Morgunblaðið - 13.06.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.06.2020, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2020 Í ljósi þess að heilbrigðisyfir- völd á Íslandi hafa í hyggju að opna landamæri hinn 15. júní nk. er eðli máls sam- kvæmt nauðsyn- legt að gæta fyllstu varfærni í slíkri aðgerð. Í dag er gert ráð fyrir að komu- farþegar verði skimaðir við komuna til landsins á Kefla- víkurflugvelli, ella fari þeir í 14 daga sóttkví. Gert er ráð fyrir að sýni séu tekin við komuna og send til rannsóknar til Reykjavíkur. Jafnframt er gert ráð fyrir að það taki þrjár til fimm klukkustundir að fá niðurstöðu. Gert er ráð fyrir að innheimta kr. 15.000 frá og með 1. júlí. Ekki er gert ráð fyrir að það verði hægt að skima meira en 500 farþega á dag miðað við núverandi af- köst. Það þýðir að afköstin gætu orðið 15.000 manns á mánuði. Ef opna á landamærin fyrir frjálsan flutning farþega til og frá landinu er nauðsynlegt að sú framkvæmd að greina smit verði til muna skilvirkari. Greiningin gerist hraðar og með sem fyllstri nákvæmni. Með hliðsjón af fjölda komuf- arþega til landsins undanfarin ár blasir við að koma þarf upp aðstöðu á Keflavíkurflugvelli sem greinir nokkur þúsund farþega á dag. Þá væri æski- legt að taka sýna og greining á flugvellinum tæki aðeins mín- útur en ekki klukkustundir með flutningi sýna til Reykja- víkur. Sú tækni er nú þegar þekkt hjá fyrirtæki í Bandaríkjunum. Jákvæð greining tekur fimm mínútur og neikvæð átta mínútur, samtals 13 mínútur. Tækið er rétt um 3 kg að þyngd og á stærð við sæmi- lega stóra brauðrist. Miðstöð sýnatöku væri hægt að koma fyrir á innkomustað komuf- arþega og brottfararstað far- þega sem yfirgefa landið. Greining ásamt bókunarnúm- eri farþega eða strikamerki væri þá tilbúin áður en farþeg- inn yfirgæfi flugstöðina við komu til landsins. Þá væri hægt að gera viðeigandi ráð- stafanir. Á vefsíðu fyrir- tækisins er kennslumyndband varðandi notkun á tækinu. Það tekur um klukkustund að læra hvernig taka á og greina sýni. Þá væri rétt að skoða þann kost að hafa slík tæki um borð í flugvélum. Flugfreyjur eru margar hverjar hjúkrunar- fræðingar að mennt og gætu þá sinnt því verkefni að greina smit um borð í flugvélum ef tilefni gæfist til að skoða slíkt. Niðurstöður greininga geta farið með ljóshraða milli staða og þannig tryggt eðlileg og hröð viðbrögð þegar við fyrstu merki þess að faraldur sé far- inn af stað á einum eða öðrum stað í heiminum. Öllum ætti að vera ljóst að nauðsynlegt er að útvega heilbrigðisstarfsfólki allan þann búnað sem tryggir skjótan árangur í greiningu þar sem fólk mætir til umönn- unar. Sameindaprófunartækni gerir kleift að greina vírusa með því að bera kennsl á lítinn hluta erfðamengis vírusa og magna síðan þann hluta þar til nóg er fengið til greiningar. Þetta ferli getur skipt sköpum í biðtíma frá klukkustundum í mínútur. Hafa ber í huga að farsóttir geta mögulega komið í bylgjum. Spænska veikin byrjaði vor og sumar 1918. Önnur bylgjan var um haustið 1918. Sagt er að á fjórum mán- uðum hafi farist hundrað millj- ónir. Þriðja bylgjan gekk þegar komið var fram á árið 1919. Hafa ber í huga að þrátt fyrir