar með er
líka búið að slá af stærsta græna
svæðið í Vesturbænum.
En hvers vegna að láta staðarnumið þar. Grjóthrúgur geta
leyst sláttuvandann víðar, að ekki sé
talað um malbik, sem ekki þarf að
fjölyrða um að myndi draga úr gras-
slætti, til dæmis á Klambratúni og í
Hljómskálagarðinum, að ekki sé tal-
að um umferðareyjur borgarinnar.
Tækifærin eru fjölmörg og meðþessu mætti slá verulega á
sláttuvandann, þó að óljóst sé hvort
þetta slægi á sláttuvandann hjá
borgarsjóði, en borgaryfirvöld hafa
svo sem ekki áhyggjur af honum,
þ.a. óþarft er að fjölyrða um hann.
Grænt svæði
slegið af
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Okkur dettur helst í hug að fólk sé
að nota gamla snjallforritið. Gömlu
snjallforritunum var lokað á fimmtu-
dag þannig að virkni þeirra er nú
orðin engin,“ segir Björn Berg
Gunnarsson, fræðslustjóri Íslands-
banka. Vísar hann í málinu sínu til
virkni snjallforrita bankans. Hefur
nokkur fjöldi viðskiptavina orðið var
við að umrædd snjallforrit hafi ekki
virkað sem skyldi undanfarna daga.
Þrátt fyrir að nýtt snjallforrit hafi
litið dagsins ljós í byrjun árs virðist
sem enn hafi talsverður fjöldi fólks
notast við eldri forrit. Aðspurður
segir Björn að ekki hafi margar
kvartanir borist inn á borð bankans.
„Það eru margir mánuðir síðan nýtt
forrit kom. Nú hefur það alfarið tek-
ið við, en við höfum ekki tekið eftir
neinu sérstöku hér hjá okkur,“ segir
Björn og bætir við að þeir sem sótt
hafi nýja forritið en eigi í vandræð-
um þurfi hugsanlega að uppfæra
símann.
„Það er eðlilegt að rof verði í þjón-
ustu gömlu forritanna enda hefur
þeim verið lokað. Fólk þarf í þeim til-
fellum að sækja nýtt forrit. Ef fólk er
hins vegar í vandræðum með nýja
snjallforritið þarf hugsanlega að
uppfæra stýrikerfið eða appið
sjálft,“ segir Björn.
aronthordur@mbl.is
Snjallforrit bankans gerð óvirk
Gömul snjallforrit Íslandsbanka tekin
úr notkun á fimmtudag í síðustu viku
Morgunblaðið/Eggert
Íslandsbanki Gamalt snjallforrit
var tekið úr umferð í síðustu viku.
Skemmti- og veitingastaðurinn Spot
verður opnaður á ný eftir langa kór-
ónuveirulokun sem hófst um miðjan
mars. Nýir eigendur voru þá nýbúnir
að kaupa staðinn og voru tilneyddir
til að loka honum næstum strax aftur.
Nú mætir staðurinn aftur til leiks
tvíefldur og vænta má að það uppá-
tæki eigenda að gefa 500 Tuborg-
bjóra muni laða einhverja að þegar
staðurinn verður opnaður á þriðju-
daginn klukkan fimm.
Staðnum gerbreytt
Eyrún Erla Ólafsdóttir, sem á
staðinn ásamt Daníel Erni Einars-
syni og Birgi Ragnari Birgissyni,
segir að staðnum hafi verið gerbreytt
á meðan það var lokað. Nýir skjá-
varpar, sýningartjöld og hljóðkerfi
hafa verið sett upp og þá hefur kar-
íókí-herbergjum verið komið fyrir
inni á staðnum. Enski boltinn verður í
hávegum hafður á Spot í vetur og
heimildir Morgunblaðsins herma
meira að segja að viðræður standi yf-
ir með eigendum staðarins og for-
svarsmönnum í Liverpool-klúbbnum
um að horfa á leiki á staðnum.
Áherslurnar verða þær sömu og
hingað til á Spot, sport, veislur og við-
burðir. Þannig er Páll Óskar bókaður
á Pallaball 4. júlí og verður einnig um
áramótin á Spot. Þá er veitingastaður
rekinn yfir daginn á Spot í hádeginu
og fram á kvöld. Annars verður hefð-
bundin opnun alla daga.
snorrim@mbl.is
Splunkunýr Spot
splæsir bjór
Nýir eigendur opna staðinn eftir lokun
Viðræður í gangi við Liverpool-klúbbinn
Eigendur Spot Eyrún Erla, Birgir
Ragnar og Daníel Örn hafa öll
reynslu úr veitingageiranum.
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
SAMBA
Einingasófi sem hægt er
að raða saman á ótal vegu
Frábært úrval af áklæðum
Horntungusófi á mynd
Stærð 295x233
kr. 387.800