Morgunblaðið - 13.06.2020, Page 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2020
✝ Stefán Haf-steinn Jónsson
fæddist 18. maí
1943. Hann lést 31.
maí 2020 á blóð- og
krabbameinslækn-
ingadeild Landspít-
alans við Hring-
braut.
Foreldrar hans
voru hjónin Jón Al-
berg Júlíusson, f.
28. júní 1893, d. 6.
október 1981, og Guðrún Jónas-
dóttir, f. 14. desember, 1909, d.
15. september 1976.
Stefán kvæntist Báru Leifs-
dóttur hinn 16. september 1967.
Bára fæddist 25. apríl 1949 og
er dóttir hjónanna Leifs Eiríks-
sonar, f. 2. apríl 1928, og Unu
Sigurðardóttur, f. 12. ágúst
1929. Börn Stefáns og Báru eru:
a) Bogi Örn, f. 18. ágúst 1995. b)
Hafsteinn, f. 10. september
2001.
Stefán fæddist á Siglufirði og
ólst þar upp hjá foreldrum sín-
um og gekk í grunnskóla. Á
unglingsárum fór hann sem
vinnumaður í Fljótin, bæði að
Sauðanesvita og Hrauni. Árið
1959 fór hann að Reykholti í
Borgarfirði og var þar í skóla til
ársins 1961. Að því loknu fór
hann aftur til Siglufjarðar og
vann þar þangað til hann fluttist
í Kópavog árið 1964. Stefán fór í
Iðnskólann í Reykjavík og lærði
pípulagnir og vann við það þar
til fjölskyldan fluttist að Kálf-
hóli árið 1979. Þar stunduðu þau
hjónin blandaðan búskap ásamt
börnum sínum jafnframt því
sem Stefán vann ávallt við pípu-
lagnir samhliða búskap. Árið
1998 fluttust þau frá Kálfhóli og
vann Stefán við pípulagnir eftir
það.
Útför Stefáns fer fram frá
Skálholtskirkju í dag, laug-
ardaginn 13. júní 2020, klukkan
11.
1) Jón Gunnar, f.
25. maí 1967, eig-
inkona Elín Sigríð-
ur Gísladóttir, f. 18.
maí 1965. Börn
þeirra eru: a) Katla
Guðrún, f. 30. sept-
ember 1991. b)
Stefán Pétur, f. 2.
mars 1995. c) Gísli
Gautur, f. 11. maí
1999. 2) Leifur, f. 9.
september 1969,
eiginkona Þóra Gylfadóttir, f.
6.september 1977. Börn þeirra
eru: a) Gylfi Dagur, f. 4. mars
1997. b) Sigurður Arnar, f. 9.
maí 2001. c) Leifur Þór, f. 28.
febrúar 2004. c) Bára Ingibjörg,
f. 8. nóvember 2011. 3) Þórhild-
ur Una, f. 13. nóvember 1974,
eiginmaður Jón Bogason, f. 1.
febrúar 1964. Börn þeirra eru:
Kær faðir minn, hann Stefán
Hafsteinn, er látinn, þakklæti er
mér efst í huga þegar ég minnist
hans.
Það er skrýtið að hugsa til
þess að þegar maður kemur
heim til mömmu og pabba verði
engan pabba að finna, hvorki úti
né inni.
En minningin lifir um góðan
mann sem ávallt fylgdist með
sínu fólki og var tilbúinn að
leggja sitt af mörkum ef á þurfti
að halda.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
Þín vinartryggð var traust og föst
og tengd því sanna og góða,
og djúpa hjartahlýju og ást
þú hafðir fram að bjóða.
Og hjá þér oft var heillastund,
við hryggð varst aldrei kenndur.
Þú komst með gleðigull í mund
og gafst á báðar hendur.
Svo, vinur kæri, vertu sæll,
nú vegir skilja að sinni.
Þín gæta máttug verndarvöld
á vegferð nýrri þinni.
Með heitu, bljúgu þeli þér
ég þakka kynninguna,
um göfugan og góðan dreng
ég geymi minninguna.
(Höf. ók.)
Hvíl þú í Guðs friði elsku pabbi
minn.
Þórhildur Una Stefánsdóttir.
Í dag mun ég fylgja fóstra mín-
um og vini Stefáni Jónssyni síð-
asta spölinn.
Mínar fyrstu minningar af
þeim sómahjónum á Kálfhóli
voru þegar heyjað var í bagga og
ég sat á traktorsbrettinu að
borða íspinna. Ég bjó hjá Stebba
og Báru í fjóra vetur og átti þar
margar góðar stundir, oft fórum
við Stebbi í fjósið að sinna bú-
störfum.
Eins man ég þegar við fórum
að versla í Kaupfélaginu, þá var
alltaf komið við í kaffiteríunni og
við fengum okkur eitthvert góð-
gæti. Seinna lágu leiðir okkar
saman í starfi sem pípulagninga-
menn.
Stebbi var glaðlyndur og auð-
mjúkur maður. Ég mun eiga góð-
ar minningar um þennan ein-
staka mann sem var mér svo
góður.
Sigþór Sigurðsson.