nafnið spænska veikin átti hún ekki upptök sín á Spáni. Fyrsta skráða tilfellið var í miðríkjum Bandaríkj- anna. Aðgerðaleysi gagnvart næstu bylgju er ekki skyn- samlegt viðhorf. Við opnun landamæra er gert ráð fyrir að greina þurfi 1.000 sýni á dag. Á sama tíma er ljóst að tækjabúnaður, húsnæði og mönnun á sýkla- og veiru- fræðideild Landspítala gerir það að verkum að ekki verður hægt að greina 1.000 sýni á dag. Þá hefur komið fram hjá yfirlækni sýkla- og veiru- fræðideildarinnar að deildin sé ekki í stakk búin til glíma við stórar farsóttir. Húsnæði deildarinnar er ónothæft vegna lekaskemmda. Það vantar fé til kaupa á sjálf- virkri og vinnusparandi tækni. Á sama tíma og dreift er milljörðum af opinberu fé út í samfélagið til að mæta af- leiðingum Covid 19- faraldursins er ekki brugðist við og sýkla- og veirufræði- deildinni komið í nothæft hús- næði. Hér virðist vera á ferðinni svipað viðhorf og endurspegl- ast í þeirri áætlun ríkis- stjórnarinnar að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð á sama tíma og rætt er um að örva nýsköpun í landinu. Nýsköp- unarmiðstöð er í eigin hús- næði með skrifstofur og rann- sóknaaðstöðu. Þar starfa um 80 manns, sérfræðingar á fjöl- mörgum sviðum. Kostnaður innan við einn milljarður á ári. Í stað þess að láta Nýsköp- unarmiðstöðina lifa stendur til að handdreifa nokkur hundr- uð milljónum út í samfélagið samkvæmt geðþóttaákvörðun ráðherra. Þá er einnig viðbúið að hér sé verið að hrekja hóp sérfræðinga á fjölmörgum sviðum úr landi á sama tíma og stjórnmálamenn tala fjálg- lega um stuðning við nýsköp- un í landinu. Í stað þess að setja gjald á farþega sem eru skimaðir kr. 15.000 væri skynsamlegra að setja 2.000 króna komugjald á alla komufarþega – óháð því hvort margir eða fáir eru skimaðir. Það þýðir hvað tekjur varðar í venjulegu ár- ferði fjórir til fimm milljarða á ári. Þeim fjármunum yrði síð- an varið til að verjast farsótt- um og öðrum ógnum í fram- tíðinni. Gjaldið mætti líka nota til að tryggja kostnað við vernd og gjaldfrjálst aðgengi að náttúruperlum þjóðar- innar. 13 mínútur Eftir Ólaf Jónsson »Með hliðsjón af fjölda komu- farþega til landsins þarf að koma upp aðstöðu á Kefla- víkurflugvelli sem smitgreinir nokkur þúsund farþega á dag. Ólafur Jónsson Höfundur er uppfinningamaður. gwpolj@gmail.com ✝ SveinbjörnGuðmundsson rafmagnseftir- litsmaður, Blóm- vangi 2, Egils- stöðum, fæddist í Mið-Sandvík í Norðfjarðarhreppi 1. október 1926. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Dyngju á Egils- stöðum 30. maí 2020. Foreldrar hans voru hjónin Sesselja Sveinsdóttir, f. 23. ágúst 1891 á Barðsnesi í Norð- firði, d. 1. október 1926 í Mið- Sandvík, og Guðmundur Gríms- son, bóndi í Mið-Sandvík, f. 14. júlí í Ásakoti í Biskupstungum, d. 10. febrúar 1941 í Reykjavík. Foreldrar Sveinbjörns bjuggu í Guðmundarhúsi á Barðsnesi í Norðfirði, árið 1923 fluttu þau hús sitt og reistu í Mið-Sandvík. Þar bjuggu þau þar til 1926 að Sesselja andaðist, frá tíu börn- um þeirra hjóna. Börn þeirra hjóna voru þessi: 1) Helga Þur- íður, f. 1. apríl 1916 á Barðs- nesi, d. 6. nóvember 2011. 2) María f. 19. febrúar 1917 á Barðsnesi, d. 7. janúar 2000. 3) Óskar, f. 16. febrúar 1918 á börn saman en fyrir átti Erla dótturina Aðalbjörgu Vil- hjálmsdóttur, f. 14. maí 1948 á Svalbarðseyri í Fáskrúðsfirði. Maður Aðalbjargar var Snorri Hlöðversson, f. 13. maí 1944, d. 7. júní 2016. Snorri var lengi vélgæslumaður við Grímsár- virkjun og bjuggu þau hjón þar, en fluttu síðar í Egilsstaði. Dætur Aðalbjargar og Snorra eru: Erla f. 22. apríl 1972, bú- sett í Reykjavík, og Ingibjörg, f. 12. maí 1973, búsett á Egils- stöðum. Móðir Sveinbjörns andaðist er hann fæddist, var hann þá tekinn í fóstur að Parti í Sand- vík af Jóhannesi Árnasyni og börnum hans. Um 1939 lá leið hans til Neskaupstaðar í skóla. Á þessum árum mun áhugi hans hafa vaknað á rafvirkja- námi. Eftir það lá leiðin til Reykjavíkur og stundaði hann nám í rafmagnsdeild Vélskól- ans í Reykjavík 1949-1952. Fluttist til Fáskrúðsfjarðar 1952 og var rafveitustjóri þar til 1957. Rafmagnsgæslu- maður hjá Rafmagnsveitum ríkisins á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði 1957-1966. Fluttist þá til Egilsstaða og gerðist yfirverkstjóri hjá Raf- magnsveitum ríkisins, Austur- landsveitu. Umdæmiseftirlits- maður Rafmagnseftirlits ríkis- ins 1970-1994. Útförin fer fram frá Egils- staðakirkju í dag, 13. júní 2020, klukkan 14. Barðsnesi, d. 4. ágúst 1991. 4) Ein- ar Guðmann, f. 22. nóvember 1919 á Barðsnesi, d. 6. ágúst 1998. 5) Sveinn, f. 11. apríl 1921 á Barðsnesi, d. 9. mars 1983. 6) Guðrún, f. 5. júlí 1922 á Barðsnesi, d. 4. september 2013. 7) Magnús, f. 26. júlí 1923 í Mið-Sandvík, d. 6. júní 1999. 8) Hallgerður, f. 2. ágúst 1924 í Mið-Sandvík. 9) Sesselja, f. 15. júlí 1925 í Mið- Sandvík, d. 26 september 2010. 10. barnið var Sveinbjörn. Árið 1952 fluttist Sveinbjörn til Fáskrúðsfjarðar og gerðist þar rafveitustjóri, þar kynntist hann konu sinni, Erlu Björg- vinsdóttur, símaverði og hús- freyju, f. 26. janúar 1928 á Svalbarðseyri, Fáskrúðsfirði. Hún lést á Egilsstöðum 22. maí 2014. Foreldrar Erlu voru Björgvin Benediktsson, f. 3. ágúst 1891 á Hvalnesi í Stöðvarfirði, d. 5. apríl 1962, og Valborg Árnadóttir kona hans, f. 22. maí 1901 á Búðum í Fáskrúðsfirði, d. 24. júlí 1990. Sveinbjörn og Erla áttu ekki Elsku afi. Það er margs að minnast og margs að sakna. Við systur eigum svo ótalmargar ljúf- ar og góðar minningar um afa og ömmu á Hörgsásnum. Það var ekki í kot vísað að koma í heim- sókn; nóg til af öllu en mest af ást og umhyggju. Þær eru margar góðar minningarnar sem koma upp í hugann á stund sem þess- ari, þú lagðir mikið upp úr því að við töluðum rétt íslenskt mál og tókst okkur á teppið ef við not- uðum ekki réttu orðin sem við áttu og beygðum vitlaust. Þú lagðir mikla áherslu á að við kynnum bæjarnöfnin á leið- inni Grímsárvirkjun – Egilsstað- ir, þú varst líka duglegur að pre- dika yfir okkur hversu hættulegt rafmagn væri, það skilaði sér. Við fórum í margar skemmti- legar ferðirnar með ykkur ömmu út í náttúruna, þar sem þú varst sérlega mikill náttúruunnandi og þekktir mörg kennileiti, þú þekktir allar línur á landinu og gast sagt okkur hvert hver lína lá. Við systur vorum einstaklega heppnar að fá þig sem afa inn í okkar líf. Elsku afi, við kveðjum þig með þínum orðum: Takk