Stefán Hafsteinn
Jónsson
✝ Jónas Ingi-marsson fædd-
ist í Skeggstöðum í
Svarfaðardal 23.
janúar 1937. Hann
lést á Sjúkrahúsinu
á Akureyri á hvíta-
sunnudag, 31. maí
2020. Foreldrar
Jónasar voru hjón-
in Jóhanna Sigur-
björg Jónasdóttir
og Ingimar Gutt-
ormsson. Hann átti tvær systur;
Guðrúnu, f. 8. október 1931, bú-
sett á Blönduósi, og Steingerði,
f. 16. mars 1942. Þær lifa báðar
bróður sinn.
Jónas stundaði sveitastörf
heima í Skeggstöðum á meðan
foreldrar hans
bjuggu þar en eftir
að þau fluttu til Dal-
víkur upp úr 1960
fór hann að vinna á
ýtu hjá Rækt-
unarsambandi
Svarfdæla og vann
hann þar fram und-
ir 1977. Þá fór hann
að vinna á Bílaverk-
stæði Dalvíkur og
var hann þar þar til
hann lét af störfum. Árið 2015
flutti hann á dvalarheimilið
Dalbæ og var þar síðustu árin.
Hann var ógiftur og barnlaus.
Jarðarförin fer fram frá Dal-
víkurkirkju í dag, 13. júní 2020,
klukkan 13.30.
Jónas frændi okkar var einn af
þessum stóru frændum okkar
systkinanna. Þegar afi og amma
bjuggu á Skeggsstöðum eða á
Dalvík vann Jónas m.a. á jarðýtu.
Okkur þótti jarðýta risastórt
tæki. Jónas leyfði okkur stundum
að koma inn í stýrishúsið. Það var
bara töluvert ferðalag fyrir lítil
börn.
Eftir að afi og amma fluttu á
Dalvík fór Jónas að vinna á bíla-
verkstæðinu hjá nafna sínum
Jónasi Hallgrímssyni. Þar feng-
um við líka oft að vera með og
fylgjast með honum að störfum
og líta inn til Valda frænda á lag-
erinn.
Jónas átti flottan plötuspilara
og fullt af plötum. Við höfðum
aldrei séð annað eins. Uppáhalds-
platan okkar Karlottu var með
Ómari Ragnarssyni, þar sem
hann söng m.a. Þrjú hjól undir
bílnum, Kappakstur, Rafvirkja-
vísur og Skíðakeppnina. Það sem
Jónas var þolinmóður að leyfa
okkur sí og æ að spila þessa plötu.
Við kunnum alla textana. Hann
átti líka fullt af eldgömlum plöt-
um, 78 snúninga, glerhörðum og
kolsvörtum, í geymslu undir súð.
Þær voru spilaðar á hátíðisdög-
um.
Vikan var í miklu uppáhaldi hjá
okkur systkinunum. Hana var
hægt að lesa fram og til baka og
Jónas hafði þær allar í röð og
reglu, mörg ár aftur í tímann. Sá
sem las Vikuna á þessum tíma
man örugglega eftir Gissuri gull-
rassi og Skugga.
Ófáar ferðirnar fórum við á
fínu bílunum hans Jónasar. Fram
í dal, upp á Böggvisstaðafjall, út í
Múla og inn á Árskógsströnd.
Jónas kom oft í heimsókn til okk-
ar á Blönduós. Samband hans og
mömmu var mjög gott alla tíð.
Margoft kom Jónas á Húnavöku
og var Íddi í Bakkagerði gjarnan
með í för. Þá var nú fjör á Húna-
brautinni. Fyrir sléttum tveimur
árum, í maí 2018, fórum við Kar-
lotta systir með mömmu í heim-
sókn til Jónasar á Dalbæ. Þá
höfðu þau systkinin ekki sést
langalengi. Það voru miklir fagn-
aðarfundir.
Jónas frændi minn var góður
maður. Hann vildi öllum vel.
Hann hafði mikið langlundargeð
gagnvart flestum, hló mikið og
leið vel. Hann vildi allt fyrir alla
gera.
Síðustu árin urðu ferðirnar á
Dalvík færri og færri, miðað við
það sem áður var. Alltaf var samt
jafn gaman að koma til Jónasar.
Fyrir nokkrum árum náðum við
honum og Jóhanni Daníelssyni
frænda okkar saman í kaffi á
Bergi á Dalvík. Það voru fagnað-
arfundir. Nú eru þeir báðir farnir
og beggja er saknað.
Megi Jónas frændi okkar hvíla
í friði.
Ingimar Sigurðsson, Kar-
lotta Sigurðardóttir, Jóhann
Sigurðsson og Auðunn
Steinn Sigurðsson.
Minning um löngu liðna daga:
Hreppstjórinn kom ríðandi á
uppboðið. Hann var í ullarnærföt-
um og úlpu. Þetta var kalda vorið
1949. Hjónin í Skeggsstöðum
voru að bregða búi og flytja á
mölina og að venju þegar einhver
hætti að bjástra við kýr og kindur
var haldin aksjón á búsmunum
því ekki þurfti á þeim að halda
innan við búðarborðið hjá Pönt-
unarfélaginu. Börnin í Skeggs-
stöðum höfðu verið frá því er ég
fyrst mundi eftir mér leikfélagar
okkar barnanna í Hofsárkoti en
nú voru að verða kaflaskil.
Krakkarnir í Skeggsstöðum að
flytja burt. Leikir okkar að enda –
ekki lengur heimsóknir í Skeggs-
staði þar sem spurt var ein eða
tvær og eftirvænting í andliti eftir
því hvert svarið yrði. Máttum við
stoppa í eina klukkustund eða
tvær? En þannig voru reglurnar
– ströng boð að heiman um hve
lengi mátti dveljast. Jónas í
Skeggsstöðum var aðalleikfélagi
okkar bræðra frá nágrannabæn-
um og alla stund fóru leikir okkar
fram í friði og einingu, aldrei þó
nefnt að við værum vinir, það
hugtak ásamt flestum orðum um
náin tengsl var ekki á vörum fólks
á þessari tíð. En þegar fólkið fór
úr Skeggsstöðum fylgdi því sökn-
uður og tóm og við fundum að
sterk bönd höfðu verið á milli
okkar krakkanna á þessum bæj-
um. Án þess að gera okkur það
ljóst þá voru þó meiri tímamót í
lífi okkar barnanna en að búskap
lyki í Skeggsstöðum. Við vorum
að yfirgefa barnið og verða ung-
lingar og urðum aldrei söm. Þótt
ég seinna á langri lífsleið hitti
Jónas í Skeggsstöðum nokkrum
sinnum þá var það sjaldnast
meira en að skiptast á nokkrum
orðum og samleið áttum við litla.
En nú þegar fregn barst um að
Jónas væri látinn og horfinn frá
okkur verða dagarnir forðum í
leik í Skeggsstöðum svo skýrir og
tærir í huganum að undan varð
ekki komist að setja á blað og
þakka, þó seint sé, fyrir gamlar
og löngu liðnar stundir á sunnu-
dögum þegar spurningin lá í loft-
inu; eru það ein eða tvær.
Samúðarkveðjur til ættingja
og vina Jónasar í Skeggsstöðum.
Jóhannes Sigvaldason.
Jónas Ingimarsson
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Helga Guðmundsdóttir,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓHANN LÍNDAL JÓHANNSSON,
fyrrv. rafveitustjóri,
Vallarbraut 6, Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fimmtudaginn 23. apríl. Útförin fer fram
frá Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 18. júní klukkan 14.
Elsa Dóra Gestsdóttir
Agnes Jóhannsdóttir Bessi Halldór Þorsteinsson
Hreinn Líndal Jóhannsson Anna Dóra Lúthersdóttir
Jóhann Gestur Jóhannsson Svava Tyrfingsdóttir
María Líndal Jóhannsdóttir
Elías Líndal Jóhannsson Guðlaug Helga Sigurðardóttir
Lína Dalrós Jóhannsdóttir Gunnlaugur Þór Ævarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ERNA S. JÚLÍUSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju
fimmtudaginn 18. júní klukkan 13.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks
hjúkrunarheimilisins Grundar fyrir góða umönnun.
Guðfinna Pétursdóttir Rudiger Peltz
Guðríður K. Pétursdóttir Þórarinn Þórarinsson
Guðbjörg L. Pétursdóttir
Júlíus Pétur Pétursson Lotta Frick
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT ERLINGSDÓTTIR,
Miðleiti 12, Reykjavík,
lést mánudaginn 8. júní. Útförin auglýst
síðar.
Sigurður Hannesson Margrét Karlsdóttir
Kristín Hannesdóttir Páll Einar Kristinsson
Erlingur Hannesson Halldóra Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Frænka okkar,
ÓLAFÍA GUÐRÚN RAGNARSDÓTTIR,
síðast til heimilis að
Lindargötu 57, Reykjavík,
er látin. Útförin verður gerð frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 25. júní klukkan 15.
Baldur Sigurgeirsson Þórður Jónsson
Markús Ívar Magnússon Guðrún Magnúsdóttir
Þórhildur Lárusdóttir Ólafur Björn Lárusson
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
BERGRÓS ÞORGRÍMSDÓTTIR,
Bjargslundi 4, Mosfellsbæ,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 6. júní.
Útför fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 18. júní
klukkan 13.
Sveinn Sveinsson
Sveinn Þorgrímur Sveinsson Margrét Ragnarsdóttir
Rakel Rós Sveinsdóttir Hrafn Stefánsson
Pétur Hafliði Sveinsson
og barnabörn
Okkar elskulega móðir, tengdamóðir
og amma,
FJÓLA LIND GUNNLAUGSDÓTTIR
lést á Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
8. júní síðastliðinn. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju þriðjudaginn 16. júní
klukkan 13.00. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Höfða fyrir
einstaka umönnun, nærgætni og hlýju.
Gunnlaugur Pálmason Rut Karol Hinriksdóttir
Víðir Pálmason Helga Jónsdóttir
Þuríður Ósk Pálmadóttir Tryggvi Guðbrandsson
og barnabörn