fyrir komuna og takk fyrir allt. Þínar elskandi afastelpur, Erla og Ingibjörg. Sveinbjörn föðurbróðir okkar er nú fallinn frá og viljum við minnast hans með nokkrum orð- um. Hann fæddist í Mið-Sandvík í Sandvík í Norðfjarðarhreppi 1. október 1926. Foreldrar hans voru hjónin Sesselja Sveinsdótt- ir, húsfreyja í Mið-Sandvík, og Guðmundur Grímsson, bóndi þar. Þau hjón byrjuðu sinn bú- skap á Barðsnesi við Norðfjörð í svonefndu Guðmundarhúsi, árið 1923 fluttu þau hús sitt og reistu það í Mið-Sandvík. Þar bjuggu þau þar til 1926 að móðir hans andaðist frá tíu börnum þeirra hjóna. Var það mikið reiðarslag, eftir það var börnunum komið í fóstur og til dvalar á meðal vina og ættingja. Sveinbjörn, sem þá var nýfæddur, fór í fóstur á næsta bæ, til Jóhannesar Árna- sonar bónda á Parti í Sandvík, sem þá var orðinn ekkjumaður og bjó þar með börnum sínum þrem- ur þeim Margréti, Júlíusi og Sveinbirni, einnig var þar á heim- ilinu Þuríður Sæmundsdóttir fósturdóttir. Í Parti átti Svein- björn heimili þar til 1939 að hann fór til Neskaupstaðar í skóla, þá var Þuríður flutt þangað og bjó með Guðna Sveinssyni móður- bróður hans. Í Neskaupstað tók Sveinbjörn próf frá Barnaskólanum, síðan lá leiðin í Gagnfræðaskólann og Iðnskólann þar. Á þessum árum mun áhugi hans hafa vaknað á rafvirkjanámi, sem hann hóf. Eftir það lá leiðin til Reykjavíkur og stundaði hann nám í raf- magnsdeild Vélskólans í Reykja- vík 1949-1952, og tók þaðan sveinspróf. Háspennulöggildingu fékk hann 1960. Árið 1952 fluttist hann til Fá- skrúðsfjarðar og gerðist þar raf- veitustjóri til 1957. Rafmagns- gæslumaður hjá Rafmagns- veitum ríkisins á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði 1957-1966. Flutt- ist þá til Egilsstaða og gerðist yfirverkstjóri hjá Rafmagns- veitum ríkisins, Austurlands- veitu. Umdæmiseftirlitsmaður Raf- magnseftirlits ríkisins 1970-1994. Sveinbjörn hafði sem aukastörf hjá Rafmagnseftirliti ríkisins slysa- og brunavarnamál og fræðslu um það efni, hann hélt nærfellt 400 fræðslufundi í skól- um og á vinnustöðum um hættur af völdum rafmagns o.fl. Í Parti tók hann þátt í ýmsum bústörfum og í Neskaupstað vann hann einnig ýmis verka- mannastörf, m.a. um tíma við lagningu á veginum frá Eskifirði til Viðfjarðar, þar hafði hann m.a. það verk að vera kúskur. Það fól í sér að teyma hesta er drógu kerr- ur með efni í veginn. Eftir að Sveinbjörn kom til Fá- skrúðsfjarðar 1952 kynntist hann konu sinni, Erlu Björgvinsdóttur talsímaverði, mikilli sómakonu, Sveinbjörn Guðmundsson á stríðsárunum. Messuþjónar að- stoða og lesa ritningarlestra, séra María Ágústsdóttir þjónar og stýrir guðsþjónustunni. DIGRANESKIRKJA | Sameiginleg guðsþjónusta fyrir Digraneskirkju og Hjallakirkju verður sunnudaginn kl. 11 í Digraneskirkju. Boðið er upp á kaffi og kex að lokinni athöfn. DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 18 er vigilmessa og messa á pólsku kl. 19. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn og dómorgan- istinn Kári Þormar. EIÐAKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20. ÁRBÆJARKIRKJA | Helgistund kl. 11. Sr. Þór Hauksson þjónar. Organisti er Krizstina K. Szklenár. Kaffi og spjall eftir stundina. ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Ferming. Sr. Sigurður Jónsson sókn- arprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Jóhönnu Maríu Eyjólfsdóttur djákna. Kór Áskirkju syngur. Organisti Bjartur Logi Guðnason. Hátíðarguðsþjónusta á íhugunar- brautinni við Rósagarðinn í Laugardal á lýðveldisdaginn, 17. júní kl. 11. Sr. Sigurður Jónsson sóknarprestur þjón- ar, Gunnbjörg Óladóttir guðfræðinemi í starfsþjálfun prédikar. Félagar úr Kór Áskirkju syngja undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalar- nesi | Guðsþjónusta og aðalfundur Brautarholtssóknar í Fólkvangi 14. júní kl. 11. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast strax á eftir stundinni. Kynning á aðstöðuhúsi við Brautar- holtskirkju. Hugmyndakassi sem tek- ur við hugmyndum um starf sóknar- innar. Boðið verður upp á súpu og brauð. ATH! Í Fólkvangi er auðvelt fyrir þau sem vilja að halda fjarlægð. Spritt- brúsi í anddyri. BREIÐHOLTSKIRKJA | Sameiginleg gönguguðsþjónusta Breiðholtssafnað- anna. Gengið verður frá Fella- og Hóla- kirkju kl. 10 að Breiðholtskirkju þar sem guðsþjónusta hefst kl. 11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson þjónar, organ- isti er Örn Magnússon. BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa á sunnudag kl. 20. Gréta Hergils sópran syngur við undirleik Matthíasar Stef- ánssonar fiðluleikara og Jónasar Þóris kantors kirkjunnar. Sungnar verða Ave Maríur, Sveitin milli sanda og We will meet again sem Vera Lynn gerði frægt Kirkjukór Eiðakirkju leiðir safnaðar- söng. Organisti er Jón Ólafur Sigurðs- son. Prestur er Sigríður Rún Tryggva- dóttir. Útskrift úr farskóla leiðtoga- efna. Kaffi í aðstöðuhúsi eftir messu. FELLA- og Hólakirkja | Sameiginleg- ar gönguguðsþjónustur Breiðholts- safnaðanna í júní. Messað verður í Breiðholtskirkju kl. 11. Gengið verður frá Fella- og Hólakirkju kl. 10. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón- usta 14. júní kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og sönghópurinn Við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunnars- syni. GLERÁRKIRKJA | Laugardagur 13. júní kl. 11.30. Ferming. Sr. Stefanía G. Steinsdóttir þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots organista. Sunnudagur 14. júní kl. 11. Guðsþjónusta. Sr. Stefanía G. Steinsdóttir leiðir stundina. Ath.: Eftir guðsþjónustuna verður aðalsafn- aðarfundur Glerárkirkju í safnaðarsal kirkjunnar. GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffihúsa- messa sunnudag kl. 11. Prestur er Sigurður Grétar Helgason og organisti er Hákon Leifsson. Kór Grafarvogs- kirkju leiðir söng. GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Ásta Haraldsdóttir og sr. María G. Ágústsdóttir þjóna ásamt Kirkjukór Grensáskirkju og messuþjónum. Pré- dikunarefni: Ótti og ranglæti eða friður og réttlæti? Kyrrðarstund þriðjudaginn 16. júní kl. 12. Samkirkjuleg bæna- stund fyrir landi og þjóð á 17. júní kl. 11. GRINDAVÍKURKIRKJA | Messa 17. Orð dagsins: Kristur og Nikó- demus (Jóh. 3) Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flateyjarkirkja. Messur á